Morgunblaðið - 06.03.2021, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2021
„Megi vopnaskak hætta og ofbeldi og öfga-
hyggja víkja. […] Írak hefur þurft að þola hrylli-
legar afleiðingar styrjaldar, skærur hryðju-
verkamanna og aðskilnaðarátök,“ sagði Frans
páfi í sögulegri heimsókn sinni til Íraks í gær.
Sagði páfinn nú mikilvægt að Írakar, sem aðrir,
gefi friði tækifæri. Ummælin lét hann falla í við-
urvist Barham Salih Íraksforseta, stjórnmála-
manna og annarra diplómata. Hópurinn kom
saman í konungshöllinni í Bagdad.
Gríðarleg öryggisgæsla var allt í kringum páf-
ann og fylgdarlið, hundruð vopnaðra manna.
AFP
Írakar hafi þurft að þola hrylling styrjaldar
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Enn hefur aukist á þá spennu sem
ríkir milli Bandaríkjanna og Írans
eftir eldflaugaárás á íraska herflug-
völlinn Ain al-Asad sem meðal ann-
ars hýsir bandarískar hersveitir.
Árásin var gerð síðastliðinn miðviku-
dag, en Bandaríkjamenn segja hana
bera öll merki þess að hafa verið
framkvæmd af vígamönnum sem
njóta stuðnings Írana.
Pentagon, varnarmálaráðuneyti
Bandaríkjanna, segir hermenn sína
á flugvellinum ekki hafa særst í árás-
inni. Borgaralegur verktaki lét hins
vegar lífið í kjölfar hjartaáfalls, en
maðurinn mun hafa veikst skyndi-
lega er hann leitaði skjóls fyrir
sprengjuregninu. Ekki hefur verið
greint nánar frá hinum látna.
Joe Biden Bandaríkjaforseti
segir yfirvöld þar vestra nú rann-
saka atvikið af mikilli nákvæmni.
„Guði sé lof þá lést enginn
vegna eldflaugarinnar. […] Við
vinnum nú að því að bera kennsl á
þann sem ber ábyrgðina og munum
við í kjölfarið draga ályktanir,“ hefur
fréttaveita Reuters eftir forsetanum
er hann var á leið til fundar á skrif-
stofu sinni í Hvíta húsinu.
Írösk yfirvöld hafa gefið út að
tíu eldflaugum hafi verið skotið á
herflugvöllinn. Bandaríkjamenn
hafa ekki viljað staðfesta þetta. Þau
hafa þó gefið út að allt bendi til að
eldflaugum hafi verið skotið frá
nokkrum mismunandi stöðum aust-
an við flugvöllinn.
Verða reglulega fyrir árás
Stutt er síðan ráðist var á
bandaríska ríkisborgara í Írak, nú
seinast í febrúar síðastliðnum. Var
þá á rúmri viku í þrígang ráðist á
hermenn, diplómata og verktaka.
Tveir létust í þeim árásum.
Heimildarmenn Reuters innan
stjórnkerfis Bandaríkjanna segja
árásina á herflugvöllinn bera merki
þess að vera studd af Íran. Pentagon
hefur ekki viljað staðfesta þetta.
„Við getum á þessari stundu
ekki sagt hver ber ábyrgð. Og við
höfum ekki heildarmyndina um um-
fang tjónsins,“ segir John Kirby,
talsmaður varnarmálaráðuneytisins.
Til þessa hefur enginn vígahóp-
ur enn lýst yfir ábyrgð sinni á árás-
inni á Ain al-Asad-herflugvöll.
AFP
Íranar sagðir
viðriðnir árás
Spenna eykst enn milli ríkjanna
Viðbúnaður Íraskar öryggissveitir sjást hér við störf. Árásir hafa verið
nokkuð tíðar í landinu að undanförnu, einkum gegn Bandaríkjamönnum.
Kórónuveirusmitum hefur fjölgað
mjög í Sýrlandi að undanförnu, en
samkvæmt fréttaveitu Reuters fór
smitum að fjölga um miðjan febrúar.
Bágt efnahagsástand landsins hefur
gert það að verkum að stjórnvöldum
hefur að undanförnu gengið illa að
grípa til umfangsmikilla lokana til að
hefta útbreiðslu kórónuveiru.
„Ég hef ekki nákvæma prósentu-
tölu, þar sem ég er aðeins læknir. En
ég ræði auðvitað við mína samstarfs-
menn um ástandið. Hafi ég á sjúkra-
stofunni séð tvö til þrjú tilfelli á dag í
fyrra þá eru þau fimm til sex núna,“
hefur Reuters eftir Nabough al-
Awa, lækni í Damaskus.
Samkvæmt opinberum tölum hafa
greinst 15.753 tilfelli af kórónuveiru í
Sýrlandi frá því að faraldurinn hófst.
Dauðsföll eru sögð vera 1.045. Þess-
ar tölur hafa af mörgum verið dregn-
ar í efa og er óttast að tilfellin séu
mun fleiri en gefið hefur verið upp.
Er það m.a. í ljósi þess hve fá sýni
eru tekin til greiningar.
Veiran herjar mjög á Sýrland
Eiga erfitt með að grípa til lokana vegna fjárhagsstöðu
AFP
Lífið Tvær konur á göngu í landinu.
Bandaríski uppboðsvefurinn eBay
mun ekki taka að sér endursölu á
sex barnabókum eftir Dr. Seuss í
kjölfar þess að útgefandi bókanna
hætti útgáfu þeirra vegna mynd-
skreytinga sem hann segir sýna
kynþáttafordóma.
Bækurnar sem um ræðir eru: If I
Ran the Zoo; Scrambled Eggs Su-
per; McElligot’s Pool; On Beyond
Zebra!; And To Think That I Saw It
On Mulberry Street og The Cat́s
Quizzer. Bækur þessar hækkuðu
mjög í verði vegna þessa, fór ein
þeirra t.a.m. úr tæpum 15 dölum í
rúmlega 800 á einum degi.
BANDARÍKIN
Meintir fordómar
juku verðgildi bóka
Í ljósi þess hve vel hefur gengið að
bólusetja almenning á Bretlandi
fyrir Covid-19 hafa stjórnvöld á
Kýpur ákveðið að bjóða bólusetta
Breta velkomna til landsins frá og
með 1. maí næstkomandi. Er með
þessu vonast eftir góðum kipp í
gangi ferðaþjónustu þar.
Kórónuveirufaraldurinn hefur
leikið Kýpverja grátt og hefur
ferðaþjónusta þar svo gott sem
hrunið. Í fyrra komu þangað tæp-
lega 632 þúsund erlendir ferða-
menn en voru tæpar fjórar millj-
ónir árið 2019.
KÝPUR
Hliðin opnuð fyrir
bólusettum Bretum