Þjóðmál - 01.09.2017, Page 33
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 31
Þeir eru Bæjarar mikið frekar en Þjóðverjar. Stefnu-
skrá þeirra fyrir kosningarnar nú bar einmitt
heitið Der Bayernplan eða Áætlun Bæjaralands.
Í fyrra kom upp mikill ágreiningur milli kristi-
legu flokkanna vegna flóttamannavandans,
en CSU vill ganga mun skemur í móttöku
flóttamanna en CDU. Til vandræða horfði
vegna gríðarlegs fjölda hælisleitenda.
Deilur flokkanna gengu svo langt að um tíma
stefndi í að CSU byði fram á landsvísu. Þá
hafa forystumenn CSU talað mjög afdráttar-
laust gegn uppgangi íslamskra öfgamanna
og til að mynda lagt áherslu á bann við
kvennakúgun á borð við það að konur hylji
andlit sitt, líkt og títt er í íslömskum löndum.
CDU hefur verið mun meira hikandi í þessum
efnum, en ekkert mál hefur orðið Angelu
Merkel jafnt þungt í skauti og flóttamanna-
vandinn. Flokkunum tókst þó að leysa úr þes-
sum alvarlega ágreiningi í tæka tíð og gengu
samhentir til kosninga.
Kosningabaráttan
Kosningabarátta kristilegu flokkanna var afar
vel skipulögð, þannig var kappkostað að ganga
hús úr húsi þar sem því var komið við, en mikið
grasrótarstarf einkennir flokkana. Kristilegu
flokkarnir lofuðu í aðdraganda kosninganna
að bæta öryggi borgaranna, lögreglumönn-
um skyldi fjölgað um 15 þúsund, skattar
lækkaðir, ríkisskuldir greiddar niður, tryggð
örugg fjármálastjórn ríkisins og leitað leiða til
að bæta úr mikilli húsnæðisþörf.
Stefnuskráin bar heitið Für ein Deutschland, in
dem wie gut und gerne leben. Þetta slagorð er
tákn um breytta tíma í Þýskalandi. Þjóðverjar
hafa á nýjan leik öðlast sjálfstraust sem þjóð
með þjóða og ímynd landsins er vinaleg.
Velmegun hefur farið vaxandi undanfarin ár
á sama tíma og atvinnuástand hefur versnað
víða annars staðar í álfunni, til að mynda í
Frakklandi. Angela Merkel og samstarfsmenn
hennar skila því góðu búi. Flokkakerfið í
Þýskalandi stendur föstum fótum og telja
verður afar ólíklegt að það sama gæti gerst
þar og gerst hefur Frakklandi, þar sem hinir
rótgrónu flokkar eru næstum horfnir af vett-
vangi og nýr flokkur Áfram! eða En Marche!
undir forystu Emmanuel Macron forseta heldur
um stjórnartauma. Spillingarmál í stjórn-
málum hafa líka verið afar fátíð í Þýskalandi,
sem hefur því einnig leitt til þess að traust
almennings á stjórnmálamönnum er meira
þar en gengur og gerist á Vesturlöndum.
Slagorð Kristilegu flokkanna í kosningabaráttunni.
Ekkert mál hefur orðið Angelu Merkel
jafnt þungt í skauti og flóttamanna-
vandinn. Flokkunum tókst þó að leysa
úr þessum alvarlega ágreiningi í tæka
tíð og gengu samhentir til kosninga.