Þjóðmál - 01.09.2017, Page 13
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 11
þetta viðkomandi umsagnarbréf föður
míns, ...að það stefndi í opinbera um-
fjöllun um það mál, alveg óháð niðurstöðu
úrskurðarnefndarinnar. Á þeim tímapunkti
tók ég ákvörðun um að greina formönnum
hinna stjórnarflokkanna beggja frá því að
þess mætti vænta að málið kæmi fram í
opinbera umræðu. Og ég lét þess um leið
getið að þarna væri um að ræða mál sem
mér hefði verið ókunnugt um meðan það
var til málsmeðferðar... Þetta gaf ekki tilefni
til mikillar umræðu milli mín og formanna
hinna stjórnarflokkanna á þeim fundi sem
við sátum á.
Það kom mér þess vegna algerlega í
opna skjöldu þegar ég fékk þau tíðindi
í gær [fimmtudaginn 14. september] að
menn segðu að þeir vildu ganga út úr
stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn
vegna alvarlegs trúnaðarbrests sem hefði
orðið í þessu máli. Þau rök finnst mér ekki
standast neina skoðun. Í fyrsta lagi bendi
ég á að mér var að lögum óheimilt að
deila upplýsingum um þetta mál. Í öðru
lagi greip ég fyrsta tækifæri sem ég hafði
til þess að deila með samstarfsmönnum
mínum upplýsingunum, sem þóttu jú þetta
viðkvæmar. Og í þriðja lagi finnst mér...
þegar menn eru að velta fyrir sér hvort hér
sé eitthvert óhreint mjöl í pokahorninu hvað
varðar mína aðkomu að málinu, eða stjórn-
sýslulega meðferð málsins, að þá hljóti
að ráða úrslitum hvort málið hafi fengið
sérmeðferð eða hvort maður hafi með
einhverjum hætti haft puttana í málinu.
Það hefði ég haldið að væri kjarni máls. En
ekkert af þessu átti við.“
VI.
Bjarni Benediktsson gekk á fund Guðna Th.
Jóhannessonar forseta Íslands á Bessastöðum
laugardaginn 16. september. Eftir fundinn
sendi forseti frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Fyrr í morgun gekk forsætisráðherra
á fund minn vegna þeirra tíðinda að
ráðuneyti hans nýtur ekki lengur meir
ihlutastuðnings á Alþingi. Forsætisráðherra
baðst því lausnar fyrir sig og ráðuneyti
sitt. Ég samþykkti þá lausnarbeiðni en fól
forsætisráðherra og ráðuneytinu að sitja
áfram uns ný ríkisstjórn hefur verið mynduð
í samræmi við stjórnskipun landsins. Á
fundi okkar ræddum við einnig þá eindregnu
ósk allra þingflokka að þing verði rofið og
gengið til kosninga innan fárra vikna.
Eftir hádegi mun ég kalla leiðtoga annarra
stjórnmálaflokka á Alþingi á minn fund og
fá staðfest sjónarmið þeirra um þingrof og
kosningar. Að því loknu má vænta frekari
tíðinda í þeim efnum. Eftir helgi mun
forsætisráðherra ganga á minn fund á ný.“
Forseti Íslands kannaði í samtölum við leið-
toga stjórnmálaflokkanna hvort vilji væri til
að mynda annars konar ríkisstjórn en þá sem
sat og splundraðist.
Alþingi kom saman til fundar mánudaginn
18. september og var eitt mál á dagskrá,
tilkynning forsætisráðherra um þingrof og
alþingiskosningar Bjarni Benediktsson sagði:
Forseti Íslands hefur ritað svofellt bréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt, samkvæmt
tillögu forsætisráðherra og með vísan til
24. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944, eins
og henni var breytt með 5. gr. stjórnar-
skipunarlaga, nr. 56/1991, samanber 21. gr.
laga um kosningar til Alþingis, nr. 24/2000,
er ákveðið að þing verði rofið 28. október
2017 og að almennar kosningar til Alþingis
fari fram sama dag. [...]
Virðulegi forseti. Við þekkjum öll aðdrag-
anda þess að ég hef í dag lagt fyrir forseta
það bréf sem ég hef hér lesið upp, en það
formsatriði er hér með uppfyllt að bréfið
sé tilkynnt á Alþingi til að það taki þar með
gildi.“
Innan við viku eftir að Ólafur Þ. Harðarson
spáði því að í hönd færi frekar tíðindalítill
stjórnmálavetur var ríkisstjórnin sprungin,
þing hafði verið rofið og boðað var til nýrra
kosninga.