Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 12

Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 12
10 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 IV. Þegar þetta lá fyrir varð mikið uppnám í fjölmiðlum og meðal stjórnmálamanna. Boðað var til óformlegs stjórnarfundar í Bjartri framtíð á heimili flokksformannsins, Óttars Proppé, að kvöldi fimmtudags 14. september. Um 50 manns sóttu þennan fund að sögn forráðamanna flokksins við Morgunblaðið (laugardag 16. september). Guðlaug Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, sagði að eindregin afstaða hefði komið fram í máli fundarmanna. Í Morgunblaðinu sagði Guðlaug: „Fundirnir okkar eru þannig að fólk situr saman í hring og svo er gengið á hringinn og fólk talar í mínútu eða eina og hálfa. Það var gert og tók einn og hálfan tíma. Fólki fannst mikilvægt að fá skýra afstöðu stjórnarinnar fljótt og vel. Því ákváðum við í framkvæmdastjórninni, sem var öll á staðnum, að hafa rafræna kosningu. Niðurstaðan var afgerandi og 87% af þeim sem tóku afstöðu vildu slíta stjórnarsamstarfinu. Þetta er sá háttur sem við höfum haft á við atkvæðagreiðslur. Þetta er fjölbreyttur hópur sem dreifður er úti um allt og mikilvægt að allir getið tekið þátt í atkvæðagreiðslum.“ Þarna voru örlög ríkisstjórnarinnar ráðin. Föstudaginn 15. september komu þingflokkar stjórnmálaflokkanna saman og varð ljóst að þeir töldu eðlilegast, allir nema Píratar, að þing yrði rofið og gengið til kosninga. V. Bjarni Benediktsson sagði ekkert opinber- lega um afstöðu sína fyrr en á blaðamanna- fundi í Valhöll klukkan 16.30 föstudaginn 15. septem ber þar sem hann gerði grein fyrir gangi mála frá sínum sjónarhóli. Hann sagði (reist á frásögn Morgunblaðsins laugardaginn 16. september): „Þegar ég stóð í þessum sporum [að dómsmálaráðherra hafði skýrt honum frá bréfi föður hans] var mér sem sagt mest umhugað um að þetta mál fengi enga sérmeðferð og þyrfti að lúta sömu lögum og reglum og öll önnur sambærileg mál. Ég hef aldrei á nokkrum tímapunkti beitt mér fyrir því að málinu yrði stungið undir stól, að því yrði haldið frá mönnum eða með einhverjum hætti yrði reynt að hylma yfir málsmeðferðina. En það er nú að miklu leyti það sem umræða vikunnar hefur jú snúist um. Mér varð það síðan ljóst fyrir nokkrum dögum, vegna þess að fjölmiðlar höfðu lagt fram fyrirspurnir sem gáfu til kynna að þeir hefðu þá þegar upplýsingar um „Því ákváðum við í framkvæmda- stjórninni, sem var öll á staðnum, að hafa rafræna kosningu. Niðurstaðan var afgerandi og 87% af þeim sem tóku afstöðu vildu slíta stjórnarsamstarfinu.” Guðlaug Kristjánsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.