Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Page 6
Ávarp formanns
ÞRÓTTAR
Á þessum tímamótum þegar
Knattspyrnufélagið Þróttur hefur
lagt að baki 40 ár er margs að
minnast. Okkur er þó fyrst og
fremst í huga þakklæti til frum-
herjanna sem lögðu á sig mikið og
óeigingjarnt starf á upphafsárun-
um. Saga Þróttar er baráttusaga.
Þrátt fyrir aðstöðuleysi tókst að
halda starfinu gangandi og kom
þar til samheldni félagsmanna og
dugmiklir forystumenn.
Það var ekki fyrr en á 15 ára
afmælinu 1964, sem félaginu var
úthlutað félagssvæði inni í
Kleppsholti, fjarri upprunasínum.
Það má segja að við þennan flutn-
ing félagsins hefjist nýtt tímabil í
sögu þess, þó byggt sé á gömlum
grunni af Grímsstaðaholtinu. Á
þessu ári eru því liðin 25 ár frá
úthlutun svæðisins og fyrst nú sjá-
um við fyrir endann á vallarupp-
byggingunni. Það er þó ljóst að
enn mun líða tími áður en hafist
verður handa við byggingu
íþróttahúss á svæðinu.
Á 30 ára afmæli félagsins 1979
var stórt og glæsilegt vallarhús og
félagsheimili vígt og núna tíu
árum síðar er vígður grasvöllur og
byggð áhorfendastæði og félags-
svæðið girt. Þá er einnig hafin gerð
tennisvalla, sem ráðgert er að
ljúka árið 1990. Félagið fékk út-
hlutað viðbótarsvæði í Laugar-
dalnum nú á afmælisárinu, þar
sem ráðgert er að byggja æfinga-
velli fyrir knattspyrnu.
Forsenda árangurs í íþróttum
er að góð aðstaða sé fyrir hendi.
Þegar hún hefur verið byggð upp
geta menn lagt krafta sína enn
frekar í það að standa myndarlega
að rekstrinum sem er nú að verða
umfangsmeiri með hverju ári sem
líður.
Árangur félagsins s.l. 15 ár, þ.e.
frá útgáfu síðasta afmælisblaðs,
hefur þegar á heildina er litið verið
góður, þó auðvitað hafi skipst á
skin og skúrir. Árangur blakdeild-
ar félagsins rís hæst og má telja víst
að hann sé einn sá glæsilegasti
sem nokkur deild í hópíþróttum
getur státað af.
Það sem veldur okkur forsvars-
mönnum félagsins nú auknum
áhyggjum er stöðugt minnkandi
áhugi fólks á félagsstörfum. Það er
nú orðin staðreynd að fólk vill í
auknum mæli nýta takmarkaðar
frístundir sínar fyrir sjálft sig til
íþrótta og útiveru en síður að stan-
da í forsvari í erilsömu sjálfboða-
starfi innan íþróttafélaganna. Því
verður ekki hjá því komist að reka
félagið í auknum mæli eins og
hvert annað fyrirtæki með laun-
uðu starfsliði.
íbúar Voga-, Heima- og Lang-
holtshverfanna geta verið stoltir af
sínu íþróttafélagi, því félagið og
æskulýðsmiðstöðin eru mið-
punktur félagsstarfs barna og
unglinga í hverfinu. Við viljum
byggja þetta íþróttafélag upp
undir einkunnarorðunum:
ÁBYRGÐ - AGI - ÁSTUNDUN.
Ég er ekki í minnsta vafa um að
framtíð þessa félags, Knattspyrnu-
félagsins Þróttar, er björt. En
gleymum því ekki að það er undir
okkur sjálfum komið hvernig til
tekst.
Tryggvi E. Geirsson
formaður Þróttar