Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 arfsmannafatnaður rir hótel og veitingahús Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Hótelstjórnandann Hótelrúmföt Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði og öðru líni fyrir hótel Ferðumst innanlands í sumar Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is 40-70% afsláttur ENN MEIRI AFSLÁTTUR Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Fæst í netverslun belladonna.is Smart sumarföt, fyrir smart konur Útsala-útsala Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook 40-50% afsláttur Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Mikill kurr er á meðal starfsmanna Vegagerðarinnar á Ísafirði eftir að þeim var gert að taka á sig 20-30% launalækkun vegna skipulagsbreyt- inga. Jónas Gunnlaugsson staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið en hann starfar í þjónustustöð Vega- gerðarinnar í Dagverðardal á Ísa- firði og fékk tilkynningu um skipu- lagsbreytingar í bréfi 11. maí sl. Jónas segir breytingarnar mikið reiðarslag og nokkrir starfsmenn séu að íhuga uppsögn. „Þetta er náttúrulega bara mjög þungt. Við erum nokkur komin á þann aldur að við hlaupum ekkert í aðra vinnu. Ég á raunar bara tvö ár eftir af starfsævinni svo ég hleyp ekkert svo auðveldlega í aðra vinnu,“ segir hann. „Ég er bara grautfúll og finnst að með þessu sé verið að gera lítið úr mínu vinnuframlagi til Vega- gerðarinnar.“ Þá hefur Jónas ítrekað óskað eftir útskýringu á skipulagsbreytingunni en engin svör fengið. Þegar Morgunblaðið leitaði eftir viðbrögðum Vegagerðarinnar sagði Sigurbjörg J. Narby Helgadóttir mannauðsstjóri aðdragandann að breytingunum hafa verið langan. Í dag sé misræmi á launakjörum milli starfsstöðva deildarinnar, sem eru annars vegar í Reykjavík og hins vegar á Ísafirði. Breytingin sé þann- ig liður í því að jafna launakjör. „Með þessari breytingu sem starfsmönnum á Ísafirði var kynnt í maí verða allir starfsmenn deildar- innar vaktavinnumenn allan ársins hring en hingað til hefur aðeins vakt- stöðin í Reykjavík verið með vaktir allan ársins hring,“ segir Sigurbjörg. „Breytingin er því aðeins gerð til að samræma laun þeirra starfsmanna sem sinna sambærilegum störfum og er gerð að vel íhuguðu máli og í sam- ræmi við þau lög sem opinberar stofnanir starfa eftir.“ Einhverjir starfsmenn hafa þó dregið lögmæti breytingarinnar í efa og hafa ákveðið að leita réttar síns hjá stéttarfélaginu Sameyki. Þórar- inn Eyfjörð, formaður Sameykis, staðfestir í samtali við Morgunblaðið að málið sé komið inn á borð hjá fé- laginu. Þar sé það hins vegar í stoppi vegna þess að Sameyki og Vegagerð- ina greinir á um það hvort leyfilegt hafi verið að keyra umræddar breyt- ingar í gegn án þess að semja við fé- lagsmenn um launasetningu. „Þetta er í vinnsluferli sem álita- mál hjá okkar lögmanni og þar sem þetta snýst um túlkun kjarasamn- inga fer þetta hugsanlega fyrir fé- lagsdóm,“ segir Þórarinn og bætir við: „Félagsdómur er þó mjög áset- inn núna svo þetta gæti tekið svolít- inn tíma. Við munum sækja þetta mál en það mun ekki koma nein nið- urstaða í því fyrr en það fer að nálg- ast jólin held ég, því miður. Þetta er álitamál og við erum ekki farin að sjá fyrir endann á því.“ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Vegagerðin Þjónustustöð Vegagerðarinnar í Dagverðardal á Ísafirði. Íhuga uppsögn í kjölfar skipu- lagsbreytinga - Starfsmenn Vegagerðarinnar á Ísafirði ósáttir við breytt launakjör Arnar Sigurðsson, eigandi Sante- wines, hefur lagt fram kæru á hend- ur Ívari J. Arndal, forstjóra ÁTVR, fyrir rangar sakargiftir. Í tilkynningu sem Arnar sendi frá sér í gær segir: „Forstjóri ÁTVR hefur vísvitandi haldið fram röngum sakargiftum og sakar Santewines- .sas með lögfesti í Frakklandi um lögbrot þar sem félagið hafi ekki virðisaukaskattsnúmer og skili ekki lögbundnum gjöldum.“ Í tilkynningunni segir einnig að áðurgreindar ásakanir séu rangar og félagið hafi bæði virðisaukaskatts- númer og kennitölu hér á landi. Hann bendir á að rangar sakargiftir séu refsivert athæfi, og þeim mun al- varlegra sé þeim haldið fram af opin- berum embættismanni. Fram kemur einnig að ÁTVR sé hvorki hagsmunaaðili né að rann- sóknarskylda hvíli á stofnuninni er varðar sölufyrirkomulag áfengis á Íslandi. Einnig bendir hann á að ÁTVR hafi ekki gert athugasemdir við að erlendar netverslanir selji vín í sam- keppni við einokunarverslanir stofn- unarinnar. Nánar á mbl.is Kæra á hendur forstjóra ÁTVR - Kærður af eiganda Santewines fyrir rangar sakargiftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.