Þjóðmál - 01.09.2017, Page 88
86 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
heimsótti hann okkur Ragnheiði. Einhverju
sinni sátum við þrjú saman heima í Stigahlíð-
inni og Duffy varð að orði: „Ég hef aldrei
fagnað annarri stund í lífinu eins og þegar
ég gat kallað bresku herskipin heim.“ Duffy
bar hlýjan hug til Íslendinga, en hann hafði
verið í setuliði Breta hér á stríðsárunum og
minntist þess þegar þeir marséruðu í messu í
Dómkirkjunni á hverjum sunnudegi.“
Bretar litu þrátt fyrir allt á Íslendinga sem
trausta bandamenn sína. Það gerðu Vestur-
Þjóðverjar líka og nokkru eftir að lausn fékkst
í deilunni um 200 mílurnar var Guðmundur
sæmdur næst æðsta heiðursmerki vestur-
þýska sambandslýðveldisins.
Ráðstefna ATA á Íslandi 1977 – Þýðing
NATO við lausn landhelgisdeilunnar
„Eugene Rostow, forseti Atlantic Treaty
Association, stakk upp á því 1976 að
samtökin héldu árlegt þing sitt á Íslandi og
okkur fannst það auðvitað upplagt. Þó var
ákveðið að halda það fremur árið eftir hér
á landi vegna landhelgisdeilunnar og það
varð úr. Rostow var þá orðinn varaforseti
samtakanna. Hann kom í heimsókn til okkar
Ragnheiðar og ég fór með hann austur að
Gullfossi og Geysi.“
Guðmundur var þá enn formaður Samtaka
um vestræna samvinnu, en auk hans í stjórn
samtakanna sátu Björgvin Vilmundarson
varaformaður, Heimir Hannesson gjaldkeri og
aðrir í stjórn voru Ásgeir Jóhannesson, Björn
Bjarnason, Jón Abraham Ólafsson, Kristján G.
Gíslason, Leifur Sveinsson, Styrmir Gunnars-
son og Tómas Karlsson.
Samtökin Atlantic Treaty Association voru
stofnuð 1954 af áhugamönnum um samstarf
vestrænna lýðræðisríkja. Á þingunum var
fjallað um mikilsverð utanríkismál, sér í lagi
málefni Norður-Atlantshafsbandalagsins.
Á þinginu í Reykjavík var einkum rætt um
þá ógn sem vestrænum ríkjum stafaði af
stóraukinni hervæðingu Sovétríkjanna á
flestum sviðum hernaðartækninnar og þá
ekki síst með tilliti til hins mikla vígbúnaðar
Sovétríkjanna á norðanverðu Atlantshafi. Í
því sambandi var bent á stóraukin umsvif
sovéska flotans á svæðunum umhverfis
Ísland og Norður-Noreg og mikla uppbyggingu
flotastöðvar þeirra á Kólaskaga. Á þessum
árum óx hernaðarmáttur Sovétmanna um
5–6% á ári hverju og því var brýn þörf fyrir
aukinn viðbúnað Atlantshafsbandalagsins.
Umsvif sovéska flotans á Norður-Atlantshafi
þóttu þá orðin uggvænlega mikil.
Á sama tíma var uppi svokölluð slökunar-
stefna eða „þíða“ (fr. détente) á Vesturlöndum
gagnvart austurblokkinni. Rostow taldi
lýðræðisríki eiga í vök að verjast og þar kæmi
ýmislegt til. Détente væri aðeins fjarlægt
takmark. Á sama tíma og sumir leiðtogar
Vesturlanda vildu setjast að samningaborði
við leiðtoga Sovétríkjanna og annarra
Eugene Rostow 1913–2002. Hann var deildarforseti
lagadeildar Yaleháskóla 1955–1965 er hann gerðist einn
nánasti ráðgjafi Lyndon B. Johnson forseta. Eugene Rostow
var forseti Atlantic Treaty Association 1973–1976. Ljósm.
Hollenska þjóðskjalasafnið.
Guðmundur í Washington 1960 með Oddvar Nordli, full
trúa norska Verkamannaflokksins. Nordli er fæddur 1927
og leiðir þeirra Guðmundar lágu síðar saman, en þá var
Nordli orðinn forsætisráðherra Noregs, en því starfi gegndi
hann 1976–1981. Ljósm. úr safni Guðmundar sjálfs.