Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 57

Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 57
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 55 Með þessar upplýsingar í höndunum ásamt vitneskju um heildarmálmframleiðslu í landinu er hægt að leggja mat á losun gróðurhúsaloft- tegunda árið 2016, svokölluð koltvíildisjafn- gildi. Það er vaninn að bæta við þessa skrá áætlaðri losun frá úrgangi. Til samgangna innanlands heyra samgöngur á landi, í lofti og á legi. Landsamgöngurnar nota 93% af elds- neyti til samgangna innanlands, innanlands- flugið 5% og strandsiglingar 2%. Til að skilja að millilandaflug og millilandasiglingar er gert ráð fyrir skiptingunni 80%-20% af 980 kt/ár. Af þessu yfirliti sést í einni sjónhendingu að loftslaginu stafar ekki meginógnin af starfsemi á landi, sem gefur aðeins frá sér 36% magns gróðurhúsalofttegunda, heldur af flutningum í lofti og á sjó til og frá landinu. Því miður er tæknin skemmst á veg komin með að leysa eldsneytisbruna í þotuhreyflum og stórum skipsvélum af hólmi, en að því er unnið og gæti orðið að raunveruleika eftir 15-20 ár. Ef marka má yfirlýsingar úr þessum starfsgrein- um mun losun þeirra fara vaxandi á næsta áratugi vegna aukinna umsvifa, þrátt fyrir að fyrirtækin muni hagnýta sér nýjustu fram- farir í eldsneytisnýtni. Eru kaup Icelandair á nýjum Boeing-þotum, sem væntanlegar eru árið 2018, dæmi um það, þar sem eldsneytis- notkun á hvern farþega-km mun batna um u.þ.b. 20% miðað við núverandi meðalnýtni flugflota félagsins. Þar til ný og umhverfisvæn tækni ryður sér til rúms í flugi og siglingum verður sú starfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) háð því sem framkvæmdastjórn ESB kann að ákveða um úthlutun koltvíildiskvóta til fyrirtækjanna, og einnig háð verðinu á honum, sem ræðst af framboði og eftirspurn. Framkvæmdastjórnin verður í þessu sambandi að gæta rækilega að því að skekkja ekki samkeppnisstöðu evrópskra fyrirtækja með því að íþyngja þeim með meiri kvöðum en hvíla á fyrirtækjum með heimilis- festi utan EES sem sigla eða fljúga til Evrópu. Stjórnvöld þurfa að vinna markvisst að því að mótvægisaðgerðir með landgræðslu hér- lendis verði viðurkenndar af ESB innan ramma Parísarsamkomulagsins. Íslenzkir skógar- bændur verða samkeppnishæfir á markaði með bindingu koltvíildis við 30 EUR/t CO2 , og fljótlega eftir 2020 má búast við að verð kol- tvíildiskvótans fari upp fyrir það mark. Því er góð fjárfesting fólgin í því að hefja nú ræktun nytjaskóga, sem væru farnir að binda 4,4 t/ha(2) eftir um fimm ár frá út plöntun. Ef við gerum ráð fyrir að á hverju ári væri plantað út fyrir skógi sem bundið getur 0,4% af núverandi losun milli- landaflutninganna, þ.e. 0,4%x7.700 kt = 30,8 kt CO2, þarf árlega að planta skógi í 7,0 kha lands. Stofnkostnaður slíkrar skógræktar er um tveir milljarðar króna á ári. Auka þyrfti plöntu- ræktina til að hafa undan þessu átaki, því að þetta jafngildir um fimmföldun núverandi ræktunarhraða nytja skógar. Þetta er tilvalið samstarfsverkefni ríkisins og flutningafyrir- tækjanna sem í hlut eiga. Land og starfskraftar eru til reiðu, því að komið hefur fram að draga þarf úr sauðfjárbúskap sökum markaðs örðug- leika og að sauðfjárbændur hafa bryddað upp á því við landbúnaðarráðherra að einn af mögu leik unum í stöðunni væri að þeir fækkuðu sauðfé en legðu jarðir sínar í staðinn undir annan búskap, t.d. skógarbúskap. Það er mjög mikilvægt að Íslendingar fái landgræðslu á borð við skógrækt sína viðurkennda sem fullgilda mótvægisaðgerð, svo að fyrirtækin geti keypt kolefniskvóta af skógarbændum og Landgræðslunni er fram líða stundir. Losun koltvíildisjafngilda vegna orkunotkunar Íslendinga 2016 Millilandaflug 7,11 Mt 59% Iðnaður 2,30 Mt 19% Samgöngur innanl. 0,93 Mt 8% Millilandaskip 0,60 Mt 5% Fiskiskip 0,43 Mt 4% Úrgangur 0,30 Mt 3% Orkuvinnsla 0,20 Mt 2% Annað 0,10 Mt 0% Heild 11,67 Mt 100%
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.