Þjóðmál - 01.09.2017, Page 80
78 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
15...Bxh3! 16. gxh3 Dxh3
Hér gat Norðmaðurinn sett öryggið á oddinn
og leikið 17. Df3. Bu á þá ekkert betra en að
þráskáka með 17...Bh2+ og 18...Bg3+.
Magnús tefldi hins vegar til vinnings með
17. Rf1 en eftir 17...He8 18. d4 f5 var hann
undir mikilli pressu.
Kínverjinn tefldi óaðfinnanlega og eftir 36.
leik Magnúsar kom þessi staða upp.
Kínverjinn fann skemmtilega leið til að gera
út um taflið. 36...Hg1+! Magnús gafst upp.
Eftir 37. Rxg1 h2 er ekki hægt að hindra að
svartur veki upp drottningu.
Heimsmeistarinn náði ekki að jafna metin í
seinni skákinni og féll því úr leik. Fleiri sterkir
skákmenn féllu úr leik í sömu umferð og má
þar nefna Nakamura, Kramnik og Caruana.
Mótinu lauk 27. september en þegar þetta
var ritað lágu endanleg úrslit ekki fyrir.
Stóra stuttbuxnamálið
Tap heimsmeistarans var samt ekki það sem
stal senunni í skákfjölmiðlum í þriðju umferð-
inni heldur voru stuttbuxur eins keppandans
einnig í sviðsljósinu.
Rússneskættaði Kanadamaðurinn Anton
Kovalyov hafði byrjað frábærlega á mótinu.
Hann vann fyrrverandi heimsmeistarann
Vishy Anand í annarri umferð. Eftir sigurinn
á Indverjanum vöktu ummæli Kanada-
mannsins í viðtali við vefsíðu mótsins nokkra
athygli. Þar talaði hann um að hann væri
kominn lengra en hann ætti von á – og það
hentaði honum afar illa í námi sínu.
Meðal annars gagnrýndi Emil Sutovsky,
formaður Félags atvinnuskákmanna, það að
menn sem ekki hefðu löngun til að komast
áfram væru að taka sæti af sterkum atvinnu-
skákmönnum.
Kovalyov hafði mætt til leiks til Tíblisi með
einn lítinn bakpoka og í honum voru engar
buxur – aðeins skrautlegar stuttbuxur. Þær
reyndust miklar happabuxur í fyrstu umferð-
unum tveimur. Þegar hann mætti til leiks í
þriðju umferð gegn ísraelska stórmeistarann
Rodshtein gerði yfirdómarinn hins vegar
athugasemdir við klæðnað Kovalyov, sem
samræmdist ekki kröfum mótsins um snyrti-
legan klæðnað.
Kanadamaðurinn benti á að hann hefði
þegar teflt í þessum buxum í umferðum 1 og
2 og einnig á síðasta Heimsbikarmóti. Í fram-
haldinu gerði Kovalyov athugasemdir við að
hann hefði svart í fyrstu skákinni, en hann
taldi sig hafa hvítt. Kanadamaðurinn hafði
þar rangt fyrir sér, en óvenjulegt er að sterkir
skákmenn hafi ekki litinn á hreinu fyrir skákir.
Á meðan yfirdómarinn skoðaði málið mætti
Georgíumaðurinn Zurab Azmaiparashvili,
aðalskipuleggjandi mótsins, til leiks og
sagði Kovalyov að skipta um föt. Áttu þeir
orðaskipti og var greinilegt að
Azmaiparashvili var ekki kátur.
Kovalyov hélt úr skáksalnum. Í stað þess að
fara upp á hótelherbergi og skipta um föt og
mæta aftur í skákina virðist sem hann hafi
pantað sér flug til heim til Kanada. Nokkru
síðar sást hann úti við á leiðinni í leigubíl. Í
framhaldinu sendi hann frá sér yfirlýsingu á
Facebook þar sem hann bar því við að eiga
ekki síðbuxur sem pössuðu sér – þar sem
hann hefði fitnað. Bar hann skipuleggjanda
mótsins þungum sökum fyrir dónaskap,
hann hefði öskrað á sig og meðal annars
kallað sig sígauna.