Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Page 22

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Page 22
22 ÞRÓTTUR 40 ára MINNING Óskar Pétursson Þann 8. nóvember s.l. lést Óskar Péturssonm, heiðursfé- lagi Þróttar. Með Óskari er genginn einn mikilhæfasti leið- togi félagsins frá stofnun þess. Garðar Óskar Pétursson, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur á ísafirði 2. desember 1906, sonur hjónanna Elínar Eyjólfsdóttur og Péturs Guð- mundssonar, vélstjóra. Hann var næstelstur fjögurra syst- kina. Hann fluttist með foreldr- um sínum ungur til Reykjavík- ur, þar sem faðir hans gerðist vélstjóri á togurum. Óskar stundaði ungur sjómennsku, en lagði síðan stund á hand- verk og gerðist járnsmiður. Hann kvæntist árið 1934 Sigríði Ólafsdóttur og áttu þau tvo syni, Sverri Garðarsson, hljóm- listarmann í Reykjavík og Pétur Garðarsson skólastjóra á Siglu- firði. Þau Óskar og Sigríður slitu samvistir. Óskar tók snemma virkan þátt í starfi skátahreyfingarinn- ar og varð þar mikils metinn foringi. Sérstaklega var honum hugleikin uppbygging aðstöðu skáta að Úlfljótsvatni. Óskar kom inn í starf Þróttar stuttu eftir stofnun, þegar /. 2. desember 1906 d. 8. nóvember 1989 kunningjar hans í Þrótti fengu hann til að sitja í undirmóta- nefnd og síðar í Knattspyrnu- ráðinu. Það er óhætt að fullyrða að það var mikill fengur fyrir félagið, sem þá var ungt að árum, að fá slíkan félagsmála- mann sem Óskar til starfa. Nú varð ekki aítur snúið, Óskari voru jafnt og þétt falin veiga- meiri störf innan félagsins og var svo kosinn formaður á 6. aðalfundi þess 23. október 1955. Gegndi hann því starfi í fimm ár. Hann á síðan sæti í aðalstjórn félagsins næstu fimmtán ár, til ársins 1975. Öll þessi ár var Óskar varaformað- ur. Það er álit margra að það sé ekki síst fyrir dugnað og ósér- hlífni hans á formannsárunum hans 1955 til 1960 að Þróttur hélt lífi, en á þessum árum var það baráttan fyrir varanlegri fé- lagsaðstöðu sem allt snerist um og þar gekk Óskar fremstur í flokki. Það má lesa það í gömlum fundargerðarbókum félagsins að Óskari var þetta hjartans mál. Það varð því mikill sigur Óskars þegar félaginu var út- hlutað svæðinu hér innfrá árið 1964 á fimmtán ára afmæli þess. Þar með var framtíðarað- staða félagsins tryggð. Þegar nýja hið félagsheimili var reist á árunum 1977 til 1979 var Óskar sem ætíð fyrr boðinn og búinn að vinna þar í sjálf- boðavinnu, þá nýkominn á eft- irlaun. Magnús Óskarsson, sem var formaður félagsins á þeim árum hefur sagt að Óskar hafi verið sá fyrsti sem flutti inn í húsið. Óskar Pétursson var gerður að heiðursfélaga Þróttar á sjö- tugsafmæli sínu 1976, en ein- ungis stofnandi þess Halldór Sigurðsson hafði verið það áður. Óskari hlotnuðust allar æðstu heiðursveitingar innan íþróttahreyfingarinnar fyrir sín frábæru störf fyrir félagið og hreyfinguna í heild. Með árunum varð Óskar samnefnari allra Þróttara, dáð- ur og virtur af öllum. Það var mannbætandi að umgangast slíkan mann sem Óskar. Við þökkum honum sam- fylgdina, hjálpina og ómælt starf í þágu félagsins. Hann hvfli í friði. Tryggvi E. Geirsson

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.