Morgunblaðið - 22.07.2021, Page 60

Morgunblaðið - 22.07.2021, Page 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 Kíktu við! Gott úrval af gæðakjöti á grillið Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is „Við erum ánægð með hvað veðrið tekur okkur opnum örmum á Norðurlandi. Við erum að búa okkur undir sæludaga hér,“ segir Pétur Björnsson, fiðluleikari kammer- sveitarinnar Elju, en blaðamaður náði tali af honum á leið sinni norð- ur á Akureyri þar sem hann mun spila á sumartónleikum Elju. Tónleikarnir á Akureyri verða haldnir í Hofi í kvöld kl. 20, en seinni tónleikar sveitarinnar verða í Háteigskirkju í Reykjavík á laugar- dag kl. 20. Að sögn Péturs er mikil eftirvænting í hópnum eftir tónleik- unum enda langt síðan hljómsveitin kom saman til að spila. Hafði Elja lagt af stað í tónleikaferðalag um landið í fyrrasumar en varð að snúa við eftir einungis eina tónleika vegna nýrrar bylgju af kórónuveiru- faraldrinum. „Fólk iðar í skinninu að fá að spila. Það er líka alltaf gam- an að fara út á land á sumrin,“ segir Pétur. Tvö frumflutt verk Kammersveitin mun alls spila fjögur verk en að sögn Péturs er verkefnavalsnefnd innan sveitar- innar sem sér um að velja þau verk sem verða flutt á tónleikunum. Geta allir í Elju sem hafa áhuga verið með í þeirri nefnd. Hefur venjan verið sú að blanda saman klassískri sinfónískri tónlist við nýrri lög. Í ár mun sveitin flytja verkin Dance Preludes eftir Witold Lutoslawski og sinfóníu nr. 1 eftir Sergej Proko- fíev. Auk þess verða frumflutt tvö verk sem eru sérsamin fyrir sveit- ina. Annars vegar er það verk eftir ungt íslenskt tónskáld, Hjalta Nor- dal, og hins vegar verk eftir tón- skáldið Elenu Postumi. Hún er ítölsk en þekkir vel til á Íslandi að sögn Péturs. Gert er ráð fyrir að tónleikarnir verði um klukkutíma langir en vegna yfirstandandi heimsfaraldurs var tekin ákvörðun um að ekkert hlé yrði tekið milli verka. Ný kynslóð hljóðfæraleikara Kammersveitin Elja var stofnuð árið 2017 og samanstendur af 30 hljóðfæraleikurum sem leika ýmist á strengi, blásturshljóðfæri og slag- verk. Hafa þeir einbeitt sér að tón- listarflutningi af ólíkum toga en þeir hafa víða komið fram sem einleik- arar eða með hljómsveitum, og þá bæði sem hljóðfæraleikarar eða við hljómsveitarstjórn. Spurður hvernig hugmyndin að kammersveitinni hafi komið til segir Pétur það venju á Íslandi að hver kynslóð hljóðfæraleikara stofni hljómsveit en Elja er samansafn af ungu fólki á þrítugs- og fertugs- aldri. Hafði hluti hópsins hist reglu- lega til að spila saman áður en látið var til skarar skríða og hljómsveit stofnuð. Var þá meirihluti hljóðfæraleikaranna staddur erlend- is í námi og eru þar margir enn. „Til að byrja með voru langflestir í námi, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Það er alltaf þannig að við erum úti um allt og það er mik- ilvægt fyrir okkur að plana öll verk- efnin með löngum fyrirvara til að ná saman í sveit,“ segir Pétur. Upphaflega sáu hljóðfæraleikar- arnir sjálfir um allt skipulag en eftir að framkvæmdastjóri var ráðinn fyrir tæpum tveimur árum hefur álagið á hljómsveitina minnkað töluvert. Að sögn Péturs hefur nú gengið ágætlega að smala hópnum saman fyrir tónleikahaldið og æfingarnar, sem hófust síðasta laugardag, hafa gengið afar vel. Elja Kammersveitin Elja hefur verið starfandi frá árinu 2017 og samanstendur hún af ungum hljóðfæraleikurum búsettum hérlendis og erlendis. Elja leggur land undir fót - Kammersveitin Elja heldur sumartónleika á Akureyri og í Reykjavík - „Fólk iðar í skinninu að fá að spila,“ segir Pétur Björnsson fiðluleikari Söng- og leikhópurinn Tónafljóð býður upp á ævintýralega barna- skemmtun í Hellisgerði í Hafnar- firði í dag, fimmtudag, kl. 15. Hóp- inn skipa þær Dagný Ásta Guðbrandsdóttir, Elísa Hildur Þórðardóttir, Hanna Einarsdóttir, Rebekka Sif Stefánsdóttir og Selma Hafsteinsdóttir. Á tónleik- unum í dag munu þær flytja tón- listarsyrpu úr þekktustu Disney- teiknimyndunum. Sem dæmi verða flutt lög úr Frozen, Konungi ljón- anna, Aladdin, Toy story og Vaiana. „Söng- og leikhópurinn Tóna- fljóð var stofnaður í janúar 2018 og byrjuðum við að æfa af krafti og finna nýjar hugmyndir fyrir tónlistarmarkaðinn á Íslandi. Við byrjuðum að æfa klassískar perlur og ætluðum að herja á þann mark- að, en á einni æfingunni vorum við að hita okkur upp og ákváðum að syngja Disney-lög. Við sungum úr okkur innyflin og fengum svoleiðis útrás og gleði út úr því að syngja þessi frábæru lög, enda allar mikl- ir aðdáendur Disney-teiknimynd- anna. Þá kviknaði sú hugmynd að útfæra lögin í syrpu og gera hana leikræna og skemmtilega fyrir börnin. Við vorum ekki lengi að útfæra syrpuna, velja lög, æfa dansa og panta búninga. Ástríðan var svo sannarlega til staðar og gætum við ekki verið hamingju- samari með atriðið, sem bæði börn og fullorðnir hafa gaman að,“ seg- ir í tilkynningu frá hópnum. Allar nánari upplýsingar um hópinn má finna á vefnum tonafljod.com. Barnaskemmtun Tónafljóða í Hellisgerði Tónafljóð Lög úr Disney-teiknimyndum eru í uppáhaldi hjá söng- og tónlistarhópnum. Ljóðapönk verður í hávegum á tónleikum hljómsveit- arinnar Gertrude and the flowers í félagsheimilinu á Suðureyri við Súgandafjörð annað kvöld kl. 21. Flytj- endur eru Arndís Björg Sigurgeirsdóttir á trommur, Guðbjörg Ottósdóttir á slagverk, Fríða Bonnie Andersen á trompet og klarinett, Anna Jóhannsdóttir á bassa, Herdís Eiríksdóttir á ukulelle, Margrét Óskarsdóttir á hljómborð, Ólafía Hrönn Jónsdóttir á gítar og Ásdís Óla- dóttir sem syngur. Frítt er inn á tónleikana og allir vel- komnir á meðan húsrúm leyfir. Gertrude með ljóðapönk á Suðureyri Ólafía Hrönn Jónsdóttir Guðlaugur Bjarnason opnar sýn- inguna Bleikur Keilir í Gallerí Göng- um við Háteigskirkju í dag milli kl. 14 og 16. „Guðlaugur sýnir málverk sem eru unnin að mestu frá sumrinu 2020 fram á daginn í dag. Rétt fyrir páska 2020 fékk Guðlaugur heila- blóðfall og lamaðist á vinstri hlið og við það skertist sjónsvið hans tölu- vert. Myndirnar sem hann sýnir eru allar unnar í bataferli Guðlaugs,“ segir í tilkynningu. Guðlaugur lauk námi við mynd- höggvaradeild MHÍ 1988 og fór á steinhöggvaranámskeið á Gotlandi í Svíþjóð það sama ár. Hann tók þátt í sumarakademíunni í Salzburg í Austurríki 1989. Um haustið hélt hann til Edinborgar í Sculptur School og lauk Diploma of Fine Art um vorið 1990. Síðar sama ár lá leið- in til Þýskalands í Kunstakademie Düsseldorf og 1993 útskrifaðist hann svo sem Meisterschuler hjá Magdalenu Jetelovu. Keilir Eitt málverka Guðlaugs Bjarnasonar. Bleikur Keilir í Gallerí Göngum Bræðslan fer fram á Borgar- firði eystra um helgina og er þegar uppselt á hátíðina. Enn er þó hægt að næla sér í miða á svo- kallaðan Fimmtu- dagsforleik fyrir Bræðslu í Fjarð- arborg í kvöld kl. 20.30. „Stelpurnar í SoKaRa, þær Ragnhildur, Karen og Soffía, opna kvöldið, en síðan taka við Pétur Örn, Einar Þór og Magni and the Hafthors með sína gríðarlega vinsælu óskalaga- tónleika. Ekkert prógramm ákveðið fyrir fram og salurinn ræður algjör- lega förinni,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Óskalagatónleikar í Fjarðarborg Magni Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.