Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 37
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 35
Flokkur Kristilegra demókrata er breiðfylking
mið- og hægrimanna og hann er ólíkur eftir
landshlutum. Forystumenn hans í Norður-
Þýskalandi eru til að mynda frjálslyndari
og um leið hægrisinnaðri en flokksbræður
þeirra í sunnar í landinu. Hér kemur sitthvað
til. Sósíaldemókratar eru sögulega mun
sterkari í norðurhlutanum, en sá flokkur
byggðist upp sem flokkur verkamanna.
Verkamenn í suðrinu voru margir andsnúnir
sósíaldemókrötum af trúarlegum ástæðum,
þar sem kaþólska kirkjan var lengi harður
andstæðingur sósíalista. Forystumenn
kaþólskra verkamanna hafa því gjarnan stutt
kristilegu flokkana í Suður-Þýskalandi, en að
sama skapi aðhyllst ýmis grundvallarviðhorf
sósíaldemókrata.
Hugmyndafræði félagslegs
markaðsbúskapar
Þýska efnahagsundrið, Wirtschafts wunder,
sem áður var getið, var ekki hvað síst
drifið áfram af vexti og viðgangi lítilla og
meðalstórra fyrirtækja. Á sama tíma var
ráða mönnum ljóst að draga yrði úr vægi
gríðarstórra fyrirtækjasamsteypa, og sumar
þeirra voru brotnar upp. Ludwig Erhard lýsti
þessu stefnumiði kristilegra svo árið 1957:
„Hættan á því að þrengt sé að samkeppni
er stöðug og kemur úr mörgum áttum.
Eitt mikilvægasta verkefnið í landi þar sem
frjálst samkeppnisskipulag er lagt til grund-
vallar í þjóðfélaginu er að tryggja frjálsa
samkeppni. Það eru engar ýkjur þegar ég
fullyrði að lagasetning gegn einokun er
óhjákvæmileg „hagræn grundvallarregla“.
Mistakist ríkisvaldinu í þessum efnum
hefur slíkt fljótlega í för með sér endalok
„félagslegs markaðsbúskapar“. Þessi grunn-
regla þýðir að enginn einstakur borgari
getur náð slíku tangarhaldi að hann megni
að bæla niður einstaklingsfrelsið eða geti
takmarkað það í nafni gervi frelsis.
„Hagsæld fyrir alla“ og „hagsæld á grundvelli
samkeppni“ eru óaðskiljanleg hugtök. Fyrra
hugtakið er stefnan, og seinna hugtakið
gefur til kynna stefnumörkunina eða leiðina.
Þessi tvö hugtök leiða í ljós grundvallar-
mun á félagslegum markaðsbúskap og
eldri hugmyndum um frjálst hagkerfi.
Athafnamönnum í viðskiptalífinu sem
halda að tilvist einokunarhringja sé rétt-
lætanleg vegna þróunar efnahagslífs nú-
tímans má líkja við sósíaldemókrata, sem
álykta að sjálfvirkni leiði til ríkisforsjár.“
Forystumenn CDU með Angelu Merkel í
broddi fylkingar eru sífellt minnugir þessara
grundvallaratriða og er óhætt að segja að það
sé lykillinn að velgengni flokksins. Hann er
flokkur allra stétta, sannkallaður þjóðarflokkur.
Greinarhöfundur í höfuðstöðvum Kristilegra demókrata
í Berlín með Bertil Wenger, yfirmanni alþjóðaskrifstofu
flokksins
Athafnamönnum í viðskiptalífinu
sem halda að tilvist einokunarhringja
sé réttlætanleg vegna þróunar
efnahagslífs nútímans má líkja við
sósíaldemókrata sem álykta að
sjálfvirkni leiði til ríkisforsjár.“