Þjóðmál - 01.09.2017, Page 72
70 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
Hér má nefna að allir stofnaðilar að Festu-
miðstöð um samfélagslega ábyrgð eru aðilar
að UNGC, að einu undanskildu. Algengast
er að hvert fyrirtæki taki á sig 4-5 skuldbind-
ingar og stærri fyrirtækin tóku á sig fleiri
skuldbindingar en þau minni. Talsverðan
mun má greina á samskiptum við hagsmuna-
aðila á þeim fyrirtækjum sem nýta sér sjálf-
bærnivísa Global Reporting Initiative (GRI)
við skýrslugerð. Með því að nýta sér staðla/
leiðbeiningar GRI ná fyrirtækin að leggja
fram skýrari mynd af samfélagslegri ábyrgð
og mælanlegri frammistöðu. Enginn aðilanna
fær utanaðkomandi aðila til að staðfesta
réttmæti upplýsinga sem koma fram í
samfélagsskýrslum þeirra, þar liggja ónýtt
tækifæri fyrir aðilana til að auka gagnsæi
gagnvart hagsmunaaðilum sínum.
Aukinn áhugi íslenskra fyrirtækja á UNGC
sáttmálanum sést á því að sex af þeim 18
fyrirtækjum sem eru aðilar að UNGC á Íslandi
skrifuðu undir hann á árinu 2016. Það er
merki um að áhugi stjórnenda hafi aukist
á málefnum samfélagslegrar ábyrgðar og
að fyrirtæki vilji teljast marktæk á því sviði.
Talsvert er um að aðilar minnist á það í
skýrslum sínum að síðustu þrjú árin hafi
þeir lagt í viðamikla stefnumótandi vinnu
þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð og
meðal þessa hóps má greina áhuga á að efla
samfélagslega stefnu og/eða auka sýnileika
hennar. Ekkert fyrirtækjanna tiltók ákveðinn
stjórnarmeðlim sem ábyrgðaraðila samfélags-
legrar ábyrgðar en greina mátti þátttöku
yfirstjórnenda hjá öllum aðilum.
Síðasti greiningarkóðinn snýr að inn-
leiðingarferlinu. Fyrirmyndar rannsóknin
nýtti þennan kóða til að rannsaka umbunar-
greiðslur til stjórnenda sem tengdar eru
árangri fyrirtækisins, öðrum en hagnaði.
Rannsóknir hafa sýnt að slíkar greiðslur
eru að ryðja sér til rúms sem ákjósanlegur
valkostur fyrir samfélagslega ábyrg fyrirtæki
(Morgan, 2009). Rannsakandi bætti einnig
inn í þennan kóða athugun á þeim mælan-
lega árangri sem fyrirtækin tiltaka í skýrslum
sínum eða á vefsíðum ásamt því að huga að
virkri birgjastefnu.
Rík áhersla á umhverfisvernd
Meginniðurstaðan var að þegar á heildina er
litið þá mælist skuldbinding aðila við sam-
félagslega ábyrga starfshætti nokkuð víðtæk.
Innleiðingarferlið er virkt og komið talsvert
langt á leið. Niðurstöðurnar benda til þess að
íslenskir aðilar að UNGC séu komnir mislangt
í innleiðingu samfélagslegrar ábyrgðar og
þótt að enginn þeirra hafi að fullu innleitt
samfélagslega ábyrgð inn í kjarnastarfsemi
sína þá er meirihluti þeirra kominn vel á veg.
Rannsakandi metur út frá rannsóknargögn-
um að þeir aðilar sem hafa innleitt samfélags-
lega ábyrgð leggi áherslu á að innleiðing
samfélagsstefnu þeirra sé í samræmi við
þann ramma sem viðmið UNGC setja. Flestir
haga þeir skýrslum sínum þannig að hægt
Innan þess hóps íslenskra fyrirtækja sem eru aðilar að UNGC má sjá mörg af
stærri fyrirtækjum landsins og leiðandi aðila innan síns atvinnuvegar.