Morgunblaðið - 06.03.2021, Síða 27
MINNINGAR 27
Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2021
AKUREYRARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta í Akureyrarkirkju kl. 11. Brúðuleikhús og
sunnudagsskólasyrpa. Atriði úr Grís, sýningu
Vasaleikhúss Verkmenntaskólans. Ylfa Krist-
jánsdóttir syngur lag. Yngri barnakór Akureyr-
arkirkju syngur. Stjórnandi Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir. Prestur er sr. Hildur Eir
Bolladóttir. Grímuskylda er í kirkjunni, fyrir full-
orðna.
ÁRBÆJARKIRKJA | Æskulýðsguðsþjónusta
kl. 11 í tilefni Æskulýðsdags Þjóðkirkjunnar.
Fermingarbörn vorsins eru sérstaklega boðin
velkomin. Söngur, gleði og gaman. Baldur
Björn Arnarsson fermingarbarn syngur. Sr.
Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og Ingunn Björk
Jónsdóttir djákni þjóna. Birkir Bjarnason leikur
á flygilinn. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í
safnaðarheimilinu í umsjá Andreu Önnu Arn-
arsdóttur og Thelmu Rósar Arnarsdóttur.
ÁSKIRKJA | Sameiginleg fjölskylduguðsþjón-
usta sóknanna í Laugardalsprestakalli kl. 11 í
Langholtskirkju. Helgihald fellur því niður í Ás-
kirkju.
ÁSTJARNARKIRKJA | Æskulýðsdagur Þjóð-
kirkjunnar.
Guðsþjónusta kl. 17. Barnakór kirkjunnar
syngur undir stjórn Helgu Loftsdóttur. Þórdís
Linda Þórðardóttir, sigurvegari Samfés 2020,
syngur. Undirleik annast Davíð Sigurgeirsson
og prestur er sr. Kjartan Jónsson. Grímuskylda
og eins metra regla. Fólk skrái sig við komu til
kirkju.
BESSASTAÐAKIRKJA | Æskulýðsguðsþjón-
usta kl. 11. Lærsiveinar hans leiða sönginn,
Ástvaldur Traustason Sigrún Ósk og sr. Hans
Guðberg.
Kl. 16, frú Agnes Sigurðardóttir setur sr. Hans
Guðberg Alfreðsson inn í embætti prófasts
Kjalarnessprófastsdæmis. Álftanesskórinn,
organisti Ástvaldur Traustason.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Æskulýðsguðsþjón-
usta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson þjónar
ásamt Steinunni Leifsdóttur og Steinunni Þor-
bergsdóttur. Organisti er Örn Magnússon. Al-
þjóðlegi söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Toshiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa og sunnu-
dagaskóli kl. 11.
Notaleg samvera fyrir alla fjölskylduna.
Sóley Adda og Jónas Þórir leiða stundina
ásamt prestum.
Guðsþjónusta á æskulýðsdegi sunnudaginn
7. mars kl. 13. Ath. breyttan tíma. Kór Bú-
staðakirkju syngur og kantor Jónas Þórir er við
hljóðfærið. Fermingarbörn og messuþjónar að-
stoða. Sr. Eva Björk messar og þjónar ásamt
sr. Pálma. Fundur með fermingarbörnum og
forráðamönnum eftir messu. Munum hand-
þvott og grímur.
DIGRANESKIRKJA | Sunnudaginn 7. mars
verður æskulýðssdagurinn haldinn hátíðlegur
með fjölskyldumessu í Digraneskirkju kl. 11,
sr. Helga Kolbeinsdóttir og sr. Karen Lind
Ólafsdóttir leiða stundina. Ásdís Þorvaldsdótt-
ir leiðir söng. Á sama tíma er sunnudagaskóli
undir stjórn Höllu Marie æskulýðsfulltrúa og
Söru og Ásdísarleiðtoga sunnudagaskólans.
DÓMKIRKJAN | Prestsvígsla kl. 11. Biskup
Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, vígir, séra
Sveinn Valgeirsson þjónar, Dómkórinn og Kári
Þormar dómorganisti.
Þau sem vígjast eru: Mag. theol. Margrét Lilja
Vilmundardóttir, vígist til þjónustu við Fríkirkj-
una í Hafnarfirði, Mag. theol. Sigurður Már
Hannesson, vígist til þjónustu við Kristilegu
skólahreyfinguna.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og pre-
dikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur organista. Kaffisopi eftir
stundina. Meðhjálpari Helga Björg Gunnars-
dóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl.17. Margrét Lilja Vil-
mundardóttir predikar og tekur formlega við
starfi sem prestur við kirkjuna. Ásamt henni
þjóna prestarnir Einar Eyjólfsson og Sigurvin
Lárus Jónsson og Sigríður Valdimarsdóttir
djákni. Tónlistarstjóri er Örn Arnarson.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta
sunnudaginn 7. mars kl. 14, séra Hjörtur
Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir
stundina.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við
Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunn-
arssyni. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra
eru hvött til að mæta.
GARÐAKIRKJA | Klassísk messa kl. 14. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir
altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og
organisti er Jóhann Baldvinsson. Allir velkomn-
ir.
GLERÁRKIRKJA | Messa með altarisgöngu
kl. 11. Prestur er sr. Sindri Geir Óskarsson.
Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valamars
Väljaots organista. Sunnudagaskóli kl. 11,
sameiginlegt upphaf í messu.
GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 7.
mars sem er æskulýðsdagurinn verður fjöl-
skylduguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11.
Umsjón hafa sr. Sigurður Grétar Helgason,
Ásta Jóhanna Harðardóttir og Hólmfríður
Frostadóttir. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng.
Organisti er Hákon Leifsson.
GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG
| Sunnudaginn 7. mars verður guðsþjónusta í
Kirkjuselinu.
Guðþjónustan hefst kl. 13. Sr. Guðrún Karls
Helgudóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox
Populi leiðir söng. Undirleikari er Hilmar Örn
Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Æskulýðsdagurinn. Fermingarbörn vorsins
þjóna ásamt messuþjónum og sr. Maríu G.
Ágústsdóttur. Ásta Haraldsdóttir kantor og
Kirkjukór Grensáskirkju leiða líflegan söng.
Stuttur fundur með foreldrum fermingarbarna
eftir stundina. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl.
12. Fimmtudagur: Núvitundarstund kl. 18.15-
18.45, einnig á netinu.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Fjöl-
skylduguðsþjónusta sunnudaginn 7. mars kl.
11.
Prestar sr. Karl V. Matthíasson og sr. Leifur
Ragnar Jónsson. Tónlistarflutningur í umsjá
barnakórs Guðríðarkirkju, stjórnandi Ásbjörg
Jónsdóttir tónskáld. Kirkjuvörður Guðný Ara-
dóttir. Hvetjum fermingarbörn og foreldra
þeirra að mæta.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11 á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar. Fjöl-
breytt dagskrá fyrir börn sem fullorðna. Barna-
og unglingakórar kirkjunnar syngja og ferming-
arbörn lesa. Sr. Jónína Ólafsdóttir boðin vel-
komin sem nýr sóknarprestur og leiðir hún
stundina ásamt Jóni Helga, Bylgju Dís, Helgu
og Guðmundi. Sunnudagaskólinn verður í
safnaðarheimilinu. Vegna sóttvarnarreglna
þarf að skrá við kirkjudyr nöfn og kt. allra
þeirra sem eru fæddir 2006 og síðar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Æskulýðsdagur þjóð-
kirkjunnar: Fjölskylduguðþjónusta kl. 11 í
umsjá sr. Irmu Sjafnar Óskarsdóttur og Rósu
Árnadóttur.
Fermingarbörn og messuþjónar aðstoða. Fiðlu-
nemendur Lilju Hjaltadóttur úr Allegro Suzuki-
tónlistarskólanum koma fram. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti Björn Steinar Sólbergsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11 á Æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar. Stúlkna-
kór Reykjavíkur syngur undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur og Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur.
Organisti er Guðný Einarsdóttur og prestur er
sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. Miðvikudagur
kl. 20 - Passíusálmarnir að fornu og nýju í tón-
listarflutningi Kordíu, kórs Háteigskirkju og
Guðnýjar Einarsdóttur, organista. Sr. Eiríkur Jó-
hannsson og sr. Helga Soffía Konráðsdóttir
lesa ritningarlestra á undan hverjum sálmi.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Væntanlegt fermingarbarn borið til skírnar.
Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng, sr. Ninna Sif
Svavarsdóttir þjónar fyrir altari. Fundur með
fermingarbörnum og foreldrum að guðsþjón-
ustu lokinni.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam-
koma með lofgjörð og fyrirbænum kl. 11. Ólaf-
ur H. Knútsson prédikar.
KÁLFATJARNARKIRKJA | Æskulýðsdagur
Þjóðkirkjunnar.
Guðsþjónusta kl. 14. Ungmennakórinn Vox
Felix syngur undir stjórn Arnórs Vilbergssonar.
Ásamt honum annast Davíð Sigurgeirsson
undirleik. Prestur er sr. Kjartan Jónsson.
Grímuskylda og eins metra regla.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudaginn 7. mars
kl. 20 verður Mottumarsmessa í Keflavíkur-
kirkju í samstarfi við Krabbameinsfélag Suð-
urnesja. Séra Fritz Már þjónar fyrir altari. Arnór
Vilbergsson organisti ásamt körlum úr Kirkju-
kór Keflavíkurkirkju færa okkur söng og góða
tóna. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru
sérstaklega hvött til að mæta. Miðvikudaginn
10. mars kl. 12 verður kyrrðarstund í Keflavík-
urkirkju.
KIRKJA heyrnarlausra | Messa verður í
kirkju heyrnarlausra í Grensáskirkju 7. mars
kl. 14.
Táknmálskórinn syngur undir stjórn Eyrúnar
Ólafsdóttur.
KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og æskulýðs-
guðsþjónusta kl. 11 á Æskulýðsdegi Þjóðkirkj-
unnar. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina
ásamt Hjördísi Perlu Rafnsdóttur guðfræðingi
sem flytur hugvekju. Félagar úr Skólakór Kárs-
ness syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvins-
dóttur. Fermingarbörn vetrarins taka þátt í
helgihaldinu ásamt sunnudagaskólanum.
LANGHOLTSKIRKJA | Sameiginleg fjöl-
skyldumessa Ás- og Langholtskirkna á æsku-
lýðsdaginn 7. mars kl. 11 í Langholtskirkju.
Krúttakórinn og sunnudagaskólabörn eru sér-
staklega boðin í fjölskyldumessuna sem sr. Al-
dís Rut Gísladóttir og Jóhanna María Eyjólfs-
dóttir djákni leiða ásamt Sunnu Karen
Einarsdóttur og Björgu Þórsdóttur kórstjórum.
LAUGARNESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta í tilefni af æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar
kl. 11. Sr. Hjalti Jón Sverrisson stýrir stundinni
ásamt Elísabetu Þórðardóttur organista.
Mánudaginn 8. mars: Kyrrðarkvöld kl. 20.
Kirkjan opnuð kl. 19.30.
Miðvikudaginn 10. mars: Foreldrasamvera í
safnaðarheimilinu á milli kl. 10 og 12.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Boðið verður upp á stund við hæfi 6-9
ára barna.
Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju syngur
undir stjórn Óskars Einarssonar, sem að
vanda spilar einnig á píanóið, en auk Óskars
spila bassaleikarinn Páll Elvar Pálsson og bás-
únusnillingurinn Rolf Gaedeke.
Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
Athöfninni verður streymt bæði á lindakirkja.is
og á Facebook-síðu Lindakirkju. Allir velkomnir
meðan sóttvarnarreglur leyfa.
NESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta með
léttum brag kl. 11 á Æskulýðsdegi Þjóðkirkj-
unnar. Drengjakór Reykjavíkur syngur undir
stjórn Þorsteins F. Sigurðssonar. Fermingar-
börn og starfsfólk barna- og æskulýðsstarfs
aðstoða í helgihaldi. Undirleikari er Ari Agn-
arsson og prestur sr. Steinunn Arnþrúður
Björnsdóttir.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11, umsjón hafa Sigríður Gunnarsdóttir,
Eva María Rúnarsdóttir og Rögnvaldur Val-
bergsson.
Ung-messa kl. 20. Létt kvöldmessa í sam-
vinnu við Nemendafélag FNV á æskulýðsdegi
kirkjunnar. Ungmenni í FNV sjá um tónlist og
talað orð, hugleiðingu flytur formaður Nem-
endafélagins, Birgitta Björt Pétursdóttir.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Óli og Bára leiða stundina og Tómas spilar á
píanó. Guðsþjónusta kl. 13. Sr. Ólafur Jóhann
Borgþórsson predikar, félagar úr Kór Selja-
kirkju leiða safnaðarsöng, organisti: Tómas
Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Afhelgun alls? Hver eru áhrifin í
samfélaginu? Kristrún Heimisdóttir lögfræð-
ingur, talar.
Fjölskylduguðsþjónusta á æskulýðsdaginn kl.
11. Dr. Jón Ásgeir Sigurvinsson héraðsprestur
þjónar ásamt Sveini Bjarka Tómassyni og leið-
togum. Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu eftir
athöfn.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu-
dag kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprest-
ur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason.
STÓRUBORGARKIRKJA Grímsnesi |
Bæna- og kyrrðarstund þriðjudagskvöld 9.
mars kl. 20.30. Sr. Egill Hallgrímsson leiðir
stundina. Kyrrlát íhugunarstund við kertaljós.
Nánari upplýsingar á sregill.net
VÍDALÍNSKIRKJA | Æskulýðsguðsþjónusta
kl. 11. Barnakórar Vídalínskirkju og unglinga-
kórinn syngja undir stjórn Davíðs Sigurgeirs-
sonar. Matthildur Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi
leiðir stundina. Brúðuleikrit og biblíufræðsla.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10. Sjá
gardasokn.is.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Fjöl-
skylduhátíð kl. 11. Barnakór kirkjunnar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar organista og Stef-
án Már Gunnlaugsson héraðsprestur þjónar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Breiðabólstaðarkirkja í Fljótshlíð
Vandræðagangur
ríkisapparatsins í
kringum vondan
rekstur, rangar
ákvarðanir og sam-
keppnishamlandi
framferði ríkisfyr-
irtækisins Íslands-
pósts hefur verið
sögulegur. Ekki átti
greinarhöfundur þó
endilega von á því að meðvirknik-
ast stjórnmála- og embættismanna
færi að snúast um grundvallar-
atriði í stjórnskipan ríkisins fyrr
en hann las Morgunblaðið fyrr í
vikunni.
Þar hélt samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytið því nefnilega
fram, í skriflegu svari til blaðsins,
að það skýra ákvæði póstlaganna
að verðskrá fyrir alþjónustu skuli
taka mið af raunkostnaði við að
veita þjónustuna væri „ekki að öllu
leyti virkt“. Þetta væri vegna þess
að Alþingi hefði bætt inn í lögin
ákvæði um að sama verð ætti að
vera á alþjónustu um allt land.
Nú er það svo að á Íslandi gildir
þrískipting ríkisvaldsins eins og í
öðrum vestrænum lýð-
ræðis- og réttar-
ríkjum. Handhafar
framkvæmdavaldsins
setja ekki lögin og
geta ekki ákveðið að
eigin geðþótta að víkja
þeim til hliðar, í heild
eða að hluta. Það virð-
ist þó hafa gerzt í
þessu tilviki.
Eftirlitsstofnunin
hlýðir túlkun
ráðuneytisins
Greinarhöfundur furðaði sig á
því í grein sem birtist hér í
blaðinu í síðustu viku, að Póst- og
fjarskiptastofnun virtist hafa
gleymt áðurnefndu lagaákvæði. Í
febrúar á síðasta ári krafði PFS
Íslandspóst um að sýna fram á að
ný gjaldskrá fyrir pakkasendingar
stæðist ákvæði laganna um raun-
kostnað. Ári síðar birti stofnunin
rúmlega 40 blaðsíðna ákvörðun um
greiðslur til Póstsins, þar sem
undirverðlögð pakkagjaldskráin
kemur mjög við sögu, án þess að
nefna þetta grundvallaratriði lög-
gjafarinnar einu orði!
Það er nú skýrara en áður að
eftirlitsstofnun, sem á að vera
sjálfstæð í störfum sínum, hefur
látið ráðuneytið segja sér að búið
sé að taka hluta af lögum landsins
úr sambandi og hún þurfi ekki að
líta til þeirra. Ráðuneytið stað-
festir opinberlega að þetta sé
skilningur þess. Það er vandséð
hvernig ákvörðun PFS á að geta
staðið óhögguð – að minnsta kosti
hlýtur að vera ákaflega hæpið að
Alþingi samþykki rúmlega 500
milljóna króna framlag til Pósts-
ins af fé skattgreiðenda á grund-
velli hennar. Umboðsmaður Al-
þingis hefur væntanlega einhvern
tímann hnippt í stjórnsýsluna af
minna tilefni.
Eins og Hörður Felix Harð-
arson lögmaður útskýrir ágætlega
í viðtali í blaðinu í gær, ber að
virða ákvæði í lögum, jafnvel þótt
hægt sé að halda því fram að
ákveðnir erfiðleikar séu á að
framfylgja þeim – sem virðist þó
ekki vera í þessu tilviki, enda lög-
in skýr. „Ef það á að vera ein og
sama gjaldskráin fyrir allt land
hlýtur að þurfa að horfa til með-
alkostnaðar í þeirri dreifingu og
horfa þá þannig á verðlagn-
inguna,“ segir Hörður og er óhætt
að taka undir þá túlkun.
Boltinn er hjá ráðherranum
Ef samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðuneytið og undirstofnanir
þess telja að vankantar séu á
póstlögunum af hálfu Alþingis
hlýtur Sigurður Ingi Jóhannsson
ráðherra að flytja frumvarp hið
snarasta um breytingu á lögunum.
Það er hin stjórnskipulega rétta
leið, í stað þess að ráðherrann og
undirmenn hans grípi fram fyrir
hendurnar á löggjafanum. Það er
svo sjálfstætt álitaefni að þegar
ráðuneytið fór í að velja hvaða
lögum ætti að fara að og hvaða
lögum ekki varð fyrir valinu sú
túlkun sem hefur hvað neikvæðust
áhrif á samkeppni og hagsmuni
neytenda.
Setur framkvæmda-
valdið lögin?
Eftir Ólaf
Stephensen
Ólafur Stephensen
»Handhafar fram-
kvæmdavaldsins
setja ekki lögin og geta
ekki ákveðið að eigin
geðþótta að víkja þeim
til hliðar
Höfundur er framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda.
Þegar innviða-
fjárfestingar eru skipu-
lagðar er nauðsynlegt
að hugsa til langs tíma.
Eins árs gildistími fjár-
laga og fjárhagsáætlana
sveitarfélaga dugir
ekki. Í Noregi hefur
verið farin sú leið að op-
inberir aðilar hafa gert
með sér samgöngu-
sáttmála. Fyrsti sátt-
málinn var gerður í Björgvin fyrir um
35 árum. Ósló er nú á sínum þriðja sátt-
mála. Með þeim ná allir, sem þurfa að
koma að samgöngumálum, sér saman
um framtíðarsýn. Ákveðið er í hverju
verði fjárfest og hvenær. Ekki eru
teknar u-beygjur eftir kosningar, þótt
auðvitað sé nauðsynlegt að endurskoða
áætlunina ef aðstæður breytast. Óhætt
er að segja að reynslan í Noregi hafi
verið góð.
Árið 2019 skrifuðu ríkið og sveit-
arfélögin á höfuðborgarsvæðinu undir
sáttmála um samgöngur á svæðinu til
15 ára. Hann er sá fyrsti á Íslandi
þannig að það má segja að brotið hafi
verið blað í sögu samgöngumála á Ís-
landi með undirritun hans. Ákveðið var
að stofna fyrirtæki um fjárfesting-
arnar, Betri samgöngur ohf. Ráðgert
er að fjárfesta fyrir um 52 milljarða í
stofnvegum, 50 milljarða í borgarlín-
unni, átta milljarða í virkum ferðamát-
um, fyrir gangandi og hjólandi, og sjö
milljarða í umferðarstýringu og öryggi.
Markmiðin eru greiðari samgöngur og
fjölbreyttari ferðamátar, aukið öryggi,
minni útblástur, gott samstarf og skil-
virk framkvæmd.
Fjölgum valkostum
Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgar
að meðaltali um 90 í hverri viku. Án
metnaðarfullra fjárfest-
inga eins og þessara er
fyrirséð að umferðartafir
myndu aukast enn meira
en ella. Boðið er upp á
raunverulegt valfrelsi
um samgöngumáta.
Kannanir sýna t.d. að
margir vilja gjarnan fara
fleiri ferðir hjólandi en
þeir gera nú. Á sama
tíma er ljóst að einkabíll-
inn verður áfram vinsæll
ferðamáti og því þarf leið
hans að vera greið. Hraðvagnar í sér-
rými, eins og borgarlínan, eru sú leið
sem mörg sambærileg borgarsvæði
hafa farið til að stytta ferðatíma með
góðum árangri.
Við þurfum að lyfta umræðu um
samgöngumál upp úr þeim skotgröfum
sem hún fellur stundum í, hvort sem
það er á milli svæða annars vegar eða
mismunandi ferðamáta hins vegar.
Samgöngur mynda heildstætt kerfi þar
sem fjárfesting fyrir einn ferðamáta
léttir álagi af öðrum. Við ættum því að
fagna fjárfestingu í öllum ferðamátum,
þótt við notum þá e.t.v. ekki alla sjálf.
Ríkið og sveitarfélögin eru búin að
leggja til áætlun og fjármagn. Nú er
það okkar að hrinda þessu í fram-
kvæmd. Ef vel tekst til verður ferða-
tími sem flestra styttri en ella sem skil-
ar meiri frítíma og auknum lífsgæðum.
Eftir Davíð
Þorláksson
Davíð Þorláksson
» Við ættum því að
fagna fjárfestingu í
öllum ferðamátum, þótt
við notum þá e.t.v. ekki
alla sjálf.
Höfundur er framkvæmdastjóri Betri
samgangna ohf.
david@betrisamgongur.is
Sátt um samgöngur