Þjóðmál - 01.09.2017, Side 20
18 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
Skortur á stefnumörkun
hamlar uppbyggingu
Ísland hefur mikla möguleika þegar kemur
að því að laða til sín starfsemi alþjóðlegra
gagnavera, en búist er við að á næstu árum
muni þörfin fyrir þjónustu þeirra margfaldast.
Kostir Íslands sem taldir eru upp í þessu sam-
hengi eru fjölmargir; sem dæmi er aðgengi
að raforku og vatni gott auk þess sem veður-
skilyrðin þykja hagfelld rekstri gagnavera þar
sem hægt er að tryggja kælingu allan ársins
hring. Skilyrðin eru til staðar og Ísland gæti
staðið framarlega þegar kemur að samkeppnis-
hæfni í alþjóðlegum gagnaveraiðnaði. En
það sem upp á vantar er skýr stefnumörkun
stjórnvalda og framtíðarsýn fyrir þennan
iðnað. Starfshópur á vegum ráðuneytanna
vinnur nú að slíkri stefnumótun og eru miklar
vonir bundnar við störf þess hóps.
Við sjáum dæmi þess í nágrannaríkjum okkar
að þar sem lögð hefur verið fram skýr stefna
um uppbyggingu gagnavera hefur það skilað
árangri. Nægir að nefna Svíþjóð og Írland
í þessu samhengi. Í Svíþjóð hefur meðal
annars verið unnið að einföldun innviða og
breytingu á sköttum til að greiða fyrir komu
alþjóðlegra gagnavera til landsins, með
góðum árangri. Á Írlandi hefur á skömmum
tíma tekist að búa til eftirsóknarverðan
áfangastað fyrir stór alþjóðleg gagnaver til að
koma upp starfsstöðvum. Þátttaka hins opin-
bera í stefnumörkun gagnaveraiðnaðarins
var lykilatriði í að þessi lönd næðu þeim
árangri sem þau hafa náð í uppbyggingu og
vexti þessa iðnaðar á undanförnum árum.
Höfum bein áhrif á framtíðina
Með heildstæðri stefnumörkun má nýta
hverja krónu á markvissari hátt. Það þarf ekki
endilega að fjölga krónunum heldur leiðir
skýr stefnumörkun til þess að hver króna er
betur nýtt. Skýrsla McKinsey um íslenska heil-
brigðiskerfið sem kom út haustið 2016 sýnir
þetta vel, en þar er dregið fram að skortur á
skýrri stefnumörkun kosti stórfé á ári hverju.
Annað dæmi sem má nefna er að stjórn-
völd eru með samgönguáætlun, áætlun um
uppbyggingu í fjarskiptum, m.a. í gegnum
verkefnið Ísland ljóstengt, og raforkustefnu.
Hins vegar er ekki til heildstæð áætlun um
uppbyggingu innviða á Íslandi.
Þar sem við viljum hafa fjölbreytt atvinnulíf
um allt land þarf að leggja skýrar línur svo
að stefnt sé að sama markinu. Atvinnu-
uppbyggingin þarf að taka mið af menntun
og færnimisræmi, nýsköpun, innviðum og
starfsumhverfi. Hver þessara fjögurra þátta
stendur ekki einn og sér heldur þarf að
horfa til þeirra allra í samhengi. Byggja þarf
á þeim styrkleikum sem fyrir eru til að skapa
tækifæri fyrir fólk og þá ekki eingöngu fyrir
fólkið á höfuðborgarsvæðinu heldur um allt
land. Þessu til viðbótar þarf efnahagslegan
stöðugleika.
Sé þetta uppfyllt mun Ísland standa framar
í samkeppni þjóða og hér mun atvinnulíf
dafna enn frekar.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins.
Ekki má gleyma því að allt snýst þetta um fólk og svæðið þarf því að vera
aðlaðandi fyrir íbúana. Þess vegna er lögð áhersla á menningu og að gera
umhverfið heillandi. Ný leikhús og söfn hafa verið sett á laggirnar og svæði
til útivistar byggð upp til að þola frekari umferð fólks.
6
ISBN 978-9935-486-38-7
Með lífið að veði
Leið norðurkóreskrar stúlku til frelsis
Með lífið að veði
M
eð lífið að veði
YEO
N
M
I PA
R
K
Leið norðurkóreskrar stúlku til frelsis
YEONMI PARK
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Yeonmi Park frá Norður-Kóreu
upplifað miklar mannraunir. Árið 2007, þá 13 ára, flýði hún
grimmilegar aðstæður heima fyrir ásamt móður sinni til Kína. Þar
lentu þær í klóm mansalshrings sem hneppti þær í þrældóm. Um
síðir tókst þeim á æsilegan hátt að flýja til Suður-Kóreu.
Með lífið að veði er bók sem hefur vakið mikla athygli. Þessar
mögnuðu endurminningar, sem nú hafa verið gefnar út í tugum
landa, varpa ljósi á myrkustu kima Norður-Kóreu. En þetta er þó
einkum sag staðfestu og hugrekk s ungrar konu sem lagði líf sitt
að veði til að öðlast frelsi. Ótrúleg saga sem er í senn spennandi
eins og bestu reyfarar og áminning um hve mikils virði frelsið er.
Yeonmi Park er nú einn þekktasti og um leið einn harðasti gagn-
rýnandi ógnarstjórnarinnar í Norður-Kóreu. Vitnisburður hennar
er fágætur, upplý andi og afar mikilvægur.
Með lífið að veði er fræðandi og um leið ótrúleg saga ungrar konu
sem neitaði að gefast upp.
Yr hundrað milljónir manna hafa horft á
myndbönd með Yeonmi Park á netinu þar
sem hún segir sína ótrúlegu sögu.
Skyldulesning!
„Skyldulesning fyrir alla sem unna frelsi og mannlegri reisn.“
Jón Steinar Gunnlaugsson
Mest
selda bók ársins
2017