Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 91
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 89
Í hjálögðu æviágripi sagði Salinger (f. 1892)
frá fjölskylduhögum sínum, námi og störfum.
Hann hefði meðal annars barist í fremstu
víglínu 1915-1918 og síðar verið yfirmaður
hjá Landssambandi handverksmanna af
gyðingaættum, gengið að eiga Gertrud Lohde
1929 og eignast með henni dóttur, Steffi, í
nóvember 1930. Ráðherra neitaði. Fyrr en
varði var fokið í flest skjól og í nóvemberlok
1942 var Erich Salinger sendur ásamt 997
öðrum gyðingum til Auschwitz með „send-
ingu 23“ og myrtur þar. Gertrud og Steffi fóru
með „sendingu 29“ frá Berlín til Auschwitz hinn
19. febrúar 1943 og virðast hafa verið myrtar
við komuna í búðirnar. Í þeim hópi voru einnig
átta gyðingaflóttamenn sem Finnar höfðu
framselt í hendur Þjóðverja í Eistlandi.
Þriðja Berlínarbúann má nefna, timburkaup-
manninn Alfred Pulvermacher (f. 1889), sem
talaði reiprennandi fjögur höfuðtungumál
auk móðurmálsins og einnig ágæta tyrk-
nesku. Hann hafði barist í heimsstyrjöld
en tekið við fyrirtæki föður síns í stríðslok.
Pulvermacher var kvæntur og átti tvö börn.
Einnig átti hann nokkurt fé utanlands. Hann
bauðst til að taka verksmiðju sína með sér og
setja hana upp á Íslandi en ætlaði að öðrum
kosti að koma á fót bifreiðasölu eða píanó-
framleiðslu, vildi íslenska ríkisstjórnin það
frekar. Hvernig sem málin æxluðust yrði
Pulvermacher–fjölskyldan aldrei byrði
á Íslendingum. Dómsmálaráðherra syn-
jaði beiðni hans. Hinn 12. mars 1943 fór
Pulvermacher ásamt tæplega 1.000 öðrum
gyðingum með „sendingu 36“ frá Berlín
til Auschwitz þar sem hann var myrtur við
komuna í búðirnar. Meðal annarra farþega í
sendingu 36 má nefna Siegbert Rosenthal (f.
1899), bróður Hennyjar Goldstein–Ottósson
og Harrys Rosenthals sem voru bæði búsett
á Íslandi, ásamt konu hans Ernu (f. Baerwald,
1901) og ungum syni þeirra, Denny (f. 1939).
Erna og Denny voru myrt í Auschwitz en
Siegbert var fluttur til Natzweiler–Struthof
fangabúðanna nærri Strassborg þar sem
hann og 85 aðrir gyðingar voru myrtir á
hroðalegan hátt hinn 2. ágúst 1943.
Nota átti beinagrindur þeirra í mannfræði-
safn sem sýna ættu einkenni „undirmálsfólks“
á vegum rannsóknarstofnunar svartliðsins,
Ahnenerbe, við Háskólann í Strassborg.
Margir umsækjendur frá Berlín virðast hafa
orðið eftir í borginni þegar þýsku landa-
mærin lokuðust gyðingum haustið 1941.
Þeir virðast hafa verið meðal þeirra 15.000
gyðinga sem björguðu lífi sínu fram í nóvem-
ber 1942 með því að vinna hörðum hönd-
um í verksmiðjum í Berlín. Fólk þetta var
talið „nauðsynlegt vinnuafl“ og komst því
jafnan hjá brottflutningi „austur“. „Sending
23“ í nóvember 1942 var fyrsta ferðin í nýju
átaki sem átti að hreinsa Berlín af eftirlifandi
gyðingum. Hámark þess var svokölluð Fabrik
Aktion (verksmiðjuaðgerð) í febrúar og mars
1943. Málavextir voru þeir að 20. febrúar
1943 gaf SS-foringinn Adolf Eichmann út
þá skipun að eftirstandandi gyðingar, sem
áður hefðu komist hjá brottflutningi vegna
starfa í mikilvægum verksmiðjum, yrðu nú
sendir austur eins og aðrir, að undanskildum
einstaklingum í blönduðum hjónaböndum
og börnum þess háttar foreldra, samkvæmt
fyrirmælum frá æðstu leiðtogum nasista.
Viku síðar réðust hermenn úr lífvarðarsveit
Adolfs Hitlers, SSLeibstandarte, til atlögu og
hreinsuðu fólk úr verksmiðjunum með svipur
og byssustingi að vopni. Á sama tíma fóru
lögreglusveitir á stjá í Berlín og tóku með sér
alla gyðinga sem þær fundu og máttu hand-
taka samkvæmt fyrirmælum leiðtoganna.
Erna og Denny
Rosenthal í Berlín
1939. Þau voru
myrt í Auschwitz.
Erna var mágkona
Henny Goldsteins
(eiginkonu Hendriks
Ottóssonar).