Þjóðmál - 01.09.2017, Side 84

Þjóðmál - 01.09.2017, Side 84
82 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 Orsakir Í öðrum hluta bókarinnar eru tilgreindar mögulegar ástæður þessarar þróunar. Sumar eru augljósar. Það ætti til dæmis ekki að koma neinum á óvart, sem eitt sinn hefur verið unglingspiltur, að ótakmarkað aðgengi að ókeypis klámefni gæti ruglað þá í ríminu. En fleira kemur til að mati höfundanna. Þeir hafa áhyggjur af upplausn fjölskyldu- mynsturs ins; sífellt fleiri börn alist upp án föður og þeir feður sem þó eru til staðar séu að jafnaði ekki nægilega sterkar fyrirmyndir. Þá er aukinheldur útbreidd fyrirlitning á ýmsu sem áður töldust vera jákvæðir karl- mannlegir eiginleikar; og sífelld niðurbæling á þörfum drengja; svo sem eins og að fá að hreyfa sig og fikta við áhættu sama hluti. Þess í stað eru foreldrar að jafnaði sáttari þegar drengirnir þeirra húka inni í skjóli frá veðrum og vindi fyrir framan meinlausa tölvuskjái – heldur en ef þeir eru að klifra upp á bílskúra, tálga til vopn – eða jafnvel bara að leika sér í íþróttum utan skilgreinds æfinga- ramma og eftirlits fullorðinna „fagaðila“. Skólakerfin fá líka sinn skammt af gagnrýni. Í þeim löndum sem höfundar hafa skoðað heyrir það til undantekninga að karlmenn kenni í grunnskólum, og er staðan líklega svipuð hérlendis. Að auki benda höfundarnir á að mikil verðbólga hafi orðið í einkunnagjöf á síðustu áratugum þótt ekkert bendi til þess að nemendur í dag séu snjallari eða betur undirbúnir en fyrri kynslóðir; þvert á móti. Þetta telja höfundarnir að leiði til mjög óraunhæfra væntinga ungs fólks um lífið og tilveruna. Allir eru sagðir sérstakir og hæfi- leikaríkir að „eitthvað stórkostlegt“ bíði þeirra á fullorðinsárunum. Fyrir vikið virðist allt það sem fyrri kynslóðir töldu vera sómasamlegt líf verða að bragðdaufum vonbrigðum. Foreldar eiga vitaskuld þátt í að byggja slíkar óraunhæfar væntingar; enda má það kallast harðneskjulegt foreldri nú til dags sem ekki fullyrðir að barnið sitt sé snillingur ef því tekst skammlaust að slafra upp í sig graut úr skeið fyrir fermingu. En það eru ekki bara slæmir ávanar og lélegt uppeldi sem stuðla að hnignun karlmanna á Vesturlöndum. Zimbardo og Coulombe vilja meina að ýmislegt í umhverfinu hafi ruglandi áhrif á kirtlastarfsemi líkamans og þar með á magn og gæði hormóna. Einkum eru það plastefnin sem hafa eyðileggjandi áhrif á þetta grunnkerfi líkamans og veldur því meðal annars að magn karlhormónsins virðist vera að minnka verulega. Þar sem hormónin stjórna svo miklu um líkamsstarf- semina, og einkum heilastarfsemina, gæti þessi þáttur verið sá illviðráðanlegasti. Zimbardo hættir sér líka inn á það jarðsprengju- svæði að velta fyrir sér hvort valdefling kvenna kunni að hafa neikvæð áhrif á möguleika karlmanna til þess að lifa fullnægðu lífi. Það finnst honum ekki, en bendir á að hraðar breytingar á hlutverkaskiptingu hafi áhrif; þótt lausnirnar á fylgikvillum þeirrar jákvæðu þróunar séu vitaskuld ekki fólgnar í að snúa aftur til feðraveldisins. Það sé hins vegar rétt að sýna því skilning að karlmenn þurfi að aðlagast breyttum heimi.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.