Morgunblaðið - 22.07.2021, Side 12

Morgunblaðið - 22.07.2021, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 Óttar Guðmunds- son geðlæknir fer fyrir sögugöngu á Þingvöllum í kvöld, fimmtu- dagskvöld. Þar mun hann fjalla um Þingvelli í ljósi Sturlungu, sem öll liggur undir þó að þessu sinni verði einkum horft til Snorra Sturlusonar. Sá var ekki einvörðungu sagnaritari er sat á friðarstóli á höfuðbóli sínu í Reykolti í Borgarfirði heldur einnig kaldrifj- aður pólitíkus síns tíma sem lét víða til sín taka og markaði djúp spor í samtíma sinn. Óttar hefur á undanförnum árum fjallað mikið um tilveru og sálarlíf fólks sem nefnt er í Íslendingasögum og öðrum sambærilegum ritum. Þannig hefur Óttar oft varpað nýju ljósi á hvernig lesa má Íslendingasög- urnar, segir í tilkynningu. Til að bæta í stemninguna í göngu kvöldsins munu Jóhanna Þórhalls- dóttir og Signý Sæmundsdóttir stjórna fjöldasöng í Almannagjá í göngunni, sem hefst klukkan 20 þar sem lagt verður af stað frá gestastof- unni á Haki. Þingvallaganga í kvöld Morgunblaðið/Ingó Þingvellir Arkað niður Almannagjá. Óttar og Snorri Óttar Guðmundsson lífinu má segja að annað í mannlífinu komi nánast af sjálfu sér. Alltaf er svo mikilvægt að byggja á reynslu og þekkingu og læra af sögunni. Í Noregi er þess nú minnst að áratug- ur er frá hryðjuverkunum í Útey í Noregi, þar sem tugir fórust eftir að vopnaður ódæðismaður fór þar um. Sárin gróa seint eftir ógnarverk, sem mikilvægt er að gleymist ekki. Verði lærdómur til framtíðar um að öfgaviðhorf eru alltaf vond. Mikil- vægt er jafnframt að láta skynsemi og þekkingu ráða för í sérhverju máli, þó nú sé svo komið í stríðinu við veiruna vondu að veröldin veit varla sitt rjúkandi ráð. sbs@mbl.is Hnötturinn snýst hratt og fólk er alltaf að flýta sér. Þetta gæti verið lýsingin á því fjölbreytta efni sem má finna í myndabanka fréttastof- unnar AFP, sem Morgunblaðið fylg- ist vel með. Ólíkir menningarheimar mætast í þeim þúsundum mynda sem daglega berast. Fegurð felst í fjölbreytni og hún nærir lífsforvitni og leit að nýrri þekkingu sem öllum er mikilvægt að tileinka sér í leik og starfi. Stjórnmál og viðskipti eru áber- andi þræðir í heimsfréttum hvers dags. Vissulega skipta slíkar fregnir miklu máli, því ef stjórnarhættir eru í lagi og öruggur gangur í efnahags- Minning Blóm voru í gær lögð að minnisvarða í Útey í Noregi, en í dag eru lið- in rétt tíu ár frá hryðjuverkaárás sem Andres Behring Breivik framdi þar. Frelsi Grímulaus á göngu við Tower Bridge í London. Nánast öllum tak- mörkunum vegna veirunnar hefur verið aflétt á Englandi, þótt viðsjár séu. AFP Hjólað Tour de France-hjólreiðakeppnin er heimsfræg. Þátttakendur voru á ferðinni í vikunni og stoppuðu við pýramídann hjá Louvre-safninu í París. Hraðferð um heiminn í myndmáli Hnattferð! Ferðalög um heiminn eru takmörkuð. Myndir koma í staðinn og þá gildir ævintýrið um að sitja kyrr á sama stað en samt að vera að ferðast.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.