Þjóðmál - 01.09.2017, Page 87

Þjóðmál - 01.09.2017, Page 87
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 85 Sendiherrastöðurnar voru ekki bara bitlingar. Mér koma til hugar Einar Benediktsson, Pétur Thorsteinsson, Hans G. Andersen og fleiri, hver öðrum betri. Ég fann það á fundum erlendis að hlustað var á sendiherrana. Ég man að Crossland sagði við okkur þegar við höfðum samið: „Jæja, nú farið þið heim með þennan samning og eruð sigurvegarar, en ég veit ekki hvað karlarnir í kjördæminu mínu segja, því að ég er þingmaður á þessu svæði. Ætli þeir drepi mig ekki bara!“ Hann sagði þetta eðlilega mikil vonbrigði, en Bretar væru farnir að skilja vanda okkar líka og bætti við: „Þið hafið átt marga bandamenn, sem ekki hafa látið hátt opinberlega, en styrkt ykkur. Við vonum að þetta fari allt vel og við þurfum ekki að lenda í frekari deilum.““ Bretar féllust á 200 mílna fiskveiðilögsögu Íslendinga og fengu takmarkaðar veiði- heimildir til 1. desember 1976. Deilunni lauk með fullnaðarsigri Íslendinga og það lagði grunninn að því samfélagi sem okkur þykir svo sjálfsagt í dag. Það var sólkskin í Ósló þennan dag. Mikill gleðidagur fyrir alla Íslendinga og ekki síður ánægjulegur dagur fyrir Nordli og Frydenlund. Nokkrum mánuðum síðar tilkynntu Norðmenn að þeir myndu færa sína fiskveiðilögsögu út í 200 sjómílur. „Þegar skrifað hafði verið undir skyldi undir eins haldið heim á leið. Áætlunarvél Flugleiða á leiðinni frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur tók á sig krók til Óslóar og sótti okkur. Ekki voru margir farþegar í vélinni og við settumst allir framarlega, nema Hans G. Andersen, sem kom sér einn fyrir aftar. Við Hans þekktumst vel og ég hafði oft heimsótt hann og Ástríði konu hans úti í Washington, þar sem þau bjuggu lengi. Ég settist hjá honum og sagði: „Nú finnst mér við hæfi að ég þakki þér fyrir lífsstarf þitt.“ Og hann svaraði: „Þetta þykir mér vænt um. Þú ert sá eini sem hefur gert það!“ Við héldum blaðamannafund þegar við komum heim til Íslands. Það var um miðja nótt ef mig misminnir ekki og ég var alveg úrvinda af þreytu, en auðvitað mjög ánægður.“ Í áramótaávarpi Geirs Hallgrímssonar 1977 sagði hann meðal annars: „Yfirráðin okkar yfir 200 mílna fiksveiðilögsögu er staðreynd – ævintýralegustu og örlagaríkustu tímamót í sögu íslensku þjóðarinnar eftir sjálfa lýðveldisstofnunina. Efnalega eigum við hér eftir enga afsökun, ef okkur tekst ekki að sjá sjálfum okkur farborða, þótt auðvitað sé við margvíslegan efnahagsvanda að glíma eftir sem áður.“ „Patrick Duffy var flotamálaráðherra Breta þegar þeir kölluðu herskipin heim af Íslandsmiðum. Duffy varð síðar formaður þingmannanefndar Atlantshafsbandalagsins og þar tókst góð vinátta með okkur. Í þau skipti sem hann kom hingað til landsins Guðmundur með Bjarna Benediktssyni yngri, formanni Sjálfstæðisflokksins, á 90 ára afmælisfögnuði Heimdallar í vetur sem leið, þar sem Guðmundur var sæmdur gullmerki félagsins. Ljósm. Håkon Broder Lund. Einar Ágústsson utanríkisráðherra, Þórarinn Þórarinsson, alþingismaður Framsóknarflokks, og Guðmundur að lokinni undirritun samkomulagsins í Osló 1976 þar sem Bretar féllust á 200 sjómílna fiskveiðilögsögu Íslendinga. Að baki þeim stendur Hans G. Andersen hafréttarfræðingur.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.