Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 69
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 67
Höfundur staðfærði greiningartækið og
lagaði að rannsóknarhagsmunum. Greind
voru þau gögn sem aðgengileg eru hags-
munaaðilum íslensku aðilanna að UNGC, það
eru samfélagsskýrslur, ársskýrslur og vefsíður.
Greiningartækið hugar að fjórum greiningar-
kóðum: samskiptum, skuldbindingum,
forystu og innleiðingu. Rannsakandi hugar
þá eingöngu að því hvort fyrirtæki hafi
innleitt þau atriði sem hver kóði hugar eða
ekki, en leggur ekki huglægt mat eða rýnir í
ásetning. Samskiptakóðinn hugar að sam-
skiptum við hagsmunaaðila, til að mynda
hvernig skýrslugerð er háttað og hvort
fyrirtæki hafi skilgreint sína hagsmunaaðila.
Í tengslum við kóðann skuldbinding er
Tafla 1: Aðilar UNGC á Íslandi
Aðili
Aðild
hófst
Starfsm.-
fjöldi
Stærð
fyrirtækis
Landsbankinn 2006 1100 Stórt
Alta ehf. 2009 10 Lítið/meðalstórt
Íslandspóstur 2009 1000 Stórt
Íslandsstofa 2009 27 Lítið/meðalstórt
Íslandsbanki 2010 1000 Stórt
Össur 2011 1700 Stórt
Festa 2012 2 Lítið/meðalstórt
ÁTVR 2012 281 Stórt
Síminn 2013 480 Stórt
Ölgerðin 2013 330 Stórt
Reykjagarður 2013 105 Lítið/meðalstórt
Landsvirkjun 2013 250 Stórt
Réttur lögmannsstofa 2014 12 Lítið/meðalstórt
Arctic Green Energy 2015 15 Lítið/meðalstórt
Marel 2016 4600 Stórt
Sólar ehf. 2016 130 Lítið/meðalstórt
Efla verkfræðistofa 2016 228 Lítið/meðalstórt
Isavia 2016 807 Stórt
Mannvit 2016 238 Lítið/meðalstórt
Arion banki 2016 890 Stórt
kannað hvaða leiðbein-
ingum, stöðlum og sátt-
málum aðilarnir hafa
skuldbundið sig til að
framfylgja að hluta til eða að
öllu leyti. UNGC gerir kröfu
um þátttöku yfirstjórnenda í
stefnumótun og framkvæmd
samfélagslegrar ábyrgðar og
hugar greiningartækið að
þátttöku þeirra ásamt því að
huga að því hver þátttaka
stjórnarmeðlima er.
Síðasti greiningarkóðinn
snýr að innleiðingarferlinu.
Rannsókn Klettner, Clarke og
Boersma (2014) nýtti þennan
kóða til að rannsaka umbunar-
greiðslur til stjórnenda sem
tengdar eru árangri fyrir-
tækisins, öðrum en hagnaði.
Rannsakandi bætti einnig
inn í þennan kóða athugun á
þeim mælanlega árangri sem
fyrirtækin tiltaka í skýrslum
sínum eða á vefsíðum.
20 aðilar að UNGC
Aðilar UNGC á Íslandi eru í dag 20 talsins (sjá
töflu 1), þar af eru 18 fyrirtæki og 2 rekstrar-
einingar sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni.
Fyrsti íslenski aðilinn er Landsbankinn en
hann hóf aðild árið 2006. Á árunum 2013-
2016 bættust við 12 aðilar. Á meðal aðilanna
eru 11 fyrirtæki með yfir 250 starfsmenn og
5 þeirra með yfir 1000 starfsmenn. Þá raðast
6 þeirra á listann yfir 20 stærstu fyrirtæki
landsins á árinu 2016. Samtök atvinnu lífsins
hafa frá árinu 2009 gegnt því hlutverki að
vera tengiliður á milli íslenskra aðila og
UNGC. Samtökin veita aðilum þá aðstoð
sem þeir leita eftir ásamt því að standa fyrir
ráðstefnum og fræðslu.