Fréttablaðið - 26.11.2021, Blaðsíða 41
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 26. nóvember 2021
Sigrún Lilja fór ung út í rekstur, þá á vörumerkinu Gyðja Collection. Í dag rekur hún farsæla líkamsmeðferðarstofu, The House of Beauty. Árangur viðskipta-
vina með líkamlegt útlit og vellíðan er ótrúlegur. Fréttablaðið/Eyþór
Enginn
afsláttur
af árangri
Sigrún fór 24 ára út í rekstur Gyðja
Collection. „Ég var ung og frekar
blaut á bak við eyrun. Þó má segja
að það hafi gengið nokkuð vel. Svo
dundu á nokkur alvarlegri högg.
Meðal annars komu upp veikindi
hjá mér sem leiddi til þess að ég
varð óvinnufær og þurfti að setja
heilsuna í forgang.
Ég gerði allt sem ég gat sjálf til
að ná upp heilsu á sem náttúru-
legastan og öflugastan hátt. Meðal
annars kynntist ég líkamsmeð-
ferðum sem við bjóðum upp á í dag
hjá The House of Beauty. Í dag er ég
þakklát fyrir að vera heilsuhraust
og á það meðal annars líkamsmeð-
ferðunum okkar að þakka,“ segir
Sigrún.
„Fyrir þremur og hálfu ári
keyptum við maðurinn minn
líkamsmeðferðartæki af lítilli stofu,
en eigendur voru að selja stofuna.
Við þróuðum konseptið og bættum
við meðferðartækjum. Til varð
líkamsmeðferðarstofan The House
of Beauty. Við vildum ekki fara út
í hefðbundinn snyrtistofurekstur
heldur sérhæfa okkur í áhrifaríkum
líkamsmeðferðum. Til er fjöldi
flottra snyrtistofa en minna er um
það sem við erum að bjóða upp á.“
Einstök meðferðarstofa
„Ég lærði ýmislegt af því að eiga
mitt eigið merki, bæði hvað á að
gera en líka hvað á ekki að gera,“
segir hún og hlær. „Ég ákvað að
einbeita mér að rekstrinum og ráða
til mín meðferðaraðila sem sæju
um meðferðirnar. Í dag vinnur með
mér ómetanlegt starfsfólk sem býr
orðið yfir mikilli reynslu og þekk-
ingu. Þær eru átta talsins og erum
við að ná ótrúlegum árangri með
viðskiptavinum okkar. Ég legg líka
mikið upp úr endurmenntun og
stöðugri þjálfun. Þannig náum við
að vera með puttann á púlsinum í
þeirri hröðu þróun sem á sér stað í
þessum geira í dag.
Margir glíma við staðbundin
vandamál sem ræktin hefur ekki
verið að vinna fyllilega á. Okkar
sérstaða eru líkamsmeðferðir án
inngripa; án þess að leggjast undir
hnífinn. Við höfum náð frábærum
árangri með ákveðin vandamál
eins og svuntu á kvið eftir barns-
burð eða þyngdartap, uppbyggingu
á rassvöðvum, kviði, upphand-
leggjum og fleiru.“
Okkar hagur að
viðskiptavinur sé sáttur
Starfsfólk The House of Beauty
hefur hlotið mikla þjálfun svo að
viðskiptavinur fái ávallt sambæri-
lega meðferð óháð því hver á stof-
unni veitir hana. „Fólk er með ýmis
sérhæfð vandamál sem það vill
vinna í hjá sjálfu sér. Við bjóðum
upp á fría mælingu og ráðgjöf án
allra skuldbindinga. Við bendum á
hvaða meðferðir geti verið áhrifa-
ríkastar og mælum með meðferðar-
pökkum ef þarf. Meðferðirnar eru
áhrifaríkar einar og sér, en saman
hafa þær ótrúleg áhrif.
Öllum meðferðarpökkum
og kortum má skipta út enda er
árangur afar persónubundinn. Það
er enda okkar hagur að viðskipta-
vinur gangi sáttur út af stofunni
okkar.“
Lipomassage Silklight
– sú allra vinsælasta
„Ein af okkar allra vinsælustu
meðferðum frá upphafi er án efa
Lipomassage, sem er ein öflugasta
sogæðameðferð sem þú kemst í.
Fyrir utan að hafa gríðarlega öflug
áhrif á mótun líkama, búa til það
sem við köllum „sokkabuxnaáferð“
og vinna á appelsínuhúð, á bjúg-
söfnun og á staðbundinni fitu, þá
er þetta meðferð sem mjög margir
kjósa að koma í til að halda niðri
verkjum til dæmis vegna gigtar eða
stoðkerfisvandamála. Meðferðin
tekur 40 mínútur.
Viðskiptavinurinn klæðir
sig í sérstakan galla og er allur
Sigrúnu Guðjónsdóttur þekkja margir
sem stofnanda Gyðja Collection. Í dag
rekur hún líkamsmeðferðarstöðina
The House of Beauty. „Markmið
okkar er að viðskiptavinurinn gangi
ánægður út,“ segir Sigrún. 2
Þeir sem vilja eins manns loftfar
geta splæst í Jetson One.
MyND/JEtSONaErO.COM
oddurfreyr@frettabladid.is
Í október byrjaði sænska fyrir-
tækið Jetson að selja áhugavert
nýtt eins manns loftfar sem heitir
Jetson One. Fyrirtækið birti nýlega
myndband á Youtube þar sem loft-
farið sést þeysa yfir veg sem liggur
gegnum skóg og þar minnir það
óneitanlega á fljúgandi mótorhjól-
in úr Star Wars: Return of the Jedi.
Myndbandið sýnir hvernig tækið
er knúið af fjórum rafhreyflum
sem gera tækinu kleift að taka lóð-
rétt á loft.
Kemst hátt og hratt
Á heimasíðu fyrirtækisins má
finna nánari upplýsingar um
Jetson One. Loftfarið er ekki nema
86 kíló að þyngd og flugmaðurinn
þarf að vera undir 95 kílóum. Það
getur flogið í 20 mínútur og kemst
á 102 km/klst. hraða, en hraðinn er
takmarkaður af hugbúnaði. Jetson
One kemst líka í rúmlega 450
metra hæð og það tekur ekki nema
einn til tvo tíma að hlaða græjuna.
Þeir sem eru ekki flughræddir
ættu að geta haft gaman af því
að þeysast um á svona tæki, en
það er ekki á allra færi að splæsa í
Jetson One, því verðmiðinn er rétt
rúmlega 12 milljónir króna.
Nýtt eins manns
loftfar