Morgunblaðið - 22.07.2021, Side 39
toga á Bakka. „Það er grundvall-
aratriði, hvort sem um er að ræða
Raufarhöfn, Húsavík, Akureyri eða
Hong Kong að hafa sem mestan
fjölbreytileika í atvinnulífinu og
eiga ekki of mikið undir velgengni
einnar greinar eða eins fyrirtækis.
Um leið verðum við að nýta þær
auðlindir sem við höfum og efla
verðmætasköpun á skynsamlegum
grunni,“ segir Kristján.
Ljósleiðaravæðingu lokið
Atvinnuppbyggingin og þau
tækifæri fyrir fjarvinnu sem
skyndilega opnuðust í kór-
ónuveirufaraldrinum þýða að
margir renna hýru auga til Norð-
urþings og gætu hugsað sér að
setjast þar að. Kristján segir að
þótt svæðið sé fjarri höfuðborginni
fylgi ótal kostir því að verða hluti
af samfélaginu í Norðurþingi. „Það
eru einkum áhugaverð störf sem fá
fólk til að koma, en því til viðbótar
kunna aðfluttir að meta t.d. góða
þjónustu í skólunum okkar og öfl-
ugt íþróttastarf Völsungs. Leik-
skólar taka inn börn um 12 mán-
aða aldur og ef áframhaldandi
atvinnuuppbygging verður á svæð-
inu má ætla að við þurfum að bæta
og stækka okkar innviði, þá sér-
staklega byggingar á borð við leik-
skóla og skóla. En það er ánægju-
leg framtíðarsýn að þurfa að glíma
við.“
Á síðustu árum hefur sveitarfé-
lagið lokið við ljósleiðaravæðingu í
dreifbýli Norðurþings og er net-
tenging því eins og best verður á
kosið sem Kristján segir að leysi
m.a. vanda þeirra sem vinna fjar-
vinnu fyrir fyrirtæki í öðrum
landshlutum eða jafnvel öðrum
heimshlutum. „Flugsamgöngur frá
Húsavík og Akureyri eru okkur
gríðarlega mikilvægar. Innan-
landsflugið veitir okkur mikil lífs-
gæði og algert lykilatriði að því sé
viðhaldið. Vegasamgöngur eru líka
góðar og við veigrum okkur ekkert
við því að sækja ákveðna sérþjón-
ustu til Akureyrar eða skjótast til
Reyjavíkur, þótt markmiðið sé allt-
af að efla verslun og þjónustu í
heimabyggð.“
Dagleg lífsgæði
Bætir Kristján við að öðru frem-
ur kunni fólk að meta nándina sem
fylgir því að búa í tiltölulega smáu
samfélagi og í návígi við náttúr-
una. „Svo munar líka um að þurfa
ekki að sitja í bíl í klukkutíma á
dag til að komast til og frá vinnu,
heldur geta einfaldlega rölt stuttan
spöl til vinnunnar. Það eru lífsgæði
sem skipta máli á hverjum degi.“
Ljósmynd/Ales Mucha
Sókn „Það eru einkum
áhugaverð störf sem fá
fólk til að koma,“ segir
Kristján um þróunina.
39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
Við Húsavík
Í faðmi náttúrunnar
NÆÐI | NÁTTÚRA | RÓ
www.kaltbakskot.com
Frítt fyrir aftanívagna
íVaðlaheiðargöng
Þjónustuver Vaðlaheiðarganga
er opið 10 til 12 og 13 til 15 virka daga
464 1790
veggjald@veggjald.is
Hlökkum til að taka á móti ykkur!
www.geosea.is
Opið alla daga
í sumar
11:00–23:00
Húsavík tekur vel á móti okkur um helgina þar
sem K100 verður í beinni útsendingu á bæjar-
og fjölskylduhátíðinni Mærudögum
Hægt er að fylgjast með í
Sjónvarpi Símans og á K100.is
Húsvíkingar halda Mærudaga há-
tíðlega um helgina og verður K100
með beina útsendingu. Kristján
segir hátíðina öðru fremur haldna
fyrir heimamenn og brottflutta
Húsvíkinga en dagskráin er bæði
fjölbreytt og fjölskylduvæn og með
sterka tengingu við tónlistarmenn-
ingu bæjarins. „Tónleikar laugar-
dagsins marka hápunkt hátíðar-
innar og er t.d. von á Svölu
Björgvins, Audda og Steinda. Tóna-
smiðjan er líka fastur liður en þar
syngja og spila börnin í bænum.“
Af öðrum skemmtilegum hefðum
má nefna Mærudagshlaupið sem
fer þannig fram að bæði börn og
fullorðnir hlaupa garð úr garði í
leit að sælgæti. „Mæra er einmitt
gamalt íslenskt orð yfir nammi, og
ef húseigendur hafa merkt garðana
sína með hvítri veifu má fólk koma
þangað inn í leit að góðgæti.“
Kristján nefnir að auki viðburði á
borð við Tívolí á höfninni, fjalla-
hjólamót, og froðurennibraut á
grastúninu við bæjarsundlaugina.
„Veðurspáin er góð þótt von geti
verið á rigningu hluta úr degi. En
ég held í þá von að líkt og fyrri ár
verði dásamlegt veður við bryggj-
una á laugardagskvöldinu þegar
tónleikarnir fara fram. Í það
minnsta verða allir í hátíðarskapi.“
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Upplifun Frá Mærudögum 2018. Þar er haldið í hefðirnar og margt að sjá.
Hlaupa um bæinn
í leit að sælgæti