Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 96
94 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
(sjá mynd 2) og á árunum 1830-1832 reisti
lyfsalinn lyfjagerð og bakhús er náðu að
Fógetagarðinum austanverðum eins og hann
stendur í dag (sjá mynd 3).
Þar sem kirkjugarðurinn var ekki aflagður
fyrr en 1838 þykir nokkuð ljóst að ekki hafi
verið grafið ofan í hús apótekarans þar sem
rannsókn Landssímareitsins fór fram 2016-
2017. Átta ár liðu frá uppbyggingu Reykja-
víkurapóteks þar til Víkurkirkjugarður var
aflagður 1838.
Hundrað árum seinna, árið 1930, var ákveðið
að reisa þyrfti miðstöð fjarskipta í mið-
bænum; svo varð úr að Landssímahúsið
hið eldra var reist á árunum 1930-1932 eftir
teikningu Guðjóns Samúelssonar og stendur
enn milli NASA og nýja Landssímahússins.
Símalagnir og fjarskiptabúnaður sem lagður
var að gamla Landssímahúsinu 1931-1932
voru tekin þvert í gegnum Fógetagarðinn, en
þær grafir sem fórnað var fyrir verkið má lesa
um víða. Þegar hernámið átti sér stað 1941
voru braggar reistir framan við gamla Lands-
símahúsið.
Þegar nýja Landssímahúsið var reist á
árunum 1964-1967 (sjá mynd 4) var fjöldi
grafa úr vegir færður, þær fjarlægðar, rutt
til eða settar sem hluti af uppfyllingarefni við
sökkul hússins. Það kom greinilega í ljós við
rannsóknina á Landssímareitnum 2016.
Þessi upptalning framkvæmda sem kemur
fram hér að ofan er því miður ekki tæmandi.
Víkurkirkjugarður hefur því ekki fengið þá
virðingu sem skyldi. Syndir feðranna eru
margar. Við bætum þær aldrei en við getum
reynt að bæta fyrir það sem aflaga fór. Að
sópa því undir teppi sem við blasti á þeim
35 fm sem inn á Landssímareitinn náðu væri
vanvirðing við þá sem þar hvíldu. Þess í stað
var tekin fagleg ákvörðun um að greina það
sem fyrir var og halda rannsókn áfram.
Árin frá 1950-1975 eru merkileg í ljósi þess
að þá voru fjarlægðar grafir og legsteinar
manna og kvenna er síðust voru jarðsett
í Víkurkirkjugarði auk legstaðar Angelinu
Krüger. Hún var eiginkona lyfsalans, sem svo
sorglega endaði sitt eigið líf árið 1882 eftir
erfiðar barnsfarir. Barnið hennar lést í byrjun
árs 1883 og fékk að hvíla hjá móður sinni (sjá
mynd 5). Þessi gröf var síðasta gröfin sem
tekin var í hinum forna Víkurkirkjugarði, en
var rutt í burtu árið 1967 er nýja Landssíma-
húsið reis. Engar heimildir eru fyrir því hvað
varð um leiðið eða jarðneskar minningar
þeirra mæðgna.
Þetta er þó vitað; grafarsteinn Gunnlaugs
Oddssonar dómkirkjuprests var fjarlægður úr
Fógetagarðinum 1972, leiði Geirs hins góða
og Gunnlaugs voru fjarlægð 1967, jarðneskar
minjar ásamt Járn- og minningarhellum
Espolins, sona hans og konu ásamt fleirum
voru fjarlægðar við framkvæmdir við gerð
Landssímahúsanna beggja frá árunum 1930-
1967. Þetta eru staðreyndir.
Mynd 3. Bakhús Apóteksins reist 18301915 Mynd 4. Landssímahúsið til hægri á myndinni og
Miðbæjarmarkaðurinn fyrir miðju.