Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Qupperneq 30
30
ÞROTTUR 40 ára
ari var Guðmundur E. Pálsson. 2.
flokkur karla tók þátt í tveimur
hraðmótum og varð í 2. sæti í báð-
um. Þjálfari var Leifur Harðarson.
Öldungalið lék nú í fyrsta skipti
í nafni félagins og stóð sig með
prýði. Liðið sigraði í sínum riðli
Óldungamótsins og varð í 2. sæti í
úrslitakeppninni.
Úrvalslið
Fjórir Þróttarar léku með lands-
liði á tímabilinu, þeir Guðmundur
E. Pálsson, Gunnar Arnason, Leif-
ur Harðarson og Valdemar Jónas-
son. Auk þeirra lék Eiríkur Stef-
ánsson leik með úrvalsliði á
keppnistímabilinu.
Heimsóknir
Dagana 3-12. apríl dvaldist hér
á landi skoska 1. deildarliðið Jor-
danhill College í boði Þróttar. Lið-
ið lék 7 leiki og sigraði í 6 þeirra en
tapaði fyrir íslandsmeisturum IS.
Veg og vanda af heimsókn þessari
höfðu Guðmundur Skúli Stefáns-
son, Óli Kr. Sigurðsson og Magnús
Óskarsson.
1976-1977
Blakmótin
Meistaraflokkur kvenna stóð
sig ágætlega þótt ekki næðu þær í
titil, en liðið varð í 2. sæti í öllum
þrem mótum vetrarins. Þjálfarar
voru Valdemar Jónasson og Leifur
Harðarson.
1. og 2. flokkur kvenna tóku
ekki þátt í mótum en þjálfarar
þeirra voru Gunnar Arnason og
Þorbjörg Aðalsteinsdóttir.
Loks kom að því að meistara-
flokkur karla næði að vinna titil en
það varð er Þróttur varð Reykja-
víkurmeistari 17. október 1976.
Þetta var upphafið að sigurgöngu
meistaraflokks og þetta keppnis-
tímabil tapaði liðið ekki leik og
varð Islandsmeistari og Bikar-
meistari. Þjálfari var Gunnar
Arnason.
B-lið karla tók þátt í keppni í 2.
deild og varð í 3. sæti og næst
neðst í sínum riðli með aðeins einn
sigur. Þjálfari var Gunnar Arna-
son. 2. flokkur karla tók þátt í
tveimur hraðmótum og vann sig-
ur í báðum. Þjálfari var Leifur
Harðarson.
Æfingar hófust hjá 4. flokki
karla síðari hluta vetrar og sá Leif-
ur Harðarson um þær ásamt fleiri
góðum mönnum.
Öldungaflokkurinn sigraði ör-
ugglega í sínum riðli Öldunga-
mótins en hafnaði í 4. sæti í úrslita-
keppnini með óhagstæðara hrinu-
hlutfall en Skautafélag Akureyrar
og Breiðablik sem fengu jafnmörg
stig.
Úrvalslið
Uppistaða landsliðsins þetta
tímabil var úr Þrótti, þeir Guð-
mundur Böðvarsson, Guðmund-
ur E. Pálsson, Gunnar Arnason,
Leifur Harðarson og Valdemar
Jónasson.
Blakmaður ársins
I fyrsta skipti í sögu félagsins
varð Þróttari fyrir valinu sem
íþróttamaður ársins í sinni grein.
Þessa viðurkenningu fékk Guð-
mundur E. Pálsson er hann var
tilnefndur Blakmaður ársins 1976.
1977-1978
Blakmótin
Meistaraflokkur kvenna átti
mjög misjafna leiki, varð í 2. sæti í
Reykjavíkurmótinu, féll úr keppni
í Haustmótinu eftir tvö töp og
varð í 4. sæti í 1. deild kvenna.
Þjálfari var Matthi Eliasson frá Sví-
þjóð en hann var fyrsti erlendi
þjálfarinn í blaki sem sérstaklega
hefur verið fenginn til starfa hér á
landi heilt keppnistímabil.
B-lið kvenna tók þátt í Haust-
móti, vann einn leik, en tapaði
tveimur. 2. flokkur kvenna tók
ekki þátt í keppni, en þjálfari þess-
ara flokka var Þorbjörg Aðalsteins-
dóttir.
Meistaraflokkur karla varð
Reykjavíkurmeistari og Bikar-
meistari en varð í 2. sæti í 1. deild
íslandsmótsins og í Haustmóti.
Þjálfari var Matthi Eliasson.
B-lið karla varð í 5. sæti í Haust-
móti og í 5. og neðsta sæti í sínum
riðli 2. deildar. Liðsmenn æfðu
með meistaraflokki en Guðmund-
ur E. Pálsson stjórnaði liðinu í
flestum leikjum.
íslandsmót yngri flokka var nú
haldið í fyrsta skipti og tefldi Þrótt-
ur fram liði í 3. flokki karla og sigr-
aði örugglega. Þjálfari var Böðvar
Helgi Sigurðsson.
Öldungaflokkurinn varð í 6.
sæti í Haustmóti og 5. sæti í Öld-
ungamótinu en tapaði þó aðeins
einum leik í riðlakeppninni.
Úrvalslið
Með landsliðinu léku Benedikt
Höskuldsson, Böðvar Helgi Sig-
urðsson, Guðmundur E. Pálsson,
Gunnar Arnason, Jason ívarsson
og Valdemar Jónasson, og auk
þessara Ieikmanna lék Sveinn
Hreinsson pressuleik.
Uikarmeistarar Þróttar 1985. Aftari röð f.v. Leifur Harðarson fyrirliði, Lárentsínus Ágústsson,
Sveinn Hreinsson, Einar Hilmarsson, Jason fvarsson, Guðmundur E. Pálsson þjálfari. í fremri
röð eru f.v. Jón Árnason, Gunnar Árnason, Samúel Öm Erlingsson.