Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 42

Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 42
40 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 Hin umdeilda Sylvi Listhaug Sylvi Listhaug, ráðherra innflytjendamála í hægristjórninni, skipuð af Framfaraflokk- num, hefur verið mjög umdeild sem stjórn- málamaður. Vinstrimenn, bæði á fjölmiðlum og í stjórnmálaflokkum, réðust óspart að henni í kosningabaráttunni og gagn- rýndu hana harðlega. Hún mátti sitja undir ótrúlegum svívirðingaflaumi vegna þess hvernig hún hefur tekið á innflytjendamálum, ekki síst málefnum hælisleitenda. Þar hefur hægristjórnin viðhaft strangar reglur með áherslu á skjóta afgreiðslu hælisumsókna. Það olli miklu uppnámi í kosningabaráttunni þegar Listhaug tók sig til og heimsótti Rinkeby, eitt af úthverfum Stokkhólms, höfuðborgar Svíþjóðar, sem hefur orð á sér fyrir að vera vandræðasvæði vegna mis- heppnaðar aðlögunar innflytjenda. Listhaug sagðist vilja kynna sér hvernig Svíar hefðu klúðrað eigin innflytjendamálum og draga af því lærdóm svo að hindra mætti að Norðmenn gerðu sömu mistök. Vinstriflokkarnir, með Jonas Gahr Störe í farar broddi, tóku bakföll af hneykslan og fjölmiðlar fjölluðu um málið dögum saman. Þrátt fyrir harða gagnrýni og jafnvel kröfur um að Erna Solberg afneitaði þessum ráðherra í ríkisstjórn sinni gerðist það ekki. Slíkt hefði væntanlega þýtt að kjósendur sem létu sér vel líka við málflutning Sylvi Listhaug, og voru sjálfsagt flestir kjósendur Framfara- flokksins, hefðu ekki kosið ríkisstjórnar- flokkana. Erna Solberg vissi mætavel að ef stjórn hennar ætti að lifa yrði hvert atkvæði dýrmætt. Þó var urgur innan raða Kristilega þjóðarflokksins og Vinstri. Sem ráðherra hafði Sylvi Listhaug verið kölluð til úr borgarmálunum í Ósló, þar sem hún var borgarfulltrúi. Hún leiddi nú lista í fyrsta sinn í Stórþingskosningum og gerði það í heimafylki sínu, Mæri og Raumsdal. Þar vann hún stórsigur. Flokkur hennar, Framfara- flokkurinn, hlaut þar 22,4% og bætti sig um 2,4%. Framfaraflokkurinn er nú hvergi sterkari í Noregi en einmitt í fylki Sylvi. Sylvi Listhaug, ráðherra innflytjendamála í hægri stjórn inni, skipuð af Framfaraflokknum, hefur verið mjög umdeild sem stjórnmálamaður. Vinstrimenn, bæði á fjölmiðlum og í stjórnmálaflokkum, réðust óspart að henni í kosningabaráttunni og gagnrýndu hana harðlega.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.