Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 98
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þetta var mjög
skemmtilegt en mjög
taugatrekkjandi.
Jólakettir úr stráum koma til
með að prýða glugga Ramma-
gerðarinnar á Skólavörðustíg
fram að jólum. Jólakötturinn
er að þessu sinni hannaður
af Hönnu Dís Whitehead, á
vinnustofu hennar í Nesjum á
Hornafirði.
arib@frettabladid.is
Þetta er annað árið í röð sem jóla-
kötturinn kemur í Rammagerðina.
Stefnt er að því að á hverju ári fái nýr
íslenskur hönnuður verkið og það
verði eins konar safngripur í anda
Georg Jensen-jólaóróanna, nema í
öllu takmarkaðra upplagi, en Hanna
kláraði þrítugasta og síðasta köttinn
á þriðjudag.
„Jólakötturinn í fyrra var svo
frábær því hann var búinn til úr
endurunnum efnum og mig langaði
að halda áfram að búa hann til úr
einhverju sem væri skaðlaust,“ segir
Hanna.
„Ég fékk verkefnið í sumar og
síðan þá var ég búin að vera að
horfa á norrænt jólaskraut. Við
þekkjum öll IKEA-geitina, en það
er til svo miklu meira sem er búið
til úr stráum.
Ekki bara á Norðurlöndunum
heldur er líka hefð fyrir því um
alla Evrópu að nota strá, þannig
að mig langaði að prófa að takast á
við þann efnivið,“ segir Hanna, sem
hefur lagt töluverða vinnu í kettina.
Hafrar í sól eins og gull
„Ég var svo heppin að ég fékk bænd-
ur hérna á svæðinu til að vinna með
mér. Ég fór að skoða mismunandi
strátegundir, var að skoða bygg,
hamp og melgresi, en endaði á því
að fá hafra á bænum Akurnesi hérna
í Nesjum í október. Gljáinn á hafra-
stráunum er sérstaklega fallegur og
þegar sólin skín á hreinsað strá er
það eins og gull.“
Hanna notar 94 strá í hvern jóla-
kött. „Þetta var mjög skemmtilegt
en mjög taugatrekkjandi, því ég
þurfti að bíða eftir að efniviðurinn
yrði tilbúinn.
Út í óvissuna
Ég þurfti bara að bíða á meðan
kornið þroskaðist, áður en það var
hægt að gera tilraunir. Ég viður-
kenni að ég vissi ekki alveg hvað ég
var að fara út í,“ segir Hanna og hlær.
„Það fór talsverð vinna í að
hreinsa stráin. Það þarf að taka utan
af þeim og klippa hafrana af hverju
einasta strái. Ég bleyti þau síðan og
þá verða þau mjúk og hægt að móta
þau.“
Hanna bætir við að það hafi tekið
hana smá tíma að finna rétta formið
á jólaköttinn, ekki síst með tilliti til
þess að hann gæti örugglega staðið á
eigin fótum. Auk þess hafi hún haft
það markmið að engir tveir kettir
séu nákvæmlega eins.
„Síðan bind ég stráin saman
með línþræði og vef litríkum ullar-
þræði utan um kettina og þá loksins
þurrka ég þá.“
Á ekki samleið með kertum
Hanna segir að hún muni klárlega
notast við strá aftur í náinni fram-
tíð. „Ég bý uppi í sveit og keyri alla
morgna fram hjá svo mögnuðum
stráum. Ég var alltaf að hugsa að ég
þyrfti að gera eitthvað með þau,“
segir Hanna, sem stefnir á frekari
vörutilraunir með strá á næstunni.
„Það er hægt að skera þau niður
og nota eins og þráð. Það var gert
í Sviss og bróderað með stráum. Á
Íslandi voru þau til dæmis notuð í
undirlag undir hnakka, í Skaftafells-
sýslu voru gerðar körfur úr melgresi.
Mig klæjar í fingurna að gera meira
með þeim.“
Stráin ættu að endast í langan
tíma „Stráin eru sterkari en ég hélt
og þurr geta þau enst mjög lengi.“
Hanna ræður fólki þó frá því að
hoppa á jólakettinum. Hann er of
viðkvæmur til þess en honum fylgir
góður kassi sem hægt er að geyma
hann í milli ára „Svo er bara að
halda honum frá kertum.“ n
Stráum stungið í jólaketti
Hanna Dís
Whitehead
starfar í Austur-
Skaftafellssýslu.
MyND/AÐSEND
Feldurinn á jólakettinum er úr
íslenskri ull. Engir tveir eru eins.
MyND/SUNNA BEN
odduraevar@frettabladid.is
„Þetta er tilboð ársins,“ segir Stein-
unn Jakobsdóttir, kynningarstjóri
UNICEF á Íslandi, en á þeim bænum
er boðið upp á 50% verðhækkun á
vítamínbættu jarðhnetumauki
á vefnum sannargjafir.is í tilefni
af svörtum föstudegi. „Við gefum
nefnilega engan afslátt af baráttu
okkar gegn hungursneyð.“
Jarðhnetumaukið gerir að sögn
Steinunnar kraftaverk fyrir van-
nærð börn. „Síðustu ár hefur verið
vel tekið í þessar verðhækkanir
hjá okkur, enda um að ræða lífs-
nauðsynlegar gjafir sem fólk getur
verslað og þannig gefið helmingi
meira,“ segir hún.
„Neyð barna í heiminum í dag
er gífurleg út af áhrifum kórón-
aveirunnar,“ segir Steinunn. Fæðu-
óöryggi bitnar verst á einum hópi,
ungum börnum. „Af öllum öðrum
vörum er svo 0 prósent afsláttur
enda gefum við engan afslátt af rétt-
indum barna.“
Steinunn bætir við að UNICEF
útvegi börnum bóluefni gegn alls
konar lífshættulegum sjúkdómum.
„Og það verður hægt að gera stórgóð
kaup á morgun.“ n
Vítamínbætt fössaraverðhækkun
Steinunn með dóttur sína, Ylfu Björk
Andradóttur, í fanginu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
B
ra
n
d
e
n
b
u
rg
|
s
ía
ALLAR PIZZUR AF MATSEÐLI Á 1.690 KR. EF ÞÚ SÆKIR
72 Lífið 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFréttablaðið