Þjóðmál - 01.09.2017, Side 97

Þjóðmál - 01.09.2017, Side 97
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 95 Gerum sögunni hátt undir höfði Nú vil ég ræða um uppbyggingu og sam- stöðu okkar á milli. Í ljósi þeirra minja sem fundist hafa í miðborg Reykjavíkur undan- farna áratugi, í flestum tilfellum vegna fram- kvæmda, þykir mér upplagt að heildstæð stefna og áætlun verði gerð af hálfu ríkis og borgar til þess að miðla þessari merku sögu. Ég kalla því á samvinnu þeirra á milli, til þess að sýna í verki að þó svo að við höldum áfram að byggja á gömlum merg verði minn- ingu þeirra sem byggðu grunninn gert hátt undir höfði. Ég legg til að hin merka 1.200 ára búsetu- saga Reykjavíkur í allri sinni dýrð, óháð titlum, trú eða stéttaskiptingu, fái að birtast með virðingu og veglegum hætti í Fógeta- garðinum eins og hann er í dag. Fógeta- garðurinn er jú það torg sem hvílir á sögu Reykjavíkur frá upphafi og er hann nú þegar vel sóttur af bæði gestum og gangandi. Þarna í hinum gamla Víkurkirkjugarði hvíla forfeður og formæður í mismiklum friði. Þarna voru kannski Skálar, smiðjur, sofnhús, grafir, fjós, kuml eða blóthús um 850-1000 e.kr. og heimildir benda á kirkjur, bænahús, prentsmiðju, verslun, embættisbústaði, skrúðgarð, bragga, apótek, lyfjagerð, kamra, brunna, símastrengi, kapla, dren, ræsi, hitaveitu og ljósleiðara – þetta er allt okkar saga. Hættum að karpa og gerum allri sögunni hátt undir höfði því hvar sem litið er milli sjávar og Tjarnar er sagan sem er, en aldrei var skrifuð. Höfundur er fornleifafræðingur og uppgraftarstjóri á Landssímareitnum 2016-2017. Greinin birtist í styttri útgáfu á vef Landssímareitsins fyrir stuttu. Mynd 5. Leiði Angelinu Krüger og dóttur hennar. Þær voru jarðsettar 1882 og 1883. Myndin er tekin árið 1966. Horft á vinnuskúra og Landssimahúsið. Dómkirkjan og Alþingishúsið fjær til hægri. Við erum því miður ekki það lánsöm að eiga hér í miðbæ Reykjavíkur alls ósnertar minjar frá fyrri tíð. Við höfum líkt og tímarnir sanna byggt í sömu spor í 1.200 ár, úr bæ í borg. Það sem við getum þó reynt í hvívetna er að læra af sögunni og virða það sem vel var gert og það sem betur hefði mátt fara.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.