Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 32

Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 32
30 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 Flokkarnir hlutu samanlagt 35,2% atkvæða, litlu meira en Sósíaldemókrataflokkur þá- verandi kanslara, Gerhards Schröder, sem fékk 34,2%. Kristilegu flokkarnir og Sósíal- demókratar gengu nú til stjórnarsamstarfs og Merkel varð kanslari. Merkel er óvenju alþýðlegur leiðtogi og óhætt að segja að hún sé fremsti leiðtogi Vesturlanda. Hún er „ein af okkur“ segja Þjóðverjar gjarnan og kalla hana margir Mutti eða mömmu. Hún er því ekki lengur Mädchen heldur orðin Mutti, og nota mætti orðið „landsmóður“ í þessu samhengi. Í kosningum til sambandsþingsins fyrir fjórum árum hlutu kristilegu flokkarnir 41,5% atkvæða eða 311 þingsæti af 630. Ekki vantaði því mörg sæti upp á að þeir næðu hreinum meirihluta á þinginu, en slíkt hefur ekki gerst síðan 1957 og þetta var mesta fylgi kristilegu flokkanna í meira en tvo áratugi. Frjálsir demókratar, samstarfsflokkur Merkel, fékk slæma útreið í kosningunum, aðeins 4,8% atkvæða, sem dugði ekki til að ná manni inn á þing. Kristilegu flokkarnir gengu því til samstarfs við Sósíaldemókrata, sem hlutu ríflega fjórðung atkvæða og 193 þing- sæti. Þingmeirihlutinn hefur því verið drjúgur á síðasta kjörtímabili, eða sem samsvarar rétt um 80% þingsæta. Slíkt samstarf kalla þarlendir große Koalition, eða stóra sam- steypustjórn. Eðli máls samkvæmt verður við slíkt samstarf að leita mikilla málamiðlana og hætta er á að stjórnarstefnan verði það sem hér á landi er stundum kallað „miðjumoð“. Stjórnarandstöðuflokkarnir voru tveir á síðasta kjörtímabili, Vinstriflokkurinn, Die Linke, með 64 þingsæti, og Græningjar, Die Grünen, með 63 sæti. Græningjar höfðu fyrir kosningarnar 2013 útilokað samstarf með Vinstriflokknum, þar sem flokkurinn hefur þótt of róttækur. Samsteypustjórn þeirra með Sósíaldemókrötum kom því ekki til álita. Rétt er að taka fram að þýskir Græningjar eru ekki róttækur vinstriflokkur í ætt við Vinstri græn á Íslandi og kristilegir segja gjarnan um græningja: „Sie sprechen grün aber leben schwartz.“ – Umhverfisvernd þeirra og stuðningsmanna þeirra sé þannig meira í orði en á borði. Að mati Kristilegra sverja Græningjar sig í ætt við sósíalista að því leyti að þeir vilja útskýra fyrir fólki hvernig það eigi að haga lífi sínu. Kristilegu flokkarnir boða aftur á móti meiri einstaklingshyggju. Stærsta mál Græningja hafði lengi verið að hverfa frá framleiðslu raforku með kjarnorku, en segja má að Angela Merkel hafi „stolið“ þeim málaflokki þegar árið 2011. Þá ákváðu þýsk stjórnvöld í kjölfar kjarnorkuslyssins í Fukushima í Japan að loka öllum kjarnorku- verum Þýskalands innan ellefu ára. Græn- ingjar hafa varla borið sitt barr eftir þetta. Ótrúlegur árangur CSU Kjörfylgi kristilegu flokkanna hefur frá stofnun sambandslýðveldisins verið um 30-40% á landsvísu, en víða mun meira í einstökum sambandslöndum. Sér í lagi er merkilegt að skoða fylgistölur systurflokksins í Bæjaralandi, CSU, sem hefur haldið meiri- hluta sínum á þinginu í München samfleytt frá árinu 1958 að fjórum árum undanskildum. Svo löng valdaseta eins flokks er einsdæmi í hinum vestræna heimi. CSU er algjör yfirburðaflokkur í Bæjaralandi, en lengra til vinstri í pólitík en CDU. Hið opin- bera kerfi í Bæjarlandi er stærra en annars staðar í Þýskalandi og CSU mun íhaldssamari flokkur en systurflokkurinn. Þá eru tengsl hans við kirkjuna miklu meira áberandi en hjá CDU. Forystumenn CSU með Horst Seehofer forsætisráðherra í broddi fylkingar eru mjög stoltir menn. Í þeirra huga er Bæjaraland Paradís á jörð, enda velmegun óvíða meiri í Evrópu en einmitt í Bæjaralandi. Því er óhætt að segja að kristilegu flokkarnir hafi haft afgerandi áhrif á stefnumótun Sósíaldemókrata, sem aftur hefur haft áhrif á stefnu þeirra á Norðurlöndum og mun víðar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.