Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 94
Það er eiginlega bara
ógeðslega gaman að
mæta í vinnuna.
Kormákur
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
arnartomas@frettabladid.is
Veldisvöxtur graskerasölu í mat-
vöruverslunum á undanförnum
árum sýnir svart á hvítu að hrekkja-
vakan er komin til að vera á Íslandi.
Þótt fjallkonan gráti sjálfsagt að börn
láti sér ekki nægja hinn al íslenska
öskudag, er staðreyndin sú að auk
þess að höfða einnig til fullorðinna,
er hrekkjavakan einfaldlega miklu
skemmtilegri dagur.
Rétt eins og í hefðbundinni matar-
gerð landans, þar sem ólykt er ein af
rótgrónum hefðum okkar, þá eru
þær fleiri sem sprottnar eru úr mis-
skemmtilegum tímum Íslandssög-
unnar. Bíður einhver í ofvæni eftir
sjómannadeginum eða fullveldis-
deginum ár hvert?
Þessir leiðinlegu hátíðadagar hafa
skolað landanum á erlendar fjörur í
leit að skemmtilegri hefðum, á borð
við Valentínusardag og títtnefnda
hrekkjavöku. Eina leiðin til að anna
eftirspurn eftir skemmtilegri hátíða-
dögum er nefnilega fólgin í því sem
Íslendingar gera best – að skella sér
í víking og ræna menningu annarra
þjóða. n
Tyllidögum
fjölgað með
menningarnámi
Borðbæn og
kalkúnn eru
ómissandi á
þakkargjörð
Bandaríkja-
manna.
Það er löngu tímabært að drekinn í skjaldarmerkinu fá sinn hátíðisdag.
Indversk litagleði í anda Holi gæti, ef vel er að gáð, smellpassað í íslenska grámygluna. fréttablaðið/getty
Er ekki skemmtilegra að mála hauskúpur en sauma saman vambir?
Íslendingar hafa
með Gleðigöng-
unni löngu sýnt
og sannað að
þeir geta auð-
veldlega staðið
undir alvöru
kjötkveðju-
hátíð.
Þakkargjörðin
Bandaríkin Íslendingar hafa
allt of lengi horft á Banda-
ríkjamenn fara með bæn yfir
fylltum kalkún í nóvember og
við getum ábyggilega fundið
eitthvað sem við getum verið
þakklát fyrir. Til dæmis að
hafa lifað móðuharðindin af.
Það er algjör óþarfi að kafa of
djúpt ofan í söguna að baki
bandarísku þakkargjörðinni
– er ekki ábyggilega bara
verið að fagna því að píla-
grímarnir og indjánarnir hafi
verið svona góðir vinir?
Kjötkveðjuhátíðin
Brasilía Góð aðsókn Ís-
lendinga á Hinsegin daga er
annað hvort gott dæmi um
aukið umburðarlyndi okkar
sem þjóðar, eða þá hvað við
elskum skrúðgöngur. Ef spurt
er um flottustu skrúðgöngu
heims er svarið venjulega
kjötkveðjuhátíðin í Ríó sem
er stútfull af sambadansi,
búningum og háværri tónlist.
Við getum stillt henni upp í
lok janúar til að kveðja þorra-
matinn.
Holi
indland Við erum þegar
komin með annan fótinn inn
á indversku litahátíðina Holi
nú þegar Litahlaupið er orðið
jafnvinsælt og raun ber vitni.
Það er samt algjörlega ótækt
að það þurfi að leggja á sig
ómarkvisst víðavangshlaup
til þess að fá yfir sig skammt
af litapúðri – það er miklu nær
að heimfæra bara þennan
aldagamla sið Hindúa.
Kínverska nýárið
kína Talandi um skrúðgöng-
ur. Af hverju hefur kínverski
drekabúningurinn aldrei
haslað sér völl hér á Íslandi?
Það er löngu kominn tími til
að við fögnum því sem sam-
einar kínverska menningu við
norræna goðafræði: Langir
drekar.
Dagur hinna dauðu
Mexíkó Það væri nú aldeilis
huggulegt að geta fengið
afsökun til að dútla við svona
fínar hauskúpur og mála
sig í framan oftar en bara á
hrekkjavöku. Svo er þetta
víst svona dagur þegar
maður minnist þeirra látnu
og vottar þeim virðingu sína,
eða eitthvað.
arnartomas@frettabladid.is
Í dag fagnar Herrafataverslun Kor-
máks & Skjaldar 25 ára afmæli.
Verslunin er í dag hálfgert flaggskip
í herratísku landans, en þeir félag-
arnir hafa í gegnum árin átt stóran
hlut í að mynda þá klæðahefð karla
sem ríkir á Íslandi í dag.
„Það er eiginlega bara ógeðslega
gaman að mæta í vinnuna,“ segir
Kormákur Geirharðsson trymbill
og annar eigandi verslunarinnar.
„Það hefur aldrei verið svona mikið
að gera hjá okkur og svona mikið af
skemmtilegum verkefnum á borð-
inu hjá okkur.“
Kormákur og Skjöldur opnuðu
árið 1996 í Kjörgarði við Hverfis-
götu og segir Kormákur að stað-
setningin hafi fengið marga til að
hrista hausinn.
„Fólk spurði bara hvaða rugl það
væri að grafa sig svona ofan í jörð-
ina,“ segir hann. „Við vildum alltaf
leyfa þessu að þroskast þarna niðri.
Leigan var þægileg og við vorum
ekki að taka of mikla áhættu.“
Síðan þá hefur búðin þroskast
eins og gott viskí og segir Kormákur
að þeir hafi fundið DNA-ið í búð-
inni. „Við framleiðum rosa mikið
sjálfir og hættum ekki að fá hug-
myndir. Í dag erum við bara stoltir
tuttugu og fimm!“ n
Klæðskeraveldið í kjallaranum
Kormákur og Skjöldur hafa ærna
ástæðu til þess að fagna í dag.
Mynd/aðsend
68 Lífið 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURFréTTablaðið