Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 63

Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 63
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 61 Því svarar núgildandi Rammaáætlun játandi; þar er 57% meiri orkuvinnslugeta en þörf er á samkvæmt ofangreindu, en aftur á móti minni aflgeta. Mismunurinn er þó innan óvissumarka. Í næstu töflu er samantekt virkjanakosta í núgildandi nýtingarflokki Rammaáætlunar: Alls eru þetta 18 virkjanir og árið 2050 verður þörf fyrir þær allar vegna orkuskiptanna og hagvaxtar, og hefur þá ekki verið reiknað með nýjum iðjuverum, stórum gagnaverum og þess háttar, en með því að beina um 130 MW aflþörf hleðslutækja rafbílanna yfir á lágálags- tíma með lægra orkuverði munu þá 16 ofan- greindra virkjana duga. Ný orkuvinnslugeta verður þá 9.607 GWh/ári og aflgeta 1.286 MW. Þetta er u.þ.b. helmingur af raforkuvinnslugetu og aflgetu virkjana landsins árið 2016. Þetta er svipuð orka og verið hefur í umræðunni að senda utan um sæstreng til Skotlands til að selja Bretum. Annað útilokar hitt. Í biðflokki Verkefnisstjórnar um Rammaáætlun er nokkur orka og hún getur orðið til ráðstöfunar eftir þörfum innanlandsnotkunar á seinni hluta 21. aldarinnar. Þá er spurning hvað verður um orkuna til ISAL í Straumsvík þegar orkusamningur Landsvirkjunar við fyrirtækið um rúmlega 400 MW rennur út árið 2035. Það er ekki nóg að virkja; það verður líka að vera hægt að flytja raforkuna á milli landshluta með háu afhendingaröryggi. Fullnægjandi flutningskerfi með 220 kV hringtengingu er í raun aðeins fyrir hendi á suðvesturhluta landsins. Ein af niðurstöðunum GNG er að auk framangreindra virkjana séu nýjar 220 kV línur á Norður- og Austurlandi forsenda þess að orkuskiptin verði framkvæmanleg. Þar er um að ræða línu á milli Blönduvirkjunar, Kröflu- virkjunar og Fljótsdalsvirkjunar og 220 kV línu þaðan til aðveitustöðvar við Hryggstekk í Skriðdal eða aðra jafngilda styrkingu orku- flutnings áleiðis til Austfjarða. Hér er um að ræða alls 335 km loftlínu, sem e.t.v. verður samið um að setja að einhverju leyti í jörðu, eins og tækni og fjárhagur leyfa. Ofangreint kerfi verður þó óstöðugt í rekstri svo að í bilunartilvikum þarf að skerða orkuvinnslu á Norðurlandi og skerða orkuafhendingu til notenda þar. Til að fá stöðugt kerfi í rekstri verður að tengja Norðurland og Suðurland saman með enn öflugri hætti. Þar stendur val á milli þess að fara Sprengisandsleið eða að leggja 220 kV loftlínu frá virkjunum Þjórsár-/ Tungnaársvæðisins um Suðausturland til Austurlands, t.d. Hryggstekks í Skriðdal, og loka þar með 220 kV hringnum. Fýsilegast er frá tæknilegu og umhverfislegu sjónarmiði að leggja jafnstraumsjarðstreng þvert yfir hálendið (Sprengisandsleið), sem auðvelda mundi aflstýringu á milli landshlutanna við hvers konar aðstæður. Hér að neðan eru allir valkostirnir við styrkingu flutningskerfisins vegna orkuskiptanna sýndir: Flutnings- mannvirki Lengd km Áætlaður kostnaður ma. ISK Lína 220 kV BLA-FLJ-HRY 335 23,5 (213 m. USD) Lína 220 kV SIG-HÖF-HRY 540 37,8 (344 m. USD) Jarðstrengur, 500 MW, N-S 220 40,0 (364 m. USD) Ákjósanlegasti valkostur 555 63,5 (577 m. USD) Gerð og staðsetning virkjana í RAMMA 3 Vinnslugeta Gwh Aflgeta MW Jarðgufa á Hellisheiði, 3 virkjanir 1.845 225 Jarðgufa í Þingeyjarsýslum, 2 virkjanir 2.016 240 Vindorka í Blöndulundi, 20-30 vindmyllur 350 100 Vatnsafl, stækkun Blönduvirkjunar 194 31 Jarðgufa á Suðurnesjum, 5 virkjanir 3.262 400 Vatnsafl á Suðurlandi, 4 virkjanir 2.552 335 Vatnsafl á Vestfjörðum, 2 virkjanir 495 90 Framtíðarorka og afl í nýtingarflokki 10.714 1.421
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.