Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 19

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Blaðsíða 19
ÞROTTUR 40 ára 19 ember í Þróttheimum. Sá félagið m.a. um uppskeruhátíð sem hald- in var í Glæsibæ með miklum glæsibrag. Stjórn deildarinnar var skipuð eftirtöldum: Jón H. Ólafsson, for- maður, Eiríkur S. Eiríksson, Jó- hannes Þ. Ingvarsson, Gunnlaug- ur Jóhannsson, Gunnar Jóhanns- son, Þórður Theódórsson og Frið- jón Einarsson. 1988 Eftir ágætan árangur í 2. deild s.l. ár og góðan sigur á Reykjavík- urmótinu innanhúss um veturinn kom það sem reiðarslag er félagið varð að bíta í það súra epli að falla í 3. deild í fyrsta sinn í sögu þess. Ekki var það vegna þess að liðið væri ekki nógu gott til að gera bet- ur heldur gekk ekkert upp hjá því. Þjálfari liðsins var Magnús Bergs og honum til aðstoðar síðari hluta móts var Þorsteinn Friðþjófsson. Magnús þjálfaði einnig 1. flokk sem var langt frá árangri fyrri ára. Annar flokkur féll aftur í B-riðil á íslandsmótinu og hefur það ver- ið hlutskipti flokksins að flytjast milli riðla undanfarin ár. Þjálfari var Kristján Þorvaldz. Þriðji flokkur undir stjórn Sig- urðar Þorvaldssonar var fámenn- ur og mjög erfitt að ná saman liði og féll liðið niður í C-riðil á Islands- mótinu. Fjórði flokkur hélt sæti sínu ör- uggíega í B-riðli undir stjórn Sig- urðar Hallvarðssonar og 5. flokkur fluttist upp í B-riðil. Þjálfari flokks- ins var Guðjón I. Eiríksson sem einnig sá um 6. flokkinn en bæði A og B liðin stóðu sig vel. Að vanda sá Eldri flokkur um sig sjálfur en liðsstjóri var Haukur Nikulásson. Það er kannski dæmi um ár- angur félagsins að enginn leik- maður þess var valinn til að leika með úrvalsliðum á árinu og hefur það ekki gerst í háa herrans tíð. Er það verðugt íhugunarefni fyrir alla sem að félaginu standa. Knattspyrnumaður Þróttar 1988 var valinn Sverrir Pétursson. Þróttardómari ársins var Eysteinn B. Guðmundsson en hann hætti dómgæslu í 1. deild eftir áratuga farsælt starf. Eldri flokkur hlaut Middlesex Wanderers-bikarinn að þessu sinni og er það önnur ábending til þeirra sem láta sig félagið varða þegar flokkur sem aðeins er að leika sér nær langbestum árangri. Það er rétt að gera lokaorð Jóns H. Ólafssonar í ársskýrslu deildar- innar að lokaorðum annáls ársins 1988: Góðir félagar, erfitt ár er að baki og framundan er afmælisár félagsins. Það er einlæg von mín á þessum tímamótum í sögu félags- ins að okkur takist að snúa blað- inu við og að sá gróandi sem við getum fylgst með þegar nýja gras- svæðið fer að grænka í vor verði táknrænn fyrir nýtt gróskutímabil í sögu knattspyrnudeildar Þróttar. Stjórn deildarinnar skipuðu: Jón H. Ólafsson, formaður, Eiríkur St. Eiríksson, Gunnlaugur Jó- hannsson, Gunnar Jóhannsson, Þórður Theódórsson, Pétur Ing- ólfsson og Ingvi H. Magnússon. 1989 Ekki varð Jóni H. Ólafssyni alls- kostar að ósk sinni um nýtt gróskutímabil í sögu knattspyrn- unnar í Þrótti á afmælisárinu. Að- eins tveir yngstu flokkarnir stóðu Magnús Jónatansson þjálfari. sig eins og vonast var til af þeim. T.d. var 5. flokkur undir stjórn Rúnars M. Sverrissonar, aðeins einu sæti frá því að færast upp í A-riðil og 6. flokkur, sem Jóhann Hreiðarsson þjálfaði, stóð sig ein- nig mjög vel í þeim mótum sem hann tók þátt í. Sá flokkur sem olli mestum vonbrigðum var auðvitað meist- araflokkurinn sem flestir töldu sjálfsagðan sigurvegara í A-riðli 3. deildar. Það fór þó á annan veg, liðið byrjaði vel, en gaf eftir er leið á keppnina og var um tíma í fall- hættu vegna breytinga á deild- inni, en vegna þeirra féllu 6 af 10 liðum í A-riðlinum niður í 4. deild. Liðið varð í 3. sæti í riðlinum, níu stigum á eftir Grindavík og IK, skoraði 44 mörk gegn 24. Telja má að markatala liðsins hefði átt að duga til sigurs en þeg- ar nánar er skoðað kemur í ljós að aðeins fimm þeirra eru skoruð í átta leikjum gegn fjórum af efstu liðunum. Sigurður Hallvarðsson skoraði 23 af mörkum liðsins og varð lang- markahæstur yfir allar deildirnar. Ljósi punkturinn hjá meistara- flokknum var frammistaðan í bik- arkeppninni en þar var liðið óheppið að tapa gegn ÍBK 2-3 í átta liða úrslitum. Þau úrslit sýndu að liðið getur mun meira en það sýndi í mörgum leikja sinna í deildinni og með þeirri reynslu sem liðið öðlaðist í sumar og sam- heldni verður það örugglega eitt af toppliðum deildarinnar á næsta ári. Þjálfari liðsins var Magnús Jón- atansson. Fyrsti flokkur var ekki sá bak- hjarl sem hann nauðsynlega þarf að vera og náði aðeins miðlungs- árangri. Sá flokkur sem á að unga út meistaraflokki framtíðarinnar var lagður niður vegna mannfæðar, en þar er átt við 2. flokk. Er hér um eitthvert alvarlegasta áfall sem deildin hefur orðið fyrir. Þriðji flokkur undir stjórn Sig- urðar íiallvarðssonar og 4. flokkur sem Gísli Sváfnisson þjálfaði, áttu og í vök að verjast vegna mann- fæðar. Sjötti flokkur hlaut Middlesex Wanderers-bikarinn sem besti flokkur félagsins. Þróttardómari ársins var Óli P. Ólsen, sem dæmdi yfir 40 leiki, þ.m.t. úrslita- leik Mjólkurbikarsins og lands- leiki. Knattspyrnumaður Þróttar 1989 var útnefndur Haukur Magnússon, leikmaður í meistara- flokki og hýsir hann Drumchapel- styttuna næsta árið. Tveir leik- menn félagsins náðu þeim áfanga að hafa leikið í öllum flokkum. Það voru þeir Þorsteinn Þorsteinsson og Vignir Arason, en hann var enn leikmaður í 3. flokki. A aðalfundi Þróttar í ársbyrjun var ákveðið að færa stjórnun deil- da undir aðalstjórn félagsins og myndi stjórnin síðan skipa þriggja manna nefnd til að sjá um dagleg- an rekstur hverrar deildar fyrir sig. Fyrstu knattspyrnunefnd skipuðu þeir Eiríkur Eiríksson, Sigurður O. Pétursson og Þórður Theódórsson og var sá fyrstnefndi formaður nefndarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.