Þjóðmál - 01.09.2017, Blaðsíða 40
38 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
Góður sigur Miðflokksins
Norski Miðflokkurinn er ótvíræður sigur-
vegari kosninganna mælt í fylgisaukningu
frá síðustu kosningum. Hann jók fylgi sitt
um nálega helming frá 2013. Þegar upp var
staðið fékk hann 10,3% atkvæða. Flokkurinn
jók fylgið um 4,8% frá síðustu kosningum
og fjölgaði þingmönnum úr níu í nítján. Í
sumum sveitarfélögum fékk Miðflokkurinn
ótrúlegt fylgi, jafnvel yfir 70% atkvæða, og
hann er nú með geysisterka stöðu víða utan
stórborganna.
Þetta þykir vel af sér vikið því að Miðflokkurinn
var í kreppu eftir kosningarnar 2013. Árið
eftir kom til uppgjörs í flokknum. Boðað var til
aukalegs landsfundar og skipt um formann.
Við keflinu tók Trygve Slagsvold Vedum, þá 35
gamall bóndi úr sveitum Austur-Noregs. Hann
varð yngsti formaður í langri sögu flokksins,
sem var stofnaður 1920.
Undir formennsku Vedum hefur Miðflokkurinn
barist fyrir því að verja hinar dreifðu byggðir
Noregs, sem hafa átt undir högg að sækja.
Einörð byggðastefna hefur verið helsta
baráttumálið. Flokkurinn er alfarið á móti
ESB-aðild og hefur talað fyrir endurskoðun
EES-samningsins. Hann hefur þótt slá á strengi
þjóðernisstefnu með því að telja kjarkinn í
norsku þjóðina og hvetja Norðmenn til að
trúa á eigin land um leið og alþjóðavæðingin
er gagnrýnd. Flokkurinn olli nokkru írafári
meðal andstæðinga sinna í mars síðast-
liðnum þegar samþykkt var á landsfundi að
hafa í stefnu flokksins að setja ætti bann við
því að íslamskar konur bæru andlitshyljandi
blæjur í skólum Noregs. Í kjölfar allra þessara
málefnaáherslna undir hinum nýja formanni
skorti ekkert á brigsl um að flokkurinn væri
heltekinn af þjóðernisofstæki og kynþátta-
fordómum. Þetta sló þó ekki Miðflokkinn
út af laginu og hann vann sem fyrr sagði
stórsigur nú.
Misheppnuð sókn
Verkamannaflokksins
Stórsókn Miðflokksins dugði þó ekki til að
fella hægristjórnarbandalag Ernu Solberg.
Meginástæðan er sú að vinstriflokkunum
og Græningjum mistókst herfilega að svara
væntingum um fylgisaukningu í þessum
kosningum. Þar munaði mest um Verkamanna-
flokkinn, sem hefur verið langstærsti flokkur
landsins um áratuga skeið. Hann fékk aðeins
27,4% og tapaði 3,4% frá kosningunum 2013.
Þá fékk hann 30,8% og þótti afleitt. Aðeins
einu sinni frá 1924 hefur flokkurinn fengið
minna fylgi en í þingkosningum nú. Það
var 2001. Þá hafði flokkurinn haft forystu í
óvinsælli ríkisstjórn en nú á síðasta kjörtíma-
bili var hann forystuafl stjórnarandstöðu-
flokkanna.