Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Síða 44

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára - 01.12.1989, Síða 44
Haraldur Snorrason, - ,Jór á æfingu hjá KR enfékk eiginlega aldrei boltann..“ - Seinna varð Halli Snorra Möndullinn sem svo margt lék á í Þrótti HALLI SNORRA, - eða fullu nafni Haraldur Snorrason, var lengi sá möndull sem félagslíf Þróttar lék á. Sofinn jafnt sem vak- inn var Halli með hugann við Þrótt og þarfir þess félags. Það var því ekki að undra að Halli fékk viðurnefni meðal yngri félaganna, sem í virðingarskyni kölluðu hann Fóstra. Vinna hans við félagið var hreint ótrúlega mikil, og víst er það að ekki hefði félagið getað keypt þá miklu vinnu sem hann lagði af mörkum, enda kom slíkt aldrei til álita á þeim tímum, menn voru þá margir hverjir hugsjóna- menn, en mældu ekki allt sem þeir gerðu fyrir félagið í töpuðum vinnustundum. Slíkir menn fyrir- finnast enn í dag, sem betur fer, en líklega eru þeir færri en hér áður fyrri. Haraldur kynntist Bjarna Bjarnasyni og Gísla Benjamíns- syni, tveimur góðum Þrótturum frá upphafi félagsins, og var félag- ið þá nýstofnað. Bjarni talaði mik- ið um Þrótt við Harald og fékk hann í brigde og taflstarfið sem var í Bragganum fræga. Það er ekki að orðlengja að Bjarna tókst að beygja vin sinn Harald að félags- málum Þróttar, og þar átti hann eftir að starfa lengi og vel. „Ég hafði ekkert vit á boltaleikj- um og kunni ekkert til íþrótta", segir Haraldur, þegar við setjumst niður á heimili hans og Jóhönnu Olafsdóttur konu hans yfir rjúk- andi kaffi og góðu meðlæti. „Ein- hverntíma fór ég á æfingu hjá KR, og fékk eiginlega aldrei boltann", segir Halli og hlær sínum notalega hlátri. Haraldur er fæddur í húsi við Hverfisgötu í Reykjavík, en skírð- ur í húsi sem foreldrar hans bjuggu í við Skólavörðustíg. Síðar flutti hann austur í Flóa 5 ára gam- all. Þar var hann til 14 ára aldurs. Þá átti hann heima í Lækjargöt- unni, sannkallaður miðborgar- maður Haraldur. Eftir að hann kvæntist sinni góðu konu, bjuggu þau lengi við Hverfisgötuna, og þar mátti oft sjá rauðu og hvítu knattspyrnuskyrturnar hengdar til þerris á snúrum því Jóhanna var ólöt við að vinna fyrir félagið og þá ekki miklar greiðslur fyrir. Seinna fluttu þau hjón í ágæta íbúð við Gnoðarvog og þar búa þau í dag, en börnin fjögur eru löngu flogin úr hreiðrinu. Einn af kostum Haraldar var að hann átti auðvelt með að laða að sér fólk til starfa. Þessi kostur kom í góðar þarfir hjá félagi sem hafði afar fáa fullorðna og ábyrga menn til að starfa að félagsmálunum. Eitt af fyrstu verkefnum Haraldar var að starfa í fjáröflunarnefnd, en hún gerði margt til að koma upp félagssjóði, m.a. með happdrætti sem bauð upp á ágæt stofuhús- gögn og kostaði miðinn aðeins 2 krónur, - en það fyrirtæki gekk fremur illa, húsgögnin voru ekki nógu freistandi. Tombólur gengu betur, og sama var að segja um sölutjöldin á 17. júní og fleira og fleira. M.a. gengu þeir Bjarni Bjarnason í það að safna saman styrktarmönnum, 25 krónur hjá hverjum. Davíð Scheving Thor- steinsson, hinn ungi forstjóri í Smjörlíki hf. var langbesti styrkt- armaðurinn og naut Þróttur lengi velvilja þess góða fyrirtækis. Þetta þýddi að félagið átti fyrir launum handa þjálfara. Stórt skref hafði verið stigið. „Þróttur var satt að segja ekkert lífvænlegt knattspyrnufélag á þessum árum. Töpin voru hrika- lega stór í elstu flokkunum, en þau fóru minnkandi, og með árunum var svo komið að meistaraflokkur- inn var farinn að vinna sigur og sigur, eða að hann hrelldi stóru félögin. Það sem mér fannst hins- vegar alltaf vanta var meira sjálfs- traust hjá strákunum", sagði Har- aldur Snorrason. Halli Snorra í aftari röð lengst til vinstri. Meö honura í stjórn Þróttar 1950-51 voru f.v. í aftari röð Bjarni Bjarnason, Eyjólfur Jónsson, Emil Emilsson og Þorvaldur í. Helgason. f fremri röð f.v. Jón Guðmundsson, Halldór Sigurðsson stofnandi Þróttar og Ari Jónsson.

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Knattspyrnufélagið Þróttur 40 ára
https://timarit.is/publication/1577

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.