Þjóðmál - 01.09.2017, Blaðsíða 56
54 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
Þetta hefur verið ríkur þáttur í ímyndarsköpun
landsmanna bæði út á við og inn á við. Hér er
þá áskilið að jarðvarmanýting landsmanna sé
sjálfbær og þar með endurnýjanleg, en áhöld
eru um það á meðal fræðimanna í ljósi þess að
víða er tekið meir úr forðageyminum neðan-
jarðar en inn streymir, svo að bora þarf s.k.
viðhaldsholur. Hin viðtekna og fjölþjóðlega
skilgreining er samt að jarðhitinn, lághiti og
háhiti, sé endurnýjanleg orkulind. Það breytir
ekki þeirri staðreynd að hægt er að ofgera
staðbundnum jarðgufuforða með ofnýtingu,
eins og sannazt hefur í Hellisheiðarvirkjun.
Áður fyrr var hlutdeild endurnýjanlegra
orkulinda í orkunýtingu landsmanna lengi
vel um 85%, en vegna gríðarlegrar aukningar
á notkun flugvélaeldsneytis á undanförnum
fimm árum er ekki lengur hægt að slá um sig
með þessari háu tölu, heldur var hún komin
niður í 75,6% í árslok 2016 og virðist enn vera
á niðurleið. Hver flugfarþegi virðist losa um
0,7 tonn af CO2-jafngildum í hvorri ferð (fram
og til baka) ef millilendingarfarþegar eru
meðtaldir. Með endurnýjun flugkosts stendur
þetta til nokkurra bóta, en flugfélögin í Evrópu
og vonandi alls staðar standa frammi fyrir
gríðarlegum kaupum á koltvíildiskvótum, því
ferðamönnum fjölgar árlega um a.m.k. 4% á
heimsvísu.
Orkunotkun landsmanna skiptist með eftirfar-
andi hætti árið 2016 á orkulindir. Einingin er
Petajoule, þar sem Joule er alþjóðleg orku-
eining (1 J = 1 Ws) og Peta=1015 :
Efstu tveir liðirnir eru taldir sjálfbærar orku-
lindir, og orka úr þeim nemur alls 75,6% af
heildarorkunotkun Íslendinga, en hinir tveir
innihalda kolefni, sem við bruna hvarfast við
súrefni og myndar CO2. Það gerir eldsneytis-
gas einnig, t.d. própangas, sem sleppt er
í þessu yfirliti. Sé það reiknað með verður
hlutdeild jarðefnaeldsneytis í orkunotkuninni
mjög nálægt fjórðungi. Áreiðanlega bregður
mörgum í brún við að sjá þessa töflu, t.d. að
Íslendingar skuli nú nota meiri orku úr jarðolíu
en úr fallvötnum landsins.
Megnið af vatnsorkunni knýr iðjuverin en
megnið af jarðhitanum fer til upphitunar
húsnæðis. Kol, koks og jarðgas fara aðallega
til iðnaðarnota, t.d. í forskaut og bakskaut
álveranna, og gasið er notað í upphitunar- og
þurrkferla, sem enn hafa ekki verið rafvæddir,
og við matseld.
Það er fróðlegt að kryfja í hvað olíuvörurnar
fóru árið 2016. Innanlandsnotkunin nam 480
kílótonnum, eða aðeins þriðjungi af heildar-
notkuninni, sem var 1.460 kílótonn. Olíunotkun
við millilandaflutninga var yfirgnæfandi, þ.e.
980 kílótonn eða 67%. Þetta er mikilvægt fyrir
loftslagsumræðuna, því íslenzk stjórnvöld hafa
aðeins skuldbundið sig til að minnka innan-
landsnotkunina árið 2030 um 40% miðað við
árið 1990, en flugfélögin og skipafélögin hafa
fengið losunarkvóta úthlutaðan af fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins og munu
þessir kvótar skerðast með tímanum og verða
miðaðir við beztu tækni á hverju sviði á hverjum
tíma. Þannig verður leiðandi fyrirtækjum á
sviði minnkandi losunar á framleiðslueiningu
umbunað en eftirbátunum refsað. Það er
mjög mikilvægt að Íslendingar fái landgræðslu
á borð við skógrækt sína viðurkennda sem
fullgilda mótvægisaðgerð, svo að fyrirtækin
geti keypt kolefniskvóta af skógarbændum og
Landgræðslunni er fram líða stundir.
Frumorkunotkun Íslendinga árið 2016
Vatnsorka 48,5 PJ 18,50%
Jarðhiti 149,2 PJ 57,10%
Olíuvörur 59,0 PJ 22,60%
Kol og koks 4,8 PJ 1,80%
Heild 261,5 PJ 100%
Skipting notkunar Íslendinga á afurðum
jarðolíu 2016
Millilandaflugvélar og skip 980 kt
Samgöngur innanlands 295 kt
Fiskiskip 135 kt
Iðnaður 50 kt
Alls 1.460 kt