Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 86
84 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
„Jæja, nú farið þið heim með þennan
samning og eruð sigurvegarar“
Kafli úr æviminningum Guðmundar H. Garðarssonar
Bókakynning
„Fyrir forgöngu Knut Frydenlund, utanríkis-
ráðherra Noregs, er deilendum boðið til
Óslóar. Tugir blaðamanna biðu úti á Fornebu-
flugvelli þegar við lentum og Frydenlund
tók á móti okkur á flugvellinum. Við höfðum
ákveðið Íslendingarnir að segja ekkert við
blaðamenn, en heyra mátti í sífellu smelli
ljósmyndavélanna, þegar við gengum eftir
göngum flugstöðvarinnar. Ætli við höfum
ekki endurtekið orðin „no comment“ hundrað
sinnum! Bíll flutti okkur á Grand Hotel. Stutt
var þar til fundurinn með Bretunum hæfist
og fengum við okkur tvo bíla til að aka okkur
á fundarstaðinn. Þar fyrir utan voru íslenskir
mótmælendur sem fluttu okkur ávarp. Inntak
þess var að við ættum að fara heim, því það
væru svik að semja við árásárþjóðina, Breta.
Inni í fundarherberginu sátum við með
Antony Crossland, nýjum utanríkisráðherra,
en Callaghan var þá orðinn forsætisráðherra.
Andrúmsloftið var fremur stirt. Tvær eða þrjár
undirnefndir voru skipaðar sem funduðu hver
í sínu horni. Þetta gekk þolanlega, en mér
þóttu bresku samningamennirnir smá-
smugulegir. Þegar við hittum Crossland aftur
sögðum við honum að þetta væru alltof
miklir embættismenn. Hann tók undir þau
sjónarmið að verið væri að eyða tímanum
í karp um aukaatriði. Hann skildi að þetta
myndi bara tefja farsæla lausn málsins.
Til að gera langa sögu stutta tókust samningar
og voru undirritaðir. Við gerðum nokkrar
tæknilegar breytingar, en féllum aldrei frá
meginkröfunni um að Bretar hyrfu út fyrir
200 mílurnar.“
Samningurinn var undirritaður 1. júní 1976
í Ósló, undir handarjaðri Knuts Frydenlund,
utanríkisráðherra Noregs.
„Henry Kissinger, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna 1973–1977, segir að Frydenlund,
utanríkisráðherra Norðmanna, hafi borið af
öllum þeim utanríkisráðherrum sem hann
hafi kynnst. Hann hefði staðið við orð sín,
verið íhugull og raunagóður.
Þarna í Ósló urðu miklir fagnaðarfundir
með okkur Oddvar Nordli, forsætisráðherra
Noregs, en við höfðum fyrst hist í kynnisferð
ungra leiðtoga lýðræðisflokkanna í Washing-
ton sumarið 1960 og haldið góðu sambandi
æ síðan. Þegar kom að undirskriftinni í Ósló
hvíslar Nordli rólega að mér: „Við leggjum
fram okkar tillögur um 200 mílur í haust,
svo þurfum við bara að koma okkur saman
um miðlínur.“ Norðmennirnir höfðu þrýst
á um lausn deilunnar og samstarfið innan
NATO var grundvallaratriði í þessu. Ég vil
líka minnast þáttar sendiherra okkar í þessu
sambandi og fleiri starfsmanna utanríkis-
þjónustunnar. Þeir voru flestir góðir fagmenn
og unnu merkilegt starf bakvið tjöldin.
Síðar í haust er væntanleg bókin Maður nýrra tíma, sem eru æviminningar Guðmundar H.
Garðarssonar, alþingismanns, formanns Verslunarmannafélags Reykjavíkur, fulltrúa stjórnar
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og formanns stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna.
Höfundur er Björn Jón Bragason, lögfræðingur og sagnfræðingur. Skrudda gefur út.
Hér er birtur stuttur kafli sem fjallar um samningaviðræðurnar í Ósló 1976 um útfærslu
fiskveiðilögsögunnar í 200 sjómílur, en Guðmundur var í nefndinni sem samdi um útfærsluna.
Textinn innan tilvísunarmerkja er Guðmundar en Björn Jón skrifar þess á milli.