Morgunblaðið - 06.03.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 06.03.2021, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2021 Nýbygging Gegnt Ráðhúsi Reykjavíkur við Vonarstræti, og við hliðina á húsi Oddfellowreglunnar á Íslandi, rís nýbygging Alþingis þar sem skrifstofur þings og þingmanna verða í framtíðinni. Eggert Keflavíkurflugvöllur hefur verið nánast lokaður í heilt ár, með tilheyrandi áhrifum á efnahagslíf þjóðarinnar og at- vinnuleysi. Á þessum tíma hafa Íslendingar verið duglegir að ferðast, eins og sást um allt land síðasta sumar. Eins hafa íslenskir vetraráfangastaðir verið vinsælir og skíðasvæði full. Nú er hins vegar kominn tími til að huga að opnun lands- ins í kjölfar fjölda bólusetninga um heim allan. Þar bíða óþreyjufullir erlendir gestir, fullir af þrá til að upplifa eitthvað nýtt eða heimsækja aftur sína uppáhaldsstaði. Rétt eins draumur um utanlandsferðir er farinn að kitla okkur. Borgarráð styður við ferðaþjónustuna Á fundi borgarráðs á fimmtudaginn fjöll- uðum við um tvö mál sem snúa að því að styðja ferðaþjónustuna til fyrri styrkleika og vinna saman með fólkinu sem vinnur við ferðaþjón- ustu til að bjóða upp á spennandi áfangastað til að endurnærast, tengjast aftur og upplifa. Annars vegar var kynning á nýju markaðsátaki, sem er ein af Covid- aðgerðum borgarinnar, þ.e að kynna Reykjavík sem ferða- mannastað og verja til þess að lág- marki 150 m.kr. Síðasta sumar var átakinu beint að Íslendingum sem voru hvattir til að sækja Reykjavík heim. Nú virðist sem rétti tíminn sé að koma til að beina átaki að er- lendum gestum. Markaðsátakið hefur verið í undirbúningi und- anfarna mánuði í samvinnu við Ís- landsstofu og aðila innan ferða- þjónustunnar. Áfangastaðurinn Reykjavík Hins vegar fjölluðum við um þá hugmynd að stofna nýja áfangastaða- og markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins fyrir höfuðborgar- svæðið allt sem á að taka til starfa nú um mitt ár. Við vitum að erlendir gestir gera ekki greinarmun á því innan hvaða sveitarfélags þeir eru þegar þeir koma til landsins, ekki frekar en við þegar við fljúgum til Helsinki eða London. Gestir sem koma til landsins fljúga til Reykjavíkur en lenda í Keflavík. Þeir fara í Smáralind, heimsækja víkinga eða skoða hvar nóbelsskáldið bjó og hvar forset- inn býr án þess að gera sér grein fyrir nokkr- um hreppamörkum. Þess vegna er það skynsamlegt fyrir sveit- arfélögin hér að taka höndum saman í upp- byggingu höfuðborgarsvæðisins sem ferða- mannastaðar og markaðssetningu í samstarfi við ferðaþjónustuna. Sjálfstæðan áfangastað, sem hefur upp á margt að bjóða, bæði fyrir gesti og heimamenn í stað þess að vera lend- ingarstaður á leið í náttúru Íslands. Samstarf við alla hagaðila Á höfuðborgarsvæðinu eru mörg stærstu og öflugustu ferðaþjónustufyrirtækin sem hafa mikla möguleika á að eflast enn frekar þegar heimurinn fer aftur á flug. Því er mik- ilvægt að áfangastaðastofa höfuð- borgarsvæðisins verði í samstarfi við alla hag- aðila. Þar munu koma að öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og fylgja þar eftir sókn- aráætlun 2020-2024. Í samstarfinu verða einn- ig Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök verslunar og þjónusta, atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytið og Ferðamálastofa. Öflug ferðaþjónusta upp úr kófinu Vinna við undirbúning áfangastaðastofu, at- hugun á áhuga sveitarfélaga og hagaðila í ferðaiðnaði hófst síðastliðið haust, í kjölfar þess að við samþykktum ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar. Stofnun áfangastaða- stofu höfuðborgarsvæðisins er sameiginlegt verkefni sem nú er komið í sóknaráætlun sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Samtökin munu fylgja því eftir og sjá til þess að öll sveitarfélögin hafi jafna aðkomu að því starfi. Það eru sameiginlegir hagsmunir okkar allra hér á svæðinu að öflug ferðaþjón- usta rísi upp úr kófinu og að fleiri erlendir gestir muni uppgötva að hér er náttúruvænt og grænt borgarumhverfi þar sem menning, sköpun og mannlíf þrífst á höfuðborgar- svæðinu öllu. Eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur » Það eru sameiginlegirhagsmunir okkar allra hér á svæðinu að öflug ferðaþjón- usta rísi upp úr kófinu og að hingað komi fleiri erlendir gestir. Leyfum heiminum að endurnærast í Reykjavík Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Höfundur er formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar. Við höfum rækilega verið á það minnt síðustu ár og mánuði að við búum í lifandi landi. Landi sem er í sífelldri mótun og getur verið harðbýlt. Óveður hafa sett raf- orkukerfi úr skorðum, snjóflóð fallið fyrir vestan og aurskriður fyrir austan. Heimsfaraldurinn Covid-19 hefur ekki aðeins sett daglegt líf á Íslandi úr skorðum heldur um víða veröld. Farald- urinn hefur torveldað samgöngur og vöruflutninga milli landa, svo fátt eitt sé nefnt. Þessa dagana skelfur svo suðvesturhorn landsins vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og þegar þetta er skrifað miklar líkur á að þar verði eldgos. Allir þessir atburðir vekja áleitnar spurn- ingar um þjóðaröryggi og innviði þjóð- arinnar, s.s. orkuöryggi, fæðuöryggi, net- öryggi og hvernig við tryggjum almennt að fólk geti verið öruggt í heimabyggð. Það er brýnt að greina ítarlega grunninnviði sam- félagsins og þá samfélagslegu innviði sem teljast mikilvægir að teknu tilliti til þjóðarör- yggishagsmuna. Þannig má tryggja öryggi þjóðarinnar og sameiginlegan skilning á hvað felst í þjóðaröryggishugtakinu. Sá sameig- inlegi skilningur er lykilforsenda þess að þjóðarsátt ríki um hvernig öryggi lands og þjóðar er best tryggt. Innviðir og þjóðaröryggi Í vikunni fór fram á Alþingi sérstök umræða um innviði og þjóðaröryggi þar sem ég var málshefjandi og forsætisráðherra til andsvara. Við þingmenn rædd- um um nýútkomna skýrslu for- sætisráðherra um efnið og í um- ræðunum komu fram mýmörg sjónarmið sem staðfesta hversu umfangsmikið verkefnið að tryggja þjóðaröryggi er. Í skýrslu forsætisráðherra um innviði og þjóðaröryggi, sem við þingmenn Sjálfstæðisflokksins óskuðum eftir fyrir réttu ári, er vísað í niður- stöður átakshóps um úrbætur á innviðum þar sem segir að einfalda þurfi ferlið vegna und- irbúnings framkvæmda við flutningskerfi raf- orku þar sem einstaka þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir hafi tekið langan tíma í stjórn- sýslumeðferð. Það mál ratar brátt inn í sali Al- þingis. Að sjálfsögðu verður áfram viðurkennt að höfuðábyrgð á framkvæmd skipulagsmála liggi hjá sveitarfélögunum en um leið er áréttað að ríkisvald geti farið með almenna stefnumót- un í skipulagsmálum og ábyrgð eftir atvikum. Fordæmi eru fyrir þessu í nágrannalöndum okkar, s.s. Danmörku og Noregi. Ekkert land tekur upp slík vinnubrögð að ástæðulausu. Öll lönd þurfa að tryggja öryggi sitt með marg- víslegum hætti. Ísland er engin undantekning og við vitum að hér þarf að taka til hendinni. Þingsályktun um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, sem samþykkt var á Alþingi 13. apríl 2016, er að mati okkar þingmanna Sjálfstæð- isflokksins sem óskuðum eftir skýrslunni ekki nógu ítarleg varðandi þessa þætti. Það er mik- ilvægi samgönguinnviða, raforku- og fjar- skiptakerfisins, netöryggis og fæðuöryggis með tilliti til öryggis borgaranna og samfélagsins alls. Við teljum því nauðsynlegt að öryggi samfélags- legra innviða verði metið með tilliti til þjóðarör- yggis landsins og grunnur lagður að heilsteyptri löggjöf varðandi öryggismál þjóðarinnar. Ég tel að gott samstarf allra sem koma að grunninnviðum sem varða þjóðaröryggi sé lykill- inn að farsælli stefnu og þarna þurfum við að leggja minni hagsmuni til hliðar fyrir meiri. Við megum ekki festast í hugsunarhætti stjórnmála liðinnar tíðar og festa tennurnar í gömlu þrætu- epli. Þjóðaröryggishagsmunir eru hagsmunir þjóðarinnar allrar. Hagsmunir einstakra aðila geta aldrei vegið þyngra. Í lokaorðum skýrslu forsætisráðherra segir til dæmis að grunn- innviðir lands og þjóðar séu ýmist á forræði einkaaðila, ríkis eða sveitarfélaga. Þau sjónar- mið hafa komið fram að ríkið fari með skipu- lagsvald vegna grunninnviða sem varða þjóð- aröryggi og landið í heild. Ný heimsmynd Við lifum á nýrri öld í nýrri heimsmynd þar sem nútíminn krefst þess að við séum alltaf skrefinu á undan. Heimurinn fer síminnkandi vegna tækninýjunga og loftslagsbreytingar vofa yfir. Lýðræði og stjórnskipulagi Vesturlanda stafar hætta af netárásum og afskiptum annarra landa. Norðurslóðir geta sett Ísland í nýtt al- þjóðlegt samhengi á þessari öld þar sem stór- veldin eiga ríka hagsmuni og ekki hægt að ganga að því sem vísu að þróunin á norðurslóðum verði friðsamleg til langrar framtíðar. Hver verður staða Íslands ef í harðbakkann slær? Ég er hér að draga upp dökkar myndir og sem betur fer rætast svörtustu sviðsmyndir sjaldnast. Ísland er auðvitað friðsælt land og ég trúi að allt gott vaki yfir því. Það breytir hins vegar ekki því að Alþingi og ríkisstjórn bera höfuðábyrgð á öryggi þjóðarinnar. Það er fortakslaus skylda stjórnvalda að tryggja sem best öryggi lands og þjóðar. Þá þurfum við að hugsa til þess sem undir öðrum kringumstæðum væri óhugsandi. Sú ábyrgð hvílir þungt á herðum okkar þing- manna og undan þeirri skyldu megum við aldrei skorast. Eftir Njál Trausta Friðbertsson » Það er mikilvægi sam- gönguinnviða, raforku- og fjarskiptakerfisins, netöryggis og fæðuöryggis með tilliti til öryggis borgaranna og sam- félagsins alls. Njáll Trausti Friðbertsson Þjóðaröryggishagsmunir vega þyngst Höfundur er þingmaður, varaformaður utanrík- ismálanefndar og formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins. ntf@althingi.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.