Þjóðmál - 01.09.2017, Page 59

Þjóðmál - 01.09.2017, Page 59
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 57 Fiskiskip notuðu mest af olíu árið 1996, eða 248 kílótonn, en 20 árum síðar hafði olíunotkun þeirra minnkað um 113 kt/ár, eða um tæplega 46%. Þessi stórkostlegi árangur var knúinn af brýnni þörf á kostnaðarlækkun vegna hás olíuverðs, sem um tíma var yfir 2.000 USD/t CIF en er nú vel innan við helmingur þess verðs vegna aukins framboðs og eftirspurnar- slaka. Útgerðirnar hafa náð þessum árangri með tæknivæðingu og fækkun togara um helming. Þær höfðu í árslok 2016 dregið úr olíunotkun og þar með úr losun CO2 um 35% frá viðmiðunarárinu 1990. Þær þurfa að bæta árangurinn niður í 125 kt árið 2030, sem er um 0,6%/ár, sem mun nást með áframhaldandi endurnýjun togaraflotans, sem þýðir fækkun skipa og öflugri og nýtnari vélbúnað. Útgerðirnar munu fyrirsjáanlega ekki skulda neinn koltvíildiskvóta á uppgjörsárinu 2030, en líklega eiga inneign, sem verður seljanleg. Dreififyrirtæki raforku verða fyrir 2025 að hafa rafvætt hafnirnar með háspenntu dreifikerfi til að búa í haginn fyrir lokasókn útgerðanna að kolefnisfríum rekstri. Orkusjóður þarf væntan- lega að styrkja verkefnið með stofnframlögum svo landtenging skipa verði samkeppnishæf við olíubrennslu. Öflugt dreifikerfi í höfn skapar jafnframt grunn að orkuskiptum skipanna en þangað til munu þau nota í meiri mæli metanól og lífdísil, sem framleidd verða hérlendis. Iðnaður brennir olíu mestmegnis í fiskimjöls- verksmiðjum. Samkvæmt Samtökum fiskimjölsframleiðenda yrði hámarksálag fiskimjölsverksmiðjanna 180 MW ef þær yrðu að fullu rafvæddar. Fyrir því er ekki grundvöllur, því að aflgetu vantar í virkjanir og flöskuhálsar eru bæði í flutningskerfinu, sem flytur raforku á milli landshluta og til orkukræfs iðnaðar (stóriðju), og í dreifikerfinu, sem flytur raforku til annarra notenda. Það er brýnt að yfirvöld orkumála í landinu hlutist til um að nauðsynlegar virkjanir, flutningskerfi og dreifikerfi verði tilbúin um miðjan næsta áratug til að nokkur minnsti möguleiki verði á að ná markmiði ríkisstjórnar og Alþingis um 40% minni losun gróðurhúsalofttegunda árið 2030 en árið 1990. Losunarmarkmið og leiðir til að ná þeim Það vantar ekki að stjórnvöld hérlendis hafi sett landsmönnum markmið um minni losun gróðurhúsalofttegunda, en þau hafa öll verið óraunhæf, því að eftirfylgni hefur vantað. Þetta er ábyrgðarleysi, því að markmiðin eru skuldbindandi og fjárhagsrefsingar á formi greiðslu í óljósan sjóð fyrir losun umfram skuldbindingar liggja við. „Útlit er fyrir, að íslenzka ríkið muni þurfa að verja milljörðum [ISK] til kaupa á kolefni- skvóta á næsta áratugi. Ástæðan er aukn- ing í losun gróðurhúsalofttegunda þvert á það markmið stjórnvalda, að hún verði um 20% minni árið 2020 en 2005.“(6) Sjávarútvegurinn mun ná þessu markmiði en landumferð alls ekki. Hún breytist nokkurn veginn í takti við verga landsframleiðslu. Árið 2017 spáir Vegagerðin 45% aukningu umferð- ar frá 2005, og árið 2020 má ætla að hún hafi aukizt um 55%. Við þessa fáheyrðu markmiðs- setningu, sem í raun var 23% samdráttur losunar árið 2020 frá 2005, var jafnframt reiknað með að 10% bílaflotans yrðu umhverfisvæn árið 2020. Árið 2017 mun þetta hlutfall e.t.v. ná 1% og verður í mesta lagi 5% árið 2020. Markmiðssetning umhverfisráðuneytisins fyrir landumferðina 2020 fól í sér að losun frá henni næmi þá 680 kt CO2, en ef fer sem horfir mun hún þá fara yfir 1.000 kt CO2 . Mismunurinn verður a.m.k. 320 kt árið 2020, sem með núverandi verði, 5 EUR/t, jafngildir 1,6 milljörðum evra, eða um 200 milljörðum króna. Fyrir tímabilið 2013-2020 gæti þurft að reiða fram úr ríkissjóði hátt í milljarð króna í kolefnisgjöld til ESB vegna slælegrar frammi- stöðu íslenzkra stjórnvalda við setningu og framfylgd þessa markmiðs fyrir Íslands hönd um losun gróðurhúsalofttegunda. Allt bendir til að upphæðin fyrir áratuginn 2021-2030 verði margfalt hærri. Það er mjög mikilvægt að ríkisstjórnin komist að samkomulagi við ESB um að þessar greiðslur renni til mótvægis- aðgerða á Íslandi við losun gróðurhúsaloft- tegunda, t.d. til landgræðslu.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.