Morgunblaðið - 22.07.2021, Síða 6
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Górilla vöruhús var stofnað fyrir
þremur árum. Síðastliðna tólf mánuði
hefur fyrirtækið afgreitt um 50 þús-
und vörur í gegnum kerfi sitt. Egill
Fannar Halldórsson stofnaði fyrir-
tækið í félagi við Daníel Pétursson
fyrir þremur árum og segir hann að
vöxtur fyrirtækisins hafi verið hrað-
ur. Reksturinn hafi verið þungur í
fyrstu en með aukinni stærðar-
hagkvæmni vænkist hagur fyrir-
tækisins til muna.
Miklar breytingar standa yfir
Egill Fannar er gestur Dagmála
þar sem hann ræðir stofnun fyrir-
tækisins og þær breytingar sem eru
að verða með aukinni netverslun um
heim allan. Á síðustu 12 mánuðum
hefur Górilla vöruhús afgreitt um
44.000 pantanir viðskiptavina um 50
íslenskra netverslana sem fyrirtækið
þjónustar. Spurður út í vöxtinn á
komandi 12 mánuðum er Egill
ómyrkur í máli.
„Þær verða alla vega 100 þúsund,
alveg klárt.“ Þótt ekkert sambæri-
legt vöruhús sé í rekstri hér á landi
segir Egill að samkeppnin komi. Þá
sé hún einnig til staðar erlendis.
Hann hafi tekið eftir því að kröfur um
hátt þjónustustig fari vaxandi og að
þar sæki fyrirtækið fram. Mikilvægt
sé að afgreiða pantanir samdægurs
og að netverslanir sem bjóði upp á af-
greiðslu innan tveggja til þriggja
daga komi illa út í samanburði við
þau fyrirtæki sem hlaupi hraðar. Þar
hafi íslensk netverslun þrátt fyrir allt
samkeppnisforskot á erlendu risana
sem sendi vörur sínar yfir hafið.
Afgreiðslum mun fjölga um
127% á næstu 12 mánuðum
- Stofnandi Górilla vöruhúss segir þjónustustigið vaxandi
Dagmál Egill Fannar Halldórsson er einn eigenda Górillu.
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
Hlaupahjól semer byggt til að endast.Með fjöðrun á bæði
fram- og afturdekki. Öryggi er einnig í fyrirrúmimeð lýsingu
að framanog aftan.
InvictaMicroMerlin
Verð frá: 109.990kr.
VefverslunBL
Frábært úrval af aukahlutum, ferðabúnaði,
gjafavörum og rafhjólum í nýrri vefverslun okkar.
Kíktu á úrvalið áwww.bl.is/vefverslun
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Farþegaskipið NG Endurance er í jómfrúarferð til Íslands og
kom til hafnar í Reykjavík í gærmorgun. Var tekið á móti
skipinu með viðhöfn og Haki myndaði tignarlegar sjóbunur.
Skipið liggur við Faxagarð í Gömlu höfninni.
Í dag klukkan 17 verður athöfn á vegum skipafélagsins
Lindblad Expeditions þegar skipinu verður gefið nafn. Slík
athöfn hefur einu sinni áður verið haldin hér. Hinn 10. júní
2018 var nýju skipi útgerðarinnar Ponant Explores, Le Lapé-
rouse, gefið nafn í Hafnarfjarðarhöfn.
NG Endurance var smíðað árið 2020 og siglir undir fána
Bahamaeyja. Skipið er 12.786 brúttótonn, 125 metra langt og
22 metra breitt. Það mun sigla hringinn í kringum Ísland og
hafa viðkomu á nokkrum áfangastöðum. Áhöfn NG Endur-
ance er bólusett sem og farþegarnir. Þeir munu koma hingað
í gegnum Keflavíkurflugvöll. sisi@mbl.is
Ljósmynd/Faxaflóahafnir
Farþegaskipi
gefið nafn hér
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Þrjár vikur eru liðnar frá því að aur-
skriða féll úr vegbrún á tvö hús við
Laugarveg í Varmahlíð í Skagafirði.
Talsvert tjón varð á húsunum en til-
viljun réð því að enginn var heima
þegar skriðan féll.
Íbúar í Varmahlíð óskuðu eftir að
stjórn sveitarfélagsins Skagafjarðar
héldi með þeim fund og veitti upp-
lýsingar um stöðu mála í kjölfar
aurskriðunnar. Fundurinn átti að
fara fram í gær en var frestað um
óákveðinn tíma.
Bryndís Rut Haraldsdóttir býr í
öðru húsinu sem skriðan féll á. Hún
segir frestun fundarins ekki leggj-
ast vel í íbúa. „Fólk vill sjá svör og
aðgerðir því það finnur fyrir óöryggi
á svæðinu. Þetta er ekkert grín,“
segir hún í samtali við Morgunblað-
ið.
Bryndís Rut og maður hennar,
Alex Már Sigurbjörnsson, voru bæði
í vinnu þegar skriðan féll á húsið
þeirra. Mikil vinna fór í að hreinsa
húsið eftir aurskriðuna, að sögn
Bryndísar.
„Við þurftum að skipta út öllu
gólfefni og innihurðum í íbúðinni. Þá
fór svolítill raki inn í veggina svo við
þurftum að klæða þá upp á nýtt. Við
tókum líka niður innbyggða fata-
skápa og hentum þeim,“ segir hún.
Með góðri hjálp gátu Bryndís og
Alex þó hreinsað nógu vel út úr hús-
inu til að þau gætu flutt inn í það
aftur. Bryndís er fyrirliði fótbolta-
liðs Tindastóls í Pepsi Max-deild
kvenna og komu samherjar hennar í
liðinu henni og Alexi til hjálpar þeg-
ar á reyndi. „Þeir hjálpuðu mér að
tæma húsið, mála og taka dótið mitt
einhvern veginn saman. Það munar
um hvern mann í svona verkefni,“
segir Bryndís. Tjónið sem varð á
húsinu er þó meira en við var að bú-
ast að sögn hennar. „Það á eftir að
taka allt gler á norðurhliðinni og
mögulega eitthvað á austurhliðinni
líka. Það rispaðist allt út af grjóti og
svo brotnaði ein rúða. Það þurfti svo
að háþrýstiþvo þetta allt og skipta
um glerlista,“ segir Bryndís. „Svo
þarf að mála húsið að utan því það
komu rispur á það en það er bara
eins og það er. Það er margt smátt
sem tínist saman sem gerir þetta að
svolítið stóru verki.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Ingvari Páli Ingvarssyni, verkefna-
stjóra á veitu- og framkvæmdasviði
sveitarfélagsins Skagafjarðar, geng-
ur hreinsunarstarf á svæðinu vel.
„Grófhreinsun er lokið og uppbygg-
ing, styrking og drenering hafin á
svæðinu.“
Íbúar bíða svara frá sveitarfélaginu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hreinsunarstarf Hreinsað upp eftir aurskriðu sem féll á tvö hús í Varmahlíð.
- Aurskriðan sem féll í Varmahlíð í lok júní olli miklu tjóni en hreinsunarstarf á svæðinu gengur vel
- Upplýsingafundur með íbúum Varmahlíðar átti að fara fram í gær en var frestað um óákveðinn tíma