Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Page 24

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Page 24
um hjá Fiskhöllinni, þá var ég 13 ára gamall. Fórum við með fisk á hestvagni um hinar dreifðu byggðir í nágrenni bæjarins, út á Seltjarnarnes, inn í Kleppsholt, Fossvog, Kringlumýri og Soga- mýri. Þetta var erfið vinna, ekki síst á vetrum, en þessi fyrsta laun- aða vinna mín gaf mér þol og þrek og góður tfmi gafst þessi 3 ár sem ég vann við þetta til að rabba við Halldór, aldrei skorti umræðuefn- in". —Þú hefur þá kynnst því landi þar sem Þróttur haslaði sér síðar völl, við Sæviðarsundið? „Já, ég man vel eftir því. Þar sem Þróttur er núna við Sæviðar- sund var tún frá Kleppsbúinu. lékum fótbolta, en þegar breski herinn kom, lagði hann það svæði undir sig og þá var draumurinn búinn. Þarna voru reist her- mannatjöld og vinna okkar var þá bara unnin fyrir hernámsliðið. Seinna kom þarna kampur eða herbúðir sem seinna hét Trípolík- ampur, eftir að Bandaríkjamenn settust að með lið sitt". Eyjólfur segir frá því að Halldór Sigurðsson var einn fárra á Holt- inu sem kunni ensku, og hafði hann milligöngu um að fá leiki við Bretana, og þá var það Þróttur sem keppti við bresku hermennina, og sigraði yfirleitt í þeim viðureign- um. — En hverfum til ársins 1949. En tildrögin að stofnun Þróttar vorubókstaflega þau að litlu strák- arnir komu til okkar Halldórs og báðu okkur um félag. Upp úr því töluðum við Halldór saman um það að hóa strákunum saman og stofna félag. Við Halldór komum saman á næstum hverju kvöldi um sumarið til að ráða ráðum okk- ar. Niðurstaðan var sú að stofna skyldi félagið. Við settum upp auglýsingar í gluggum verslan- anna, í Pöntunarfélaginu við Fálkagötu, Ragnarsbúð og í KRON í Skerjafirði. Strákarnir hlupu svo um allt með fregnmiða. Stofnfundurinn var ákveðinn föstudaginn 5. ágúst í bragganum. Þar mætti mikið og gott mannval, langmest kornungir strákar, ung- lingar og menn vart komnir af barnsaldri". — Vissuð þið Halldór nokkuð hvað þið voruð að fara út í? „Við vildum stofna félag, eins- konar áhugamannafélag, en ætl- unin var ekki að þetta yrði fimmta knattspyrnufélagið í bænum, eins og síðar varð. Þetta félag var ekki stofnað til að verða annað en hverfisfélag, og reyndar aðeins strákafélag, því ekki vorum við neitt með það á prjónunum að sinna stelpunum, því Ungmenna- félagið var með handbolta fyrir stelpur. í sjálfu sér vissum við ekki hvað þessi stofnun félagsins átti eftir að hafa í för með sér, það gat enginn vitað með vissu. En það er staðreynd að við Halldór vorum báðir fákunnandi í félagsmálum þegar við stofnuðum Þrótt. Þau fræði áttum við eftir að læra. Þegar strákarnir í 4. flokki óskuðu eftir því að fá að keppa í alvöru mótum, strax þarna um haustið, þá var ekki um annað að ræða en að gera félagið að aðila innan íþróttasam- bands íslands. Þá leituðum við Halldór til ágætra manna í öðrum félögum, Frímanns Helgasonar í Val, Benedikts G. Waage forseta ÍSÍ og Kjartans Bergmanns, glímu- kóngs og þingritara Alþingis. Þessir ágætu menn hjálpuðu okk- ur að semja fyrstu lög félagsins á skrifstofu ISÍ sem var þá til húsa í Gimli við Lækjargötu. Með þeirra veganesti varð Þróttur aðili að heildarsamtökum íþróttamanna ÍSÍ, þann 24. nóvember 1949. Þá fannst okkur að við værum komn- ir langt út fyrir þann ramma sem upphaflega hafði verið meiningin. Þetta strákafélag sem við höfðum stofnað hafði lægri meðalaldur Eyjólfur sundkappi Jónsson var stööugt fréttaefni dagblaðanna um árabil vegna sundafreka sinna. Hér er hann í Englandi ásamt forráðamönnum sundkeppninnar yfir Ermarsund. Eyjólfur reyndi slíkt sund tvívegis, en tókst ekki eins vel þar og á löngum sjósundum hér heima. Þarna á næstu grösum voru nokk- Hvað varð þess valdandi að Knatt- ur bændabýli, m.a. Brekka og Langholt þar sem nú eru Álfheim- ar og Langholtsvegur og Klepps- búið örskammt frá sjúkrahúsinu". — Var mikill áhugi á íþróttum á Holtinu á þessum árum rétt fyrir stríð? „Já, það var mikill áhugi og hver tómstund nýtt til íþrótta og leikja. Knattspyrnan var auðvitað mjög vinsæl, og stundum lékum við leiki gegn Skerfirðingum, og svo kom það oft fyrir að við lékum sameiginlega, Holtarar og Skerfirðingar gegn öðrum liðum. Þegar slíkt lið var sent fram, hét það Þróttur, svo þú sérð að nafnið var til áður en félagið var stofnað. En þetta sameiginlega lið má segja að sé einskonar upphaf að því sem síðar varð Knattspyrnufélagið Þróttur. Fyrir stríð vorum við strákarnir búnir að ryðja svæði á Melunum þar sem við æfðum og spyrnufélagið Þróttur var stofn- að? „Þá var bærinn búinn að útbúa ágætan malarvöll, Grímsstaða- holtsvöll, en þar eru núna syðstu húsin við Aragötu. Þessi völlur örvaði mjög knattspyrnuiðkun strákanna. Og enda þótt KR væri með æfingar á vellinum, þá var KR ekki það félag sem strákar á Holt- inu og í Skerjafirði vildu starfa með. Margir þeir eldri voru þá í Fram og fleiri félögum og þurftu að sækja langar leiðir á æfingar. Þetta ár var stofnað knattspyrnu- félagið K-49, og settist að á Holtinu í yfirgefnum hermannabragga í Trípolíkampi. Félagið varð ekki langlíft, lognaðist út af á ör- skömmum tíma án þess að gera mikið. Það var nefnilega ekki bara að segja það að stofna íþróttafélag í Reykjavík.

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.