Þjóðmál - 01.09.2017, Page 43
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 41
Sigurför kvenna
Sé litið til annars en flokkadrátta vekur athygli
að konur festa sig mjög í sessi í forystu norskra
stjórnmála í þessum kosningum. Fjölmargir
af fremstu stjórnmálamönnum Noregs eru
konur og þær eru í öllum flokkum.
Alls náðu 70 konur kjöri nú, sem gerir hlutfall
þeirra á Stórþinginu 41,4%. Þær hafa aldrei
verið fleiri þar. Síðan er forsætisráðherrann
kona og formenn þriggja af fjórum stjórnar-
flokkum verða væntanlega konur. Það eru
Erna Solberg forsætisráðherra, Siv Jensen,
fjármálaráðherra og formaður Framfara-
flokksins, og Trine Skei Grande, formaður
frjálslynda flokksins Vinstri.
Stjórn Ernu bærilega farsæl
Stjórnmálafræðingar eiga vafalaust eftir að
liggja yfir aðdraganda og úrslitum Stórþings-
kosninganna 2017. Ein þeirra spurninga sem
helst brenna á áhugafólki um stjórnmál er
hvers vegna stjórnarandstöðunni tókst ekki
að vinna meirihluta? Það var ekki auðvelt
að stjórna Noregi á síðasta kjörtímabili.
Mikil verðlækkun á olíu kallaði fram kreppu-
einkenni með atvinnuleysi.
Farið var í umdeildar skattalækkanir, deilt var
um sjávarútvegsmál, hælisleitendastraumur
og innflytjendamál eru stöðugt hitamál og
málefni hinna dreifðu byggða brunnu á
mörgum eins og sigur Miðflokksins sannar.
Margir hafa sagt að þetta hefði fyrir fram átt
að vera unnin skák fyrir vinstriflokkana og
Miðflokkinn.
Kannski er meginástæða þess að tap
hægristjórnarinnar varð ekki meira sú
staðreynd að þrátt fyrir allt hefur Ernu
Solberg og bandamönnum hennar í ríkis-
stjórnarsamstarfinu tekist bærilega að stýra
Noregi í gegnum boðaföllin. Nú eru vís-
bendingar um að rofa fari til í efnahagslífinu.
Norska þjóðin er að eðlisfari bæði varkár og
íhaldssöm. Hún vill trauðla taka þá áhættu að
skipta um hest í miðri á þegar útlit er fyrir að
klárinn sem nú er setinn muni spjara sig og
bera þjóðina til aukinnar velsældar.
Ólíkir leiðtogar
Norsk stjórnmálabarátta, þar sem tvær skýrar
fylkingar takast á um völd, snýst oftar en ekki
um leiðtogana.
Erna Solberg hefur sannað sig sem þjóðar-
leiðtogi sem veldur því að stjórna jafnvel
þó að stundum þurfi að taka óvinsælar
ákvarðanir. Hún virðist einnig njóta lýðhylli.
Þrátt fyrir að hún fari í fararbroddi borgara-
legra afla er hún afar blátt áfram í fasi og
hún kemur úr röðum alþýðufólks í Björgvin á
vesturströndinni.
Jonas Gahr Störe, andstæðingur hennar
og forsætisráðherra stjórnarandstöðunnar,
á hins vegar við ímyndarvanda að stríða.
Hann er auðmaður af Óslóarsvæðinu sem
reis til metorða í Verkamannaflokknum með
embættismannaferli sínum. Margir eiga erfitt
með að skilja hvernig jafnaðarmanna-
flokkur sem kennir sig við verkalýðinn gat
valið hann sem formann. Hann virðist skorta
þann alþýðleika sem einkennir Ernu Solberg.
Að sjálfsögðu eru þó ástæður þess að
vinstrimönnum mistókst að fella hægri-
stjórnarmeirihlutann í Noregi fleiri og
miklu flóknari en persónur formanna Hægri-
flokksins og Verkamannaflokksins.
Höfundur er ritstjóri.
Alls náðu 70 konur kjöri nú, sem gerir
hlutfall þeirra á Stórþinginu 41,4%.
Þær hafa aldrei verið fleiri þar.