Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 Þ egar hafist er handa við að skrifa plötudóm og fyrsta verkefnið er að leita á net- inu að hinum fjölmörgu framandi hljóðfærum sem leikið er á þýðir það bara eitt: Hér er svo sann- arlega komin plata sem er alls ekki eins og það sem dags daglega rekur á fjörur manns. Hver þekkir svo sem tamboura, konnakol, oud og cifteli? Þetta eru strengja- og ásláttarhljóð- færi sem ættuð eru frá Indlandi, Albaníu og Norður-Afríku og blandast afskap- lega vel við kontrabassa-, klarinett- og píanóleikinn svo úr verður ein- stakur hljóðheimur. Það er afskaplega skemmtilegt að hlusta á Meridian Metaphor og vita í raun ekki nákvæmlega hvert af þessum undarlegu hljóðfærum er að leika í það og það skiptið og eykur það mjög á framandleika plötunnar í heild sinni. Hljómurinn verður ill- skilgreinanlegur og dettur mér helst í hug til samanburðar að þetta sé ör- lítið eins og a-hliðin á Lodger með David Bowie ef hún væri ósungin djassplata. Það er þó líka heilmikið af skírskotunum í framsækna tón- list, svokallað proggrokk á borð við King Crimson, og útsetningar ásamt trommuleik Matthíasar Hemstock setja heilmikinn svip á það. Hljómur og áferð plötunnar eru ferðalag um heiminn sem allt í einu er kominn í stofuna eða beint í eyrun og kitla ævintýraþrána, en það eru þó lagasmíðarnar sjálfar sem eru raunverulegur styrkur plötunnar. Lögin á þessari plötu ná manni eftir nokkrar hlustanir og sum þeirra eru svo ágeng að manni finnst eins og þau hafi bara alltaf verið til. Þar má sérstaklega nefna lögin „Berlin Bac- alhau“, „Stinningskaldi“ og lokalagið „Mehmetaphor“ sem eru svo sterk og grípandi að manni bregður hrein- lega við. Þetta eru sterkustu lögin en hin fimm á plötunni hafa líka öll eitt- hvað við sig. Hljóðfærunum er gefið rými til samtals og hvert og eitt fær pláss til að segja sína sögu sem sam- tvinnast þegar allt fer af stað og rís upp. Þarna er angurværð í lagasmíð- um og virðing í flutningi og útkoman hreyfir við hlustendum sem hafa tilbúin eyru til að fara á flug í stof- unni sinni. Enn eitt meistaraverkið sem Reykjavík Record Shop býður elskendum góðrar tónlistar upp á. Morgunblaðið/Hari Kontrabassi „Það eru þó lagasmíðarnar sjálfar sem eru raunverulegur styrkur plötunnar,“ segir um nýja plötu Sigmars Matthíassonar. Heimstónlistardjass Meridian Metaphor bbbbb Höfundur tónlistar og útsetninga: Sigmar Matthíasson ásamt hljómsveit. Sigmar Matthíasson spilar á kontra- bassa, Ásgeir Ásgeirsson á oud og tam- boura, Haukur Gröndal á klarinett, Ingi Bjarni Skúlason á píanó og Matthías Hemstock á trommur. Sérstakir gestir á plötunni eru Ayman Boujlida, sem leikur á konnakol og sér um áslátt í laginu „Karthado“, og Taulant Mehmeti sem leikur á cifteli í laginu „Mehmetaphor“. Upptökur fóru fram í Sundlauginni 14.- 16. október 2020 og Birgir Jón Birgis- son tók upp. Matti Kallio hljóðblandaði í Fireland í Reykjavík og Pauli Saastamoi- nen hljómjafnaði í Finnvox Studios í Finnlandi. Útgáfudagur er 4. júní 2021. RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR TÓNLIST Tilbúin eyruStarfsmenn hjá Victoria and Albert Museum í London telja sig hafa fundið fingrafar ítalska endur- reisnarlistamannsins Michelang- elos. Þessu greinir Artnet News frá, en fjallað er um fundinn í fyrsta þættinum af Secrets of Museum sem nýverið hóf göngu sína á BBC Two. Í þættinum er haft eftir Petu Motture, aðalforverði safnsins, að nokkru eftir að safninu var lokað fyrir gestum vegna heimsfarald- ursins í fyrravor hafi starfsmenn tekið eftir því að vaxstyttur Michelangelos, sem þar voru til sýnis, hafi ver- ið byrjaðar að svitna vegna mikils hita í sýningarsalnum sem snýr mót suðri. Þá hafi sú ákvörðun verið tekin að flytja stytturnar á svalari stað í kjallara safnsins. Fimm mánuðum seinna þegar stytt- urnar voru sóttar aftur upp hafi einn forvarða safnsins tekið eftir fingrafari á ann- arri rasskinn umræddrar vaxstyttu. Samkvæmt frétt Artnet News er talið lík- legt að fingrafarið hafi birst „þökk sé efnafræði- legum breytingum í vaxinu Mögulega fingrafar sjálfs Michelangelos sökum sveiflna í hita- og rakastigi“. Vaxstyttuna gerði Michelangelo sem lið í undirbúningi fyrir risamarmarastyttu af þræl sem prýða átti ófullgerða gröf Júlíusar II páfa við Péturs- kirkjuna í Róm. Michelangelo náði aðeins að byrja á framhlið marmarastyttunnar, sem í dag er hluti af safnkosti Galleria dell-Accademia í Flórens. Michelangelo gerði um fjöru- tíu minni vaxstyttur til að undirbúa marmarastyttuna, en aðeins örfáar þeirra hafa varðveist. „Það var aldrei ætlunin að vaxstyttunar ættu að endast lengi. Það er það sem er svo heillandi og einstakt við þessa styttu. Listamanninn hef- ur sennilega aldrei grunað að hún myndi endast í nokkrar aldir eftir andlát hans,“ segir Victoria Oak- ley, sýningarstjóri hjá Vic- toria and Albert Museum, við dagblaðið The Tele- graph. Þræll Vaxstyttan af þræl sem Michelangelo skóp á tíma- bilinu 1516-1519. Myndin er fengin frá Victoria and Albert Museum í London. Aðeins örfáum klukkutímum fyrir frumsýn- ingu á söng- leiknum Ösku- busku eftir Andrew Lloyd Webber í Gillian Lynne-leikhús- inu í London til- kynnti tónskáld- ið á sunnudag að fresta þyrfti frumsýningunni um óákveðinn tíma. Ástæðan er sú að daginn áður hafði einn leikari sýn- ingarinnar í reglubundnu eftirliti greinst með Covid-19 og í fram- haldinu voru allir sem að sýning- unni koma, bæði leikhópurinn og allir baksviðs, sendir í skimun. Öll sýnin reyndust neikvæð, en vegna reglna breskra stjórnvalda um ein- angrun allra sem komist hafi í ná- vígi við þann smitaða verður öllum sýningum frestað til vikuloka. Í yfirlýsingu frá Webber segir að frestun sýninga hafi verið þungbær þar sem ljóst sé að ákvörðunin muni „hafa neikvæð áhrif á lífsafkomu hundraða manna og valda þúsundum leik- húsgesta vonbrigðum“. Í frétt The Guardian kemur fram að gremja fari vaxandi í breska leikhúsheim- inum sökum þess að engar bætur eða aðstoð fæst frá hinu opinbera ef starfsmaður leikhúss greinist með Covid-19 með þeim afleið- ingum að ekki sé hægt að sýna dögum saman með tilheyrandi tekjufalli. Bresk stjórnvöld hafa boðað að frá og með 16. ágúst þurfi starfsmenn leikhúsanna, sem átt hafa samskipti við smitaða manneskju, ekki að fara í ein- angrun nema þeir greinist sjálfir með veiruna. Öskubuska átti upp- haflega að fara á svið í fyrrasum- ar, en frestaðist um tíu mánuði vegna heimsfaraldursins. Öskubuska sett á ís vegna smits Andrew Lloyd Webber Starfsmaður á Marina-ströndinni í Chennai á Indlandi leggur lokahönd á uppsetningu styttu sem búin var til úr brotajárni. Rækjan volduga hefur félagsskap af ógnvekjandi brotajárnshákarli sem einnig hefur verið komið fyrir á ströndinni gestum og gangandi til ánægju og yndisauka. Sjávarfang á ströndinni AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.