Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Qupperneq 29
BLAKANNÁLL 1974 - 1989
eftir Gunnar Árnason
1974-1975
Blakmótin
Fyrsta keppnistímabil Blak-
deildar Þróttar hófst með Haust-
móti sem deildin sá um og tókst
ágætlega. Þróttur sigraði í kvenna-
flokki og varð í 3. sæti í karlaflokki.
Þriðja liðið, B-lið karla varð neðst í
sínum riðli.
Meistaraflokkur kvenna tapaði
fyrir Víkingi í Reykjavíkurmótinu
og komst ekki í úrslit í íslandsmót-
inu. í Vormóti BLÍ léku aðeins tvö
lið frá Þrótti og þar sigraði Þróttur
A. Þjálfarar voru Guðmundur
Skúli Stefánsson og Gunnar Arna-
son.
Meistaraflokkur karla varð í 3.
sæti í Reykjavíkurmótinu og ís-
landsmóti og tapaði í úrslitaleik
Bikarkeppninnar. Liðið varð svo í
3. sæti í Vormóti BLÍ, en þar réð
skor röð þriggja efstu liða. Þjálfari
var Valdemar Jónasson.
B-lið meistaraflokks varð í 4.
sæti í sínum riðli í B-móti og hafn-
aði í 5. sæti af 6 í Vormótinu. Þjálf-
ari var Valdemar Jónasson. Engin
mót voru fyrir unglingaflokk, en
þjálfari var Gunnar Arnason.
Úrvalslið
Þrír Þróttarar léku með karla-
landsliðinu, þeir Guðmundur E.
Pálsson, Gunnar Arnason og
Valdemar Jónasson. Auk þeirra
léku í ýmsum úrvalsliðum þeir Ei-
ríkur Stefánsson, Leifur Harðar-
son, Pétur Böðvarsson og Sæ-
mundur Sverrisson.
Heimsóknir
Þróttur og Víkingur tóku í sam-
einingu á móti bandarísku há-
skólaliði frá Norður-Karólínu sem
dvaldist hér 9.-15. mars og lék 5
leiki, vann í 4 leikjanna en tapaði
fyrir Reykjavíkurúrvali í fyrsta leik
sínum. Liðið tók svo þátt í móti á
Keflavíkurflugvelli og sigraði þar.
Yngri flokkar deildarinnar fóru í
heimsókn á Keflavíkurflugvöll og
léku við skólalið þar, sem síðan
endurgalt heimsóknina nokkrum
dögum síðar.
1975-1976
Blakmótin
Meistaraflokkur kvenna náði
sínum 3. meistaratitli með því að
sigra í Reykjavíkurmótinu, varð í
2. sæti í Haustmótinu og Islands-
mótinu og í 3. sæti í Vormótinu.
Þjálfari var Ingvar Þóroddsson og
Guðmundur E. Pálsson þjálfaði
liðið einnig síðari hluta vetrar.
Meistaraflokki karla vegnaði
ekki eins vel á sínu öðru keppnis-
tímabili eins og hinu fyrsta. Liðið
varð í 3. sæti í Reykjavíkurmóti og
Haustmóti, í 4. sæti í 1. deild ís-
landsmótsins og féll út í fjögurra
liða úrslitum í Bikarkeppninni.
Þjálfari var Guðmundur E. Páls-
son.
B-liðið varð í 4. og neðsta sæti í
sínum riðli í Haustmótinu, en náði
2. sæti í sínum riðli í 2. deild. Þjálf-
Greinarhöfundur, Gunnar Árnason, ásamt Jasoni ívarssyni taka á öllu sínu í hávörninni.
Myndin er frá leik Þróttar og Víkings sem fram fór 5. desember 1979.