Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 62
Black Friday teygir sig nú yfir alla
vikuna í mörgum löndum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Svartur föstudagur á nafn sitt að
rekja til Bandaríkjanna. Þakkar-
gjörðardagurinn er ávallt síðasti
fimmtudagur í nóvember en
daginn eftir, Black Friday, rennur
upp sölumesti dagur verslana sem
merkir upphafið að jólaverslun.
Frá árinu 2005 hefur þessi dagur
verið sá allra söluhæsti í Banda-
ríkjunum á ári hverju.
Þakkargjörðarhátíðin er mikil
ferðahátíð þar sem fjölskyldur
koma saman og halda hátíð og
borða kalkún. Sagt er að svartur
föstudagur eigi uppruna sinn í
Fíladelfíu allt aftur til ársins 1961
þegar lögreglan notaði þetta nafn
til að lýsa mikilli umferð gangandi
og akandi vegfarenda daginn eftir
þakkargjörð.
Enn eldri saga er frá árinu 1869
þegar tveir fjárfestar, Jay Gould og
Jim Fisk, hækkuðu verð á gulli og
úr varð hrun á hlutabréfamarkaði.
Bændur urðu fyrir 50% lækkun á
hveiti- og maísuppskeru í kjölfarið.
Þetta var svartur föstudagur og
nafnið festist í sessi.
Kaupmenn vildu síðar breyta
nafninu í „stóra föstudaginn“
en það náði aldrei í gegn. Black
Friday hefur dreift sér um
heiminn og er í sumum tilvikum
orðinn heil vika. ■
Stór föstudagur í verslun
SVARTUR
FÖSTUDAGUR
10%
AF ÖLLUM VÖRUM
25%
AF VANDYCK
& BRINKHOUSE
MJÚKVÖRU
30-50%
AF VÖLDUM
VÖRUM
50%
AF ÖLLU Í
OUTLET VERSLUN
ÚT NÓVEMBER
Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu
LISTHÚSINU LAUGARDAL s. 581 2233
BALDURSNESI 6, AKUREYRI s. 461 1150
OPIÐ virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 12-16
UMBOÐSAÐILAR Húsgagnaval, Höfn í Hornafirði
og Bara snilld, Egilsstöðum | svefnogheilsa.isBALDURSNES 6 – AKUREYRI VERSLUN & OUTLET – LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
UM FJÓRÐUNGUR LANDS-
MANNA SEFUR Á DÝNU
FRÁ SVEFN & HEILSU*
*Samkvæmt könnun frá Gallup.
Múgur og margmenni er í verslunum
vestanhafs á Black Friday.
■ Að bandarískir verslunarmenn
ákváðu að nota heitið Black Friday
á jákvæðan hátt seint á 9. ára-
tugnum? Það var ekki síst vegna
þess að í lok nóvember var upp-
runninn sá tími árs að þeir gátu
sýnt fram á söluhagnað.
■ Að í Bandaríkjunum og víðar er
Svartur föstudagur talinn hag-
stæðasti dagur ársins til að kaupa
sjónvarp, skartgripi, tölvur og
heimilistæki?
■ Að Black Friday er annasamasti
dagur pípulagningamanna vestan-
hafs þar sem álag á vaska, niður-
föll og klósett verður gríðarlegt
vegna mikilla matarkaupa og tíðra
klósettferða alltof margra gesta
á stuttum tíma og óvenju langs
vinnutíma verslunarfólks?
■ Að það færist í aukana að
verslunareigendur hefji Black
Friday-daga í vikunni fyrir stóra
daginn og hafa þá jafnvel lokað á
Svörtum föstudegi? Þá hvetja þeir
starfsfólk sitt til að verja tímanum
með fjölskyldu og vinum í stað
þess að hanga í búðum. ■
Vissir þú þetta um
Black Friday?
Göngum hægt um kaupgleðinnar
dyr og verslum af skynsemi.
FRÉTTABLAÐIÐ/DAníEL
Gerðu lista yfir það sem þú vilt
kaupa, áður en þú heldur inn í
frumskóg internetsins eða ganga
verslunarmiðstöðvarinnar. Það
getur verið æði freistandi að draga
hluti sem þig vantar ekki í körfuna
einfaldlega vegna þess að þeir eru
á svo hrikalega góðum afslætti.
Þannig endum við með loftsteik-
ingarpott í bílskúrnum sem hefur
verið notaður einu sinni og aldrei
aftur.
Vikurnar fyrir afsláttahelgina
er alls ekki svo vitlaust að skoða
verslanir og það sem þær eru að
bjóða, og gera lista yfir það sem þig
langar til að kaupa. Þegar kemur
svo að afsláttahelginni miklu
þá skaltu bera saman verðið á
vörunni.
Mörg fyrirtæki hafa gerst sek um
að hækka verð á vörum stuttu fyrir
tilboðsdaga til þess að gefa það
sem virkar eins og ótrúlega háar
fjárhæðir í afslátt.
Settu þér mörk þegar kemur að
fjárútlátum sem þú ert tilbúin/ nn
að eyða þennan tiltekna dag. Það
er fátt einfaldara en að spreða
peningum þegar maður byrjar á
því og því meira sem maður eyðir,
því auðveldara verður að eyða
meira. ■
Þrjú ráð
fyrir Myrka
markaðshelgi
20 kynningarblað 26. nóvember 2021 FÖSTUDAGURSvartur föStudagur