Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Page 28
28
ÞROTTUR 40 ára
að hafa samstarf við þessa aðila.
Milli íþróttahreyfingarinnar og
Æskulýðsráðs ríkti ævinlega rígur
og óvild. Ég fór með þessa hug-
mynd mína til Davíðs Oddssonar,
sem þá var borgarfulltrúi og for-
maður Æskulýðsráðs, og kynnti
honum hana. Davíð kveikti strax
á hugmyndinni, sá að þarna fóru
saman hagsmunir borgarinnar og
Þróttar. Auðvitað var ég hund-
skammaður fyrir þetta árum sam-
an.
En hvað um það, við byggðum
saman húsið, Þróttur og Reykja-
víkurborg. Seinna fóru KR-ingar
af stað og byggðu á sömu hug-
mynd, þeir notuðu meira að segja
samninginn okkar Þróttaranna
við borgina óbreyttan. Þeir voru
þá búnir að gleyma öllum oln-
bogaskotunum, sem þeir höfðu
gefið mér á sínum tíma!
Húsinu skilað með 700
þúsund króna hagnaði!
Endirinn varð svo sá að við skil-
uðum húsinu af okkur með 700
þúsund króna hagnaði, en það fé
fór síðan í að gera grasvöllinn. Við
fórum vel út úr þessum fram-
kvæmdum, og það gerði borgin
líka, hún byggði sína ódýrustu fé-
lagsmiðstöð fyrir ungmenni borg-
arinnar. Æskulýðsmiðstöðin fékk
nafnið Þróttheimar, það var bund-
ið í samningi að nafn hennar bæri
í sér nafn Þróttar. Einnig var kveð-
ið á í samningi að Þróttur gæti not-
að efri hæð hússins þegar þess
þyrfti með. Mér finnst þó að félag-
ið hafi ekki nýtt sér þessa aðstöðu
sem skyldi. Þarna getur félagið
notað sér aðstöðuna mun meira en
gert er.
í 1. deild í öllum greinum
— Hvernig gekk félagsstarfið á
þessum árum?
„Það var býsna öflugt. Við vor-
um með góðan kjarna af kven-
fólki, sem vann vel fyrir félagið.
Stofnuð var formlega kvenna-
deild Þróttar, sem núna er því
miður hætt. Félagið var á þessum
árum með lið í 1. deild í öllum
greinum og öll félög þurftu að
bera virðingu fyrir Þróttarliðun-
um. Þetta voru góð ár.
Handboltinn var þó að komast
í lægð á þessum árum. Þá fengum
við ágætan mann, Þorstein Jóns-
son frá Ólafsfirði, sem fluttur var í
bæinn og báðum hann að taka við
formennsku í handknattleiks-
deildinni. Hann stýrði deildinni af
miklum krafti og reif hana upp.
Við réðum Ólaf H. Jónsson sem
þjálfara og leikmann með liðinu,
sendum mann á hans fund í
Þýskalandi með samningsdrög
upp á vasann. Úr þessu varð
samningur við Ólaf, - sem kostaði
félagið í raun ekki eina einustu
krónu. Aðsókn að leikjum jókst
mjög mikið og dekkaði þann
kostnað sem af ráðningu Ólafs
varð. Meðal stjórnarmanna Þor-
steins var Eggert aflakóngur Gísla-
son og fleiri góðir menn. Ég held
því miður að Þorsteini og hans
mönnum hafi aldrei verið þakkað
fyrir þeirra góða framlag, þó varð
Magnús Óskarsson tekur fyrstu skóflustunguna aö félagsheimilinu seint f marz 1976. Húsið er
samtals liðlega 700 fermetrar að stærð og bætti verulega úr þörf, enda þá eina félagsheimilið í 11
þúsund manna hverfi.
Þróttur bikarmeistari í handknatt-
leik á þessum árum".
Það á að gera Þrótt að
stórveldi!
Þegar Magnús tók við for-
mennsku segir hann að hann hafi
tekið eftir ýmsu í fari félagsmanna,
sem taka þurfti á.
„Það sem ég taldi mikilsverðast
var að uppræta minnimáttar-
kenndina sem mér fannst áber-
andi í fari allt of margra innan fé-
lagsins. Slík kennd má aldrei
þrúga keppnismenn í íþróttum né
heldur þá sem halda á stjórn-
taumunum. Ég var vanur að klifa
stöðugt á því að „það á að gera
Þrótt að stórveldi". Þetta sagði ég
á fundum, líka þegar ég talaði yfir
hausamótunum á kappliðum fé-
lagsins og hvar sem ég gat komið
þessu að. Ég trúi því enn að þetta
sé hægt, og þegar ég heyrði stráka
ræða um að „það ætti að gera Þrótt
að stórveldi" á dansleik sem við
héldum, þá fann ég að þetta var
farið að síast inn í mannskapinn.
Vonandi verður framhald á því.
Mér fannst að Þróttarar ættu að
ganga hnarreistir inn í hús sitt,
besta hús borgarinnar, þegar það
beið þeirra fullbúið. Þetta hús eiga
Þróttarar skuldlaust auk fallegra
og góðra keppnisvalla.
Eg vil svo að lokum ítreka það
að „það á að gera Þrótt að stór-
veldi, og óska ég eftir að núver-
andi og tilvonandi stjórnarmenn
félagsins, íþróttafólk þess og
stuðningsfólk, hafi það ævinlega í
huga".
ÍÞRÓTTAFATNAÐUR
mitrÉ
BOLTAR - BÚNINGAR
HOFFELL SF.
ÁRMÚLA 36 - SlMAR: 83830 og 82166