Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
SMÁRALIND – DUKA.IS
FAVOURITE BOLLAR
Tilvalin
tækifærisgjöf
Verð frá 3.290,- stk.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Ýmsir möguleikar eru í stöðunni
svo þú skalt ekki skrifa undir neitt fyrr en
þú hefur kynnt þér alla málavöxtu.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú tekur það upp hjá sjálfum þér að
vera aðeins betri við fólk en nauðsynlegt
er. Að vera góður vinur hefur mikið með
tímasetningu að gera.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Óvænt tækifæri berst upp í hend-
urnar á þér og nú hefur þú enga afsökun
fyrir því að nýta þér það ekki. Nú er lag að
undirbúa gott ferðalag.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Í dag ertu ekki lengur til í að hunsa
það sem hefur angrað þig í nokkurn tíma.
Ef þú kemur ekki auga á það skiptir það
ekki máli, en annars skaltu nýta tækifærið.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Að vera upptekinn er ekki það sama
og að vera afkastamikill. Listaverkið sem
þú kallar líf er að verða stórkostlegra en þú
áleist mögulegt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það leysir engin vandamál að sópa
þeim undir teppið. Sýndu sveigjanleika,
þegar alir virðast vilja breyta öllu í kringum
þig.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Gættu þess að gleyma þér ekki í
vangaveltum og dagdraumum. Gerðu hvað
þú getur til að vekja athygli yfirmanna
þinna á verkum þínum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Forðastu mikilvægar ákvarð-
anir í dag. Heimurinn er nógu erfiður, þótt
ekki sé allt upp á alvarlega mátann.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er engin ástæða til þess
að vera hræddur við framandlegar að-
stæður, þótt það sé eðlilegt. Reyndu að
forðast deilur.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Gefðu þér nægan tíma til að
skipuleggja framgöngu þína því minnstu
mistök munu færa þig aftur á byrjunarreit.
Mundu að það sem þú gefur frá þér færðu
til baka.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Nánustu vinir þínir verða þér
sérsatklega mikilvægir næstu daga. Góð
vinátta er gulli betri.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þér hættir til að láta tímann líða án
þess að þú komir miklu í verk. Skrifaðu nið-
ur það sem þú gætir íhugað að geti farið
betur síðar.
þakkað í bak og fyrir enda auðveldar
gagnagrunnurinn þeim lífið.“ Síðan
vakti einnig athygli bókaútgefenda í
Liverpool sem buðu þeim að skrifa
bók um sögu Liverpool. „Það má
segja að ég var þá kominn í heilan
hring eftir að hafa kolfallið fyrir fé-
laginu eftir að hafa lesið þýdda bók
um sögu þess í æsku og verið síðan
beðinn um að skrifa sögu liðsins á
ensku 30 árum síðar.“
Bókin Liverpool: The Complete
Record kom út 2011 og hefur verið
endurútgefin. Stærsta bók Arn-
gríms og Guðmundar er The Liver-
pool Encyclopedia sem kom út 2013.
mundur Magnússon, forritari
ákváðum að gera eitthvað í málunum
árið 2002. Mummi forritaði gagna-
grunn og ég sá um að setja inn töl-
fræðina með hjálp mætra manna.“
Vefsíðan LFChistory.net fór í loftið í
september 2003 og þar er að finna
allar upplýsingar um félagið síðan
stofnun þess árið 1892. „Við Guð-
mundur erum ágætir saman. Ég er
penninn og hann er tölvugúrúinn og
samvinna okkar hefur leitt af sér
þennan vef og svo tvær bækur um
Liverpool. Fjölmiðlar nýta síðuna
daglega og ef maður rekst á fjöl-
miðlamenn í Liverpool er manni
A
rngrímur Baldursson
fæddist 22. júlí 1971 á
Akureyri. „Ég bjó á
Brekkunni á Akureyri í
Goðabyggð sem var
mjög samheldin og skemmtileg gata.
Þar þekktust allir og haldin götugrill
á hverju sumri. Þetta var mikil KA-
gata enda bjuggu nokkrir meistara-
flokksmenn þar.“
Eftir grunnskólann fór Arn-
grímur í Menntaskólann á Akureyri
og síðan í Háskóla Íslands í ensku-
deildina þaðan sem hann útskrifaðist
1994. Hann hefur starfað sem þýð-
andi á Stöð 2 í rúm 20 ár.
Þegar Arngrímur var tíu ára fékk
hann bók um sögu Liverpool FC í
jólagjöf sem breytti lífi hans. „Bókin
kveikti neista í mér og ég las hana
aftur og aftur, alls held ég 13-14
sinnum. Saga félagsins var svo
áhugaverð að ég varð heltekinn og
hef ekki sleppt takinu síðan þá.“
Arngrímur segir að sérstakur andi
ríki á meðal stuðningsmanna Liver-
pool. „Meirihluti íbúa Liverpool á
rætur sínar að rekja til írskra inn-
flytjenda enda sú enska borg sem er
nálægust Írlandi. Írarnir flýðu
hungursneyð heima fyrir og hafn-
arborgin mikla gat útvegað mönnum
vinnu. „Scouserar“ eins og heima-
menn eru gjarnan kallaðir eru til að
mynda lítt hrifnir af enska landslið-
inu og nánast enginn sem ég þekki
studdi það á Evrópumótinu í sumar.
Þetta er sérstakur þjóðflokkur sem
er ótrúlega fyndinn og býr yfir mikl-
um eldmóði.
Áhuginn á Liverpool FC er mikill
á Íslandi. Flestum í mínu lífi fyrir ut-
an fjölskylduna og æskuvini hef ég
tengst í gegnum Liverpool á einn
eða annan hátt. Nú ríkir enn eitt
blómatímabilið enda erum við með
Þjóðverjann Jürgen Klopp við
stjórnvölinn sem er risakarakter
eins og Skotinn Bill Shankly sem
reif upp félagið á sjöunda áratugn-
um eftir nokkra ára dvöl þess í 2.
deild.“
Arngrímur hefur verið stórtækur
í því að skrásetja sögu félagsins.
„Mér fannst aðgengi að grundvallar-
upplýsingum um liðið á netinu svo
lélegt að ég og stórvinur minn, Guð-
„Maður vann öll kvöld, nætur og
helgar til að skila inn 650 síðna risa-
vaxinni bók með 1100 myndum. Ég
get alveg fullyrt að hún er á meðal
bestu bóka sem hafa verið skrifaðar
um Liverpool FC enda veit ég
hversu mikið var lagt í hana.“ Þriðja
bók Arngríms er síðan Mr Liverpool
– Ronnie Moran: The Official Life
Story. „Bókin kom út tveimur vikum
áður en Ronnie lést árið 2017. Eftir
útgáfuna festist nafnbótin Mr Liver-
pool við hann, sem ég er ánægður
með, en hann starfaði 49 ár hjá fé-
laginu.“
Arngrímur hefur farið á 43 leiki
með Liverpool (Sigrar 22 – jafntefli
10 – töp 11) og strákarnir hans tveir
styðja – ótrúlegt en satt – sama lið
og pabbinn. Eldri strákurinn, Leon
Bjartur, sá fyrstu leiki sína á Anfield
haustið 2019 sem voru gegn Genk og
Manchester City. „Eftirminnilegir
leikir eru helst sigrarnir á Chelsea
og Barcelona í undanúrslitum Meist-
aradeildar 2005 og 2019. Stúkurnar
á Anfield eru þétt upp við völlinn
enda er leikvangnum þröngar skorð-
ur settar inni í miðju íbúðahverfi.
Gegn Barcelona vorum við 3-0 undir
eftir fyrri leikinn á Spáni og unnum
4-0. Ég stóð í sjöttu sætaröð Kop-
stúkunnar beint fyrir aftan mark
Barca þegar mörkin flæddu þar inn í
síðari hálfleik. Draugamarkið svo-
kallaða hjá Luis Garcia gerði út um
leikinn gegn Chelsea og þegar það
kom snemma leiks flaug ég niður
tvær sætaraðir í Kop því það gjör-
samlega trylltist allt.“
Árið 2015 hóf Arngrímur að
stunda fjallgöngur og tengist það
líka öðru áhugamáli hans, ljós-
myndun. Arngrímur hefur verið í
Toppförum þar sem miklir göngu-
garpar eru og er fastamaður í
Gönguhóp Gumma Egils sem er
einnig kenndur við gamla vinnustað
hans 365. „Ég er nýkominn úr ferð
með Gumma á Hornstrandir, en ég
fór þangað fyrst með honum 2019.
Sá hópur fer í eina stóra gönguferð á
ári á Íslandi en villtist einnig til Nep-
als árið 2017. Þarna endar maður í
5.300 metrum í grunnbúðum Ever-
est og þetta er klikkaðasta ferð sem
ég hef farið í enda loftið þunnt. Þar
Arngrímur Baldursson þýðandi og eldheitur Liverpool aðdáandi – 50 ára
Púllari fyrir lífstíð
2016 Með goðinu, Jürgen
Klopp með bók Arngríms,
Liverpool Encyclopedia.
Sumarið 2016 Synir Arngríms eru komnir
í lið með pabba í boltanum og hér eru þeir
með honum í Liverpool peysunum sínum.
Göngugarpur Arngrímur er
nýkominn af Hornströndum
en þessi mynd er tekin 2019.
Til hamingju með daginn
50 ÁRA Ingunn Guð-
jónsdóttir fæddist 22.
júlí árið 1971 á Selfossi
og ólst þar upp. Hún
gekk í barnaskóla Sel-
foss og varð stúdent
frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands árið 1993.
Þá fór hún til Reykja-
víkur og útskrifaðist
með B.Ed-gráðu í
grunnskólakenn-
arafræðum frá Háskóla
Íslands árið 2010 og
bætti svo við sig sér-
kennslufræðum nokkru
seinna.
Ingunn hefur alltaf
haft mikið yndi af því
að vinna og starfaði
hún einna lengst í
Pylsuvagninum á Sel-
fossi, einnig vann hún í
nokkur ár í Prent-
smiðju Suðurlands og í
dag starfar hún sem
sérkennari við Valla-
skóla á Selfossi.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum og æfði meðal annars sund
á mínum yngri árum. Í dag er mitt helsta áhugamál útivist og þá helst
gönguferðir og fjallgöngur.“
FJÖLSKYLDA Ingunn á eina dóttur, Rannveigu Hörpu Jónþórsdóttur, f.
4.4. 1998, sem er að læra íþrótta- og heilsufræði. Móðir Ingunnar er Rann-
veig J. Einarsdóttir, f. 27.9. 1944. Faðir hennar var Guðjón Gestsson, f. 7.5.
1934, d. 1.6. 2020. Bræður hennar eru Rúnar Guðjónsson, f. 26.4. 1965, og
Gestur Guðjónsson, f. 3.11. 1980.
Ingunn Guðjónsdóttir