Þjóðmál - 01.09.2017, Page 23

Þjóðmál - 01.09.2017, Page 23
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 21 Ýmsar aðrar leiðir eru fyrir hendi til að stuðla að auknum stöðugleika, meðal annars með stofnun Stöðugleikasjóðs. Markmið slíks sjóðs yrði skýrt; að draga úr hagsveiflum og stuðla að efnahagslegum stöðugleika til langs tíma. Þjóðir með auðlindahagkerfi hafa sett upp svipaða sjóði í sama tilgangi og er norski olíusjóðurinn þekkt dæmi. Eftir markvissa endurreisn undanfarinna ára blasir við sögulegt tækifæri til að breyta efna- hagskerfi Íslands til frambúðar. Þetta tækifæri verður að nýta. Grundvallarbreyting hagkerfis kallar á breytta hagstjórn Erlend staða þjóðarbúsins hefur ekki verið eins sterk síðan mælingar hófust og grund- vallarbreyting hefur orðið á útflutnings- tekjum Íslands með vexti ferðaþjónustunnar. Á næstu árum og áratugum mun alþjóða- geirinn sem byggir á hugviti vaxa og styrkja greiðslujöfnuð þjóðarbúsins enn frekar. Þetta kallar á viðbrögð stjórnmálamanna og Seðlabankans. Í gegnum tíðina hafa útflutningsgreinarnar skapað mikil verðmæti. Þessum verðmætum á að safna þegar vel árar í þjóðarbúinu og nýta til hagsbóta fyrir þjóðina alla þegar þörf krefur. Nú stendur okkar útflutningsdrifna hagkerfi á tímamótum vegna gríðarlegs vaxtar í ferðaþjónustu, sem hefur með öðrum útflutningsgreinum og miklum þrótti í hagkerfinu skapað meira innflæði erlends gjaldeyris en dæmi eru um í hagsögu Íslands. Jákvæð þjónustuviðskipti hafa skilað veru- legum afgangi á viðskiptajöfnuðinum og styrkt gengi íslensku krónunnar. Þótt auknar útflutningstekjur séu góðs viti hefur þörfin fyrir varkárni, framsýni og skýra sýn í efna- hagsmálum sjaldan verið brýnni en nú. Til að vinna með áhrif þessa mikla gjaldeyris- innflæðis á íslensku krónuna hefur Seðla- banki Íslands kerfisbundið keypt gjaldeyri og safnað í góðan gjaldeyrisvaraforða, sem samsvarar nú um 32% af landsframleiðslu. Stærð gjaldeyrisforðans tekur mið af umfangi utanríkisviðskipta, fyrirkomulagi gengis- og peningamála, reglum um fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti og erlendum skuldum ríkissjóðs og þjóðarbúsins. Sá galli er á gjöf Njarðar að kostnaður við slíkt forðahald er umtalsverður vegna þess vaxtamunar sem er milli Íslands og helstu viðskiptaríkja. Kostnaður- inn eykst eftir því sem forðinn stækkar og því er ljóst að við getum ekki stuðst við þessa aðferðafræði til allrar framtíðar. Gjaldeyris- forðinn er ávaxtaður í auðseljanlegum bréfum bæði til skamms tíma og lengri tíma sem bera tiltölulega lága vexti. Stöðugleika- sjóðurinn gæti fjárfest á hagstæðari hátt en nú er gert á grundvelli langtíma sjónarmiða, til hagsbóta fyrir þjóðina. Eftir markvissa endurreisn undanfarinna ára blasir við sögulegt tækifæri til að breyta efnahagskerfi Íslands til frambúðar. Þetta tækifæri verður að nýta. Til að treysta umgjörð um hagstjórn á Íslandi þarf að ráðast í ýmsar stefnumótandi aðgerðir eins og að treysta betur samspil ríkisfjármálastefnu og peningastefnu ásamt því að styrkja stoðir vinnumarkaðarins.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.