Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Qupperneq 18

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Qupperneq 18
18 Guðjón I. Eiríksson þjálfaði 3. og 5. flokk og kom báðum flokk- unum í úrslit íslandsmótsins, þar sem 3. flokkur hafnaði í 3.-4. sæti. Fjórði flokkur var mjög erfiður þjálfaranum Þór Albertssyni, bæði vegna fámennis og áhugaleysis drengjanna. Þá var framkoma sumra leikmanna langt frá því að vera til sóma. Sjötti flokkur var mjög fjöl- mennur undir stjórn Lofts Ólafs- sonar og áhugi mikill. Guðmundur Erlingsson var kosinn "Knattspyrnumaður Þrótt- ar 1985" og 3. flokkur var besti flokkurinn og hlaut Middlesex Wanderers-bikarinn. Egill Ö. Einarsson, Magnús Gunnarsson og Karl Jónsson léku með Drengjalandsliðinu og var Egill fyrirliði liðsins. Þar að auki var Egill tilnefndur af KSÍ sem full- trúi æskunnar á íslandi og fór til Parísar í boði UEFA. Þar voru sam- an komnir tveir fulltrúar allra að- ildarríkja UEFA. Hinn fulltrúi ís- lands var Rúnar Kristinsson úr KR en fararstjóri þeirra var Helgi Þor- valdsson. Þeir Kristján Jónsson, Loftur Ólafsson og Pétur Arnþórsson léku með U-21 landsliðinu við góðan orðstír. Stjórn deildarinnar skipuðu: Ómar Siggeirsson formaður, Jón H. Ólafsson, Eiríkur Þorláksson, Björgvin Hólm Jóhannesson, Ingvi H. Magnússon og Hilmar Hansson. 1986 Enginn sigur vannst í mótum á árinu og enginn flokkur virtist ná- lægt því. Meistaraflokkur bjargaði sér frá falli í 3. deild með frábærum síðari hluta en eftir þann fyrri virtist ekk- ert geta komið í veg fyrir fall. Þjálf- ari flokksins var Theódór Guð- mundsson. Annar flokkur vann sér aftur sæti í A-riðli að ári og var það eini ljósi punkturinn í frammistöðu flokkanna. Þjálfari var Gunnar R. Ingvarsson. Þjálfari 3. flokks var Guðjón I. Eiríksson sem og 5. flokks. Fjórða flokk þjálfaði Gísli Sváfnisson og 6. flokkur var í um- sjá Leifs Harðarsonar. Meistaraflokkur fór í æfinga- ferð til Spánar en vegna fárra leikja varð hún ekki sá akkur sem ætlast var til. Fjórði flokkur fór til Færeyja og dvaldi þar í góðu yfir- læti í nokkra daga. Að þessu sinni var það Egill Örn Einarsson sem hlaut sæmdar- heitið: „Knattspyrnumaður Þrótt- ar 1986" og flokkur hans, 2. flokk- ur, hlaut Middlesex Wanderers- bikarinn. Tveir Þróttarar voru valdir í landslið á árinu. Kristján Jónsson lék þrjá A-landsleiki og Þorsteinn Þorsteinsson lék með Drengja- landsliðinu. Helgi Þorvaldsson gaf deild- inni verðlaunagrip sem afhentur skyldi þeim dómara sem starfaði best fyrir deildina. Fyrstur til að hljóta gripinn var Hjálmar Bald- ursson og hlaut hann gripinn til eignar. Hefur Helgi boðist til að Fyrsti flokkur náði sér aldrei á strik og var ekki svipur hjá sjón miðað við árin á undan. Gunnari til að- stoðar með flokkinn var Friðjón Einarsson. Aðrir flokkar hjökkuðu í sama farinu og verður ekki farið frekar út í árangur þeirra. Þjálfarar flokk- anna voru þeir Guðjón I. Eiríksson sem þjálfaði 2. og 6. flokk. Jón Þor- bjömsson byrjaði með 3. flokk en varð að hætta fljótlega og tók þá Þórður Theódórsson við um stundarsakir eða þar til Sigurður Hallvarðsson var ráðinn sem þjálf- ari. Gísli Sváfnisson og Stefán Stef- ánsson sáu um 4. flokk og Helgi Arnarsson og Atli Helgason voru með 5. flokk. Eldri flokkur gekk sjálfala að vanda. Þróttaramir Ágúst Hauksson, Sverrir Brynjólfsson og Ársæll Kristjánsson fagna hér marki Þróttar gegn Fram í 1. deild 1979. Símon Kristjánsson leikmaöur Fram nær í boltann. Leiknum lauk með jafntefli 1:1. gefa verðlaun þessi árlega. Stjórn deildarinnar skipuðu: Jón H. Ólafsson, formaður, Stefán Þ. Guðmundsson, Ingvi H. Magn- ússon, Gunnlaugur Jóhannsson, Ómar Siggeirson, Gunnar Jó- hannsson og Þorsteinn Lárusson. 1987 Ekki rofaði mikið til með árang- ur frá fyrra ári. Var það helst meist- araflokkur sem bætti sig og má segja að meiðsli hafi orðið þess valdandi að ekki vannst 1. deildar- sæti þó aldrei sé hægt að fullyrða það. Gunnar R. Ingvarsson þjálf- aði flokkinn og var það frumraun hans sem meistaraflokksþjálfari. Guðmundur Erlingsson var kosinn „Knattspyrnumaður Þrótt- ar 1987" og var það í annað sinn sem hann hlaut þann heiður. Annar flokkur hlaut Middlesex Wanderers-bikarinn og tveir liðs- menn flokksins léku með Ung- lingalandsliði íslands, þeir Egill Ö. Einarsson sem var fyrirliði liðsins og Karl Jónsson. Þróttardómari ársins var Hjálmar Baldursson með yfir- gnæfandi flest störf. Hlaut hann verðlaunagrip sem Helgi Þor- valdsson gaf. Sú nýbreytni var tekin upp að stofna foreldrafélag til aðstoðar unglingaráði deildarinnar. Var stofnfundurinn haldinn 24. sept-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.