Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 3
2 3 3 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 2 1
Baráttunni gegn
fávitum ekki hætt
Morð og ástir á
svörtum söndum
Lífið ➤ 62 Lífið ➤ 64
MEÐ MJÚKRI FYLLINGU
Forsölutilboð í dag!
Stórsýning - frumsýnd um jólin
leikhusid.is
COVID-19 Næstum 21 mánuður er
liðinn frá því að fyrsta tilfelli Covid-
19 greindist á Íslandi. Síðan þá hefur
veiran haft mikil áhrif á þjóðina. 35
manns hafa látist, í vikunni lést
karlmaður á áttræðisaldri á Land-
spítalanum. Þórólfur Guðnason
sótt varna læknir líkir sambandi
veirunnar og þjóðarinnar við
ofbeldis samband.
Niðurstöður rannsóknar sem nær
til 400 þúsund manns í sex löndum,
sýnir að tíðni þunglyndiseinkenna
vegna kórónaveirufaraldursins er
mest hjá ungu fólki og konum.
SJÁ SÍÐUR 4 OG 16
Meira þunglyndi
meðal ungs fólks
Reykingar hafa snarminnkað
á síðustu áratugum. Í dag
reykja aðeins um 7 prósent
landsmanna. Notkun nikó-
tínpúða er orðin algeng en
hún er ekki jafn skaðleg.
HEILBRIGÐISMÁL Aðeins 7 prósent
fullorðinna Íslendinga reykja í dag
og er það næstlægsta hlutfall í Evr-
ópu. Aðeins Svíar reykja minna, en
þar er snúsnotkun útbreidd. Fyrir
hálfri öld reykti helmingur lands-
manna og fyrir 30 árum mátti rekja
þriðja hvert dauðsfall beint til reyk-
inga.
„Það er alveg nýtt að sjá 1 til 2 pró-
sent reykja í framhaldsskólum. Við
erum að fá upp svo til reyklausar
kynslóðir,“ segir Hafsteinn Viðar
Jensson, verkefnisstjóri tóbaks-
varna hjá Embætti landlæknis.
Nýliðun reykingafólks er mjög lág.
Fyrir nokkrum árum sást mikil
aukning í neftóbakssölu og rafrett-
urnar komu inn með miklum hvelli.
Sala neftóbaks hins vegar hrapaði
og raf rettu notkun virðist föst í 4
prósentum. Sá sem reykir pakka á
dag þarf að greiða meira en hálfa
milljón króna árlega fyrir.
Notkun niktótínpúða hefur tekið
við af reykingum, en 30 prósent
ungmenna á aldrinum 18 til 24 ára
nota þá og ólíkt neftóbaki er hlut-
fall hjá konum ekki mikið lægra en
hjá körlum. Hafsteinn segir tóbaks-
reykingarnar vera mun alvarlegra
mál. Um helmingur reykingafólks
deyi fyrir aldur fram.
Stærsta breytingin í seinni tíð
þegar kemur að reykingum hér á
landi, varð í ráðherratíð Sivjar Frið-
leifsdóttur, þegar reykingar voru
bannaðar á opinberum stöðum.
Hálfu ári eftir bannið hafði hjarta-
áföllum fækkað um 19 prósent.
SJÁ SÍÐU 10
Reykingar á miklu undanhaldi
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
19
91
19
98
20
06
20
13
20
20
Reykja daglega, 18 til 89 ára
Þingheimur stóð frammi fyrir erfiðri ákvörðun í gær, þegar leiða þurfti til lykta hver áhrif annmarkanna á framkvæmd kosninga í Norðvesturkjördæmi ættu að vera. „Þingmenn höfðu allt svigrúm
sem þeir vildu til þess að lýsa yfir sínum skoðunum og mér fannst gott að það var ástríða í þessu, virðing fyrir lýðræðinu, virðing fyrir því að gera rétt, virðing fyrir skoðunum annarra,“ sagði Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, starfandi forseti Alþingis, að lokinni umræðu þingmanna um málið, sem stóð frá hádegi í gær og fram á kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR