Morgunblaðið - 06.03.2021, Side 39
Fjölskylda
Eiginkona Sigmundar Ernis er
Elín Sveinsdóttir, f. 25.2. 1963 í
Reykjavík, förðunarfræðingur að
mennt frá París, en hefur lengst af
unnið sem útsendingarstjóri á Stöð 2
og RÚV og framleiðandi og upp-
tökustjóri mikils fjölda sjónvarps-
þátta á vegum SERES hugverka-
smiðju ehf. Þau eru búsett á Laufás-
vegi í Reykjavík. Foreldrar Elínar
eru hjónin Auður Sigurborg Vé-
steinsdóttir bankastarfsmaður, f.
29.8. 1939, d. 30.12. 2015 og Sveinn
Viðar Jónsson rafvélavirkjameistari,
f. 5.12. 1939. Fyrri eiginkona Sig-
mundar Ernis er Bára Aðalsteins-
dóttir þroskaþjálfi, f. 24.2. 1959.
Börn Sigmundar Ernis og Báru
eru Eydís Edda, f. 4.1. 1985, d. 23.3.
2009, og Oddur, tónlistarmaður og
tónskáld í Reykjavík, f. 17.2. 1987.
Börn Sigmundar Ernis og Elínar
eru Birta, f. 29.8. 1990, stjórnmála-
og aðferðafræðingur hjá BBC í
Lundúnum, maki: Daníel Guðjóns-
son, viðskiptafræðingur, dóttir
þeirra er Ragnhildur Edda, f. 2015;
Rúnar, f. 13.3. 1992, læknisverk-
fræðingur í Stokkhólmi, maki: Pia
Desai, doktorsnemi í sjúkraþjálfun;
Ernir, f. 24.2. 1996, ferlasérfræð-
ingur hjá Vodafone í Reykjavík,
maki: Saga Ísafold Arnarsdóttir,
þjónustufulltrúi hjá Vodafone;
Auður, f. 10.11. 2004, nemi við
Kvennaskólann í Reykjavík.
Systkini Sigmundar Ernis eru
Gunnar Örn Rúnarsson, f. 4.6. 1956,
smiður á Akureyri; Sigrún Rúnars-
dóttir, f. 3.6. 1957, hjúkrunarfræð-
ingur á Akureyri; Guðrún Sigfríð
Rúnarsdóttir, f. 4.4. 1967, skrifstofu-
maður á Akureyri.
Foreldrar Sigmundar Ernis:
Hjónin Helga Sigfúsdóttir, f. 30.12.
1935, d. 14.7. 2017, húsmóðir og
skrifstofumaður á Akureyri, og
Rúnar Heiðar Sigmundsson, f. 8.4.
1933, viðskiptafræðingur á Akur-
eyri.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
Guðmundur Guðmundsson
bóndi á Melum
ElísabetGuðmundsdóttir
bóndi á Melum
Sigmundur Guðmundsson
bóndi á Melum og síðar starfsmaður KEA á Akureyri
Sigrún Guðmundsdóttir
bóndi á Melum í Trékyllisvík
og síðar húsmóðir á Akureyri
Rúnar Heiðar Sigmundsson
viðskiptafræðingur á Akureyri
Guðmundur Ásgrímsson
sjómaður í Ólafsvík
Vigdís Bjarnadóttir
húsmóðir í Ólafsvík
Kristján Helgason
verkamaður á Akureyri
Helga Jóhanna Bjarnadóttir
húsmóðir á Akureyri
Sigfús Kristjánsson
verkamaður á Akureyri
Guðrún Vilborg Gísladóttir
húsmóðir og verkakona á Akureyri
Gísli Þorleifsson
bóndi á Hólshjáleigu á Héraði
Jónína Ólafsdóttir
verkakona á Héraði
Úr frændgarði Sigmundar Ernis Rúnarssonar
Helga Sigfúsdóttir
húsmóðir og skrifstofumaður á Akureyri
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. MARS 2021
er fáanleg í öllum helstu apótekum,
barnavöruverslunum, Hagkaup,
Fjarðarkaup og á Heimkaup.is
Bio oil er háþróuð húðolía
Bætir ásýnd húðslita og öra
Hefur gríðarleg áhrif á öldrun og raka húðar
Dregur úr líkum á húðslitum
Hægt er að finna nánari upplýsingar og niðurstöður úr klínískum rannsóknum inn á bio-oil.com.
„ekki þetta net!”
„FÓLK ER FARIÐ AÐ KVARTA UNDAN ÞVÍ
HVERSU OFBELDISFULLAR MYNDIRNAR Á
HELLISVEGGJUNUM ERU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að safna minningum
en ekki eignum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
DJÖ!
HEF EKKI
HUGMYND
ÉG TÝNDI ENN EINUM
SOKKI Í ÞURRKARANUM!
EKKI ÉG
HELDUR
HVERT FARA ÞEIR
EIGINLEGA?
MÉR FINNST
ÉG EIGA
STÖÐUHÆKKUN
SKILIÐ!
ÉG ER SAMMÁLA! HÉR EFTIR LÍT ÉG Á ÞIG SEM MANN
EN EKKI MÚS!
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Brýnsla þessi athöfn er.
Aðeins lítið pennastrik.
Oft í réttum fram hann fer.
Á framkvæmdinni talsvert hik.
Sigrún á Sjónarhóli á þessa
lausn:
Dró á hnífinn drengurinn,
drátthagur er málarinn.
Dragðu féð í dilkinn þinn,
dragast lát ei verknaðinn.
Sigmar Ingason svarar:
Á hverfisteini bitjárnin má brýna
(=draga).
Baksa drátthagir við strik og liti.
Í réttum bændur draga í dilka sína.
Dregst á langinn brúargerðin fína
enda er þar ekkert gert af viti.
Ekki er gott að draga úr hófi dráttinn,
drífum okkur í háttinn.
Eysteinn Pétursson svarar „án
undandráttar“:
Dreg ég ljá svo dugi mér.
Drátthagur er margur ver.
Í réttum dráttur fram víst fer.
Finnst á mörgu dráttur hér.
Helgi Þorláksson á þessa lausn:
Þú dregur á, það dráttur er,
dráttur líka pennastrik,
í drætti fé í dilka fer,
dráttur getur verið hik.
Guðrún B. leysir gátuna þannig:
Fyrsti dráttur vandi var.
Á veikan drátt í letri.
Í rétt dreg fé. Við fjárdráttar-
framkvæmd dráttur betri.
„Lausnin vill fá að vera svona
þessa vikuna,“ segir Helgi R. Ein-
arsson:
Dráttur er að draga ljá.
Dráttur pennastrikið.
Við drátt í rétt ei drolla má.
Drætti veldur hikið.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Með drætti hvet ég deigan ljá.
Dráttur lína blaði á.
Í rétt má dilkadráttinn sjá.
Dráttur hik á verki þá.
Þá er limra:
Fúsi var frækinn við sláttinn
og fór alltaf seint í háttinn,
hann var þjarkur á sjó,
en þorsk aldrei dró,
og þó var hann iðinn við dráttinn.
Síðan er ný gáta:
Stefja föndur fæst ég við,
fær mig ekkert hamið,
grátt nú kárnar gamanið,
gátu enn hef samið:
Reikistjarna á ferð og flugi.
Fé til beitar hygg að dugi.
Gróðurmoldin gæðaríka.
Getur óðal verið líka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sérhver fylgir sínum drætti