Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 6

Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 6
4 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 Birgitta Jónsdóttir, fráfarandi þingmaður Pírata (en kandídat á ráðherralista þeirra), gekk svo langt um daginn að halda því fram að nauðsynlegt væri að fara í breytingar á stjórnarskránni til að halda Sjálfstæðis flokkn- um frá völdum til lengri tíma. Það er, sem betur fer, ekki víst að Íslendingar vilji til lengri tíma stjórnarskrá sem stöðvar lýðræðislegt ferli sem felur í sér að flokkar sækja umboð sitt til kjósenda. Það er aldrei svo að allir séu sáttir við niðurstöðu kosninga, en að ætla sér að breyta stjórnarskrá landsins vegna þeirrar óánægju er ekki bara barnalegt – það er beinlínis ógeðfellt. Og það er full ástæða til að berjast gegn slíku viðhorfi af fullri hörku. Nú er rétt að taka fram að stjórnarskráin er ekki heilagt plagg og henni má vel breyta. Reyndar hefur henni verið breytt sjö sinnum frá lýðveldisstofnun og í þeim lotum hefur meira en helmingur ákveða hennar tekið breytingum. Og það sem meira er, sögulega séð hefur enginn flokkur jafn oft haft forgöngu um raunverulegar breytingar á stjórnarskránni en Sjálfstæðisflokkurinn. *** Það að boða kerfisbreytingar er líka ákveðin afsökun fyrir aðgerðarleysi. Píratar hafa sem dæmi ítrekað borið fyrir tíma- og þekkingar- leysi til að forðast það að taka afstöðu í málum. Alltaf geta þeir rætt um nauðsyn- legar breytingar á stjórnarskrá en í nær öllum öðrum tilvikum eru þeir ófærir um að taka ákvarðanir eða kynna sér mál til hlítar. Viðreisn hefur orðið uppvís að því sama, en þó undir öðrum formerkjum. Þingmenn og ráðherrar flokksins nota ítrekað frasa eins frjálslyndi og kerfisbreytingar til að kasta ryki í augu almennings. Eina kerfisbreytingin sem þeim tókst að koma í gegn voru óskilvirk lög um jafnlaunavottun, þrátt fyrir að fjölmörg fyrirtæki hefðu nú þegar fengið jafnlauna- vottun frá öðrum aðilum en ríkinu. Sitjandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ósjaldan talað um mikilvægi þess að fara í kerfisbreytingar, þá sérstaklega þegar þörf er fyrir aðgerðir. Þegar sjómannaverk- fallið stóð sem hæst talaði ráðherrann um mikilvægi þess að breyta kerfinu. Þegar vandi sauðfjárbænda varð öllum ljós varð ráðherra tíðrætt um að það þyrfti að breyta kerfinu. Að sjálfsögðu voru ekki gerðar neinar breytingar og svo virðist sem þetta hafi verið einhvers konar afsökun fyrir aðgerðarleysi. Nútíma- stjórnmál gefa færi á því að fela aðgerðarleysi í tali um kerfisbreytingar. *** Þess má geta að á kjörtímabili síðustu ríkisstjórnar (2013-2016) var farið í heilmiklar kerfisbreytingar. Þeirra stærst var hin svo- kallaða leiðrétting (sama hvað mönnum kann að finnast um hana), búið var til kerfi þar sem einstaklingar gátu nýtt séreignarsparnað til að greiða inn á húsnæðislán og flýta þannig töluvert fyrir eignarmyndun, farið var í afnám vörugjalda og tolla, ríkisstofnunum var fækkað (t.a.m. var lögreglu- og sýslumanns- embættum fækkað) og þannig mætti áfram telja. Það hefði mátt ganga lengra á þessum árum, lækka skatta enn frekar, hagræða meira í rekstri ríkisins o.s.frv., en það er ekki hægt að halda því fram að ekki hafi verið farið í neinar kerfisbreytingar. Þess má geta að enginn af þeim flokkum sem tala hæst um kerfisbreytingar í dag hefur það að markmiði að lækka skatta, fækka ríkisstofnunum eða bæta hag almennings með öðrum hætti. Allt tal um kerfisbreytingar er á popúlískum nótum og snýr að því að festa stjórnmálaskoðanir þeirra sem um þær hafa hæst í sessi. Það má aldrei gerast. ***
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.